bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bílarafmagns vandamál.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=39162
Page 1 of 1

Author:  JonHrafn [ Fri 14. Aug 2009 12:01 ]
Post subject:  Bílarafmagns vandamál.

Sælir, þar sem nóg er af snillingum hérna á spjallinu datt mér í hug að athuga með þetta hér.

Loksins þegar verklok voru handan við hornið þá kom svoldið upp á með rafkerfið. Mælaborðið hætti að virka.

Við settum v6 bensín 4runner vél í hilux og þegar vélinni var startað og bíllinn prufukeyður í fyrsta sinn alveg strípaður þá virkaði mælaborðið.

Síðan þá er mikið búið að gerast og var ég að ganga frá aukabensínmæli og kláraði að setja mælaborðið saman og ekkert virkaði. Nú erum við búnir að rífa allt úr sambandi til að reyna finna út hvað er að valda þessu þannig að núna er bara í sambandi það sem þarf til að keyra vélina , og reyndar framljósin líka.

Það sem virkar í mælaborðinu eru öll gaumljós, t.d handbremsan á , hái geysli á osfr. Bensínmælir er fastur í botni en smurþrýstingsmælir virkar.

Það sem virkar ekki er bensínmælir (fastur í botni), volt mælir, hitamælir, snúningshr mælir, hraðamælir, baklýsing.

Boddy-ið er vel tengt við grind þannig að það er ekki problemið.

Eini bílarafvirkin sem við þekkjum er á kafi í vinnu þannig að mér datt í hug að athuga með ykkur hérna inni áður en við endum með bílinn hjá fagmönnum, nóg er þetta nú búið að kosta.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/