Page 1 of 2
Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 06. Aug 2009 14:03
by íbbi_
Eru ekki einhverjir hérna að slíku?
Var að fá 2007 yz450f, og hjólaði fyrst á því í gær, og er
Ennþá að
Jafna mig í skrokknum,
Þvílíkt sem þetta er gaman, 60hö og 90kg + mega lág gírun
Re: Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 06. Aug 2009 14:05
by Einarsss
langar alveg hrikalega mikið í hjól en aldrei átt til pening þegar góðir dílar bjóðast

Re: Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 06. Aug 2009 14:06
by DiddiTa
Á husqvarna 450 sem ég hef notað grátlega lítið, er algjör byrjandi en maður reynir að taka vel á því næsta sumar bara
Re: Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 06. Aug 2009 14:25
by íbbi_
Mér hefur reyndar fyrir mína parta hingað til fundist þetta sport of dýrt, var á nöðrum í denn og ætlaði því alltaf í krossara,
Fór með kunningja í gær að hjóla í hveragerði, það eru stígar útum öll fjöll og bara fallegt þarna,
Og svo er aflið í þessu bara alveg fáránlegt,
Re: Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 06. Aug 2009 18:53
by akajoi
ég er með ktm 525sx 2005.
Re: Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 06. Aug 2009 19:04
by Axel Jóhann
Ég var í þessu frá 2004 til 2007 seldi hjólið mitt sem ég átti þá 250KX 2 stroke, virkilega skemmtilegt. Svo var ég á 550 Husaberg hjá vinnufélaga mínum og þorði varla upp fyrir 3 gír, svo fór ég uppá braut hér í eyjum sem er BTW ein skemmtilegasta brautin á landinu og þorði engu, var alger gunga, þannig ég er eiginlega dottinn úr þessu í bili allavega.
250 hjólið mitt.

Re: Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 06. Aug 2009 19:38
by Turbo-
Ég er með 2006 kawasaki kfx400, fjórhjól

, ég veit að það stendur bara kross/enduro


svo er hérna í skúrnum Yamaha tri moto 175cc 82 model, nákvæmlega eins og þetta :

Re: Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 06. Aug 2009 19:42
by Jónas Helgi
Ég keypti mér Kawasaki KX250F 05' í byrjun sumars.
Bíllinn er núna bara frá "A" til "B" eftir að ég keypti mér græjuna.
Ég allveg elska þetta, fór núna um verslunarmannahelgina í þjórsársdal á slóða þar og hjá Heklu, ALLGJÖR drauma staður þarna, svo er auðvitað lang skemtilegast í brautum að mínu mati allaveganna

Re: Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 06. Aug 2009 20:18
by Saxi
Mig langar að nýta mér þennan þráð aðeins. Hef nefnilega verið að spá í að byrja í þessu og langar í eitthvað sem sameinar leikaraskap og hálendisrúnta. Er eitthvað svoleiðis til?
Algjör núbbi þegar kemur að hjólum til að það sé tekið fram.
kv.
Egill
Re: Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 06. Aug 2009 20:27
by ///MR HUNG
Saxi wrote:Mig langar að nýta mér þennan þráð aðeins. Hef nefnilega verið að spá í að byrja í þessu og langar í eitthvað sem sameinar leikaraskap og hálendisrúnta. Er eitthvað svoleiðis til?
Algjör núbbi þegar kemur að hjólum til að það sé tekið fram.
kv.
Egill
Fjórhjól....Alger snilld

Re: Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 06. Aug 2009 21:11
by Róbert-BMW
Er á KTM 380 Enduro, lángar samt í Fjórhjól....
Re: Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 06. Aug 2009 21:51
by Kasper
Ég er á Suzuki rm 2 gengis 2001 modelið
Re: Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 06. Aug 2009 23:33
by agustingig
rm250z

, er mest í braut en væri gaman að fá að vita hvar þið eruð að hjóla í svona enduro akstri.. er bara nýlega fluttur aftur hingað frá usa, og veit ekkert hvar MÁ hjóla og hvar ekki...læt mynd fylgja svo í endann..
http://www.youtube.com/watch?v=qSNl44WA4zc
Re: Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 13. Aug 2009 15:20
by Einarsss
Hérna var að kaupa krossara um daginn, súkku 250 RM 2001
Var að spá .. í repair manualinum stendur að maður eigi að skipta um stimpil á 10 klukkustunda notkun og stimpilhringi á 6 klst notkun

finnst þetta hálf ótrúlega tölur, ekki getur þetta staðist?
Fann reynar á einhverju forumi að sumir gæjar eru nokkur season á sama stimpli og eru bara að fylgjast með hvort þjappan sé í góðu lagi, og hugsa vel um annað viðhald.
Re: Hverjir hérna eru að hjóla? (Kross/enduru)

Posted:
Thu 13. Aug 2009 15:34
by agustingig
2T fer svona 60-70 tíma á stimpil... vinur minn var að lenda í því um daginn að það fór stimpill hjá honum og cylendrinn eyðinlagðist.. kostaði hann 80þúsund, betra að vera öruggur á þessu.. skipta á 60 tíma fresti á twostroke.. taka krafthitting einhvertímann uppí braut?
