Page 1 of 2

ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 10:39
by Kristjan
Já ég veit að þetta er spes topic en mig langar að fara með guttan á kvartmíluna á eftir og ég get það ekki nema að hafa heyrnahlífar fyrir hann.

Á einhver svona?

Re: ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 14:08
by BMW_Owner
er kvartmílu brautin ekki lokuð? :bawl:

Re: ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 14:42
by Ingsie
BMW_Owner wrote:er kvartmílu brautin ekki lokuð? :bawl:

hmm nei það er keppni í gangi akkurat núna :P

Re: ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 15:06
by Kristjan
Gat ekki reddað þessu og fer því ekki. :(

Re: ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 18:01
by Bjarkih
Það hefði nú mátt halda fyrir eyrun á barninu...

Re: ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 18:36
by Lindemann
Þú reddar þessu bara fyrir næstu keppni og kemur með guttan þá!

það er king of the street keppni þarnæstu helgi, hugsa að það gæti orðið spennandi keppni.......svipar til götuspyrnunnar á AK nema bara 1/4 míla.

Re: ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 18:43
by sindrib
hvað með eyrnatappa

Re: ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 18:45
by SteiniDJ
sindrib wrote:hvað með eyrnatappa


Ég hugsaði það sama, en ég held að barnið hans Kristjáns sé ekki nógu gamalt í það. Örugglega ekki þægilegt fyrir svo ungt barn að vera með eyrnatappa. (Mig minnir að þú sért með toddler, sorry ef svo er ekki :))

Re: ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 19:11
by Kristjan
SteiniDJ wrote:
sindrib wrote:hvað með eyrnatappa


Ég hugsaði það sama, en ég held að barnið hans Kristjáns sé ekki nógu gamalt í það. Örugglega ekki þægilegt fyrir svo ungt barn að vera með eyrnatappa. (Mig minnir að þú sért með toddler, sorry ef svo er ekki :))


Að halda fyrir eyrun er ekki option því maður veit aldrei hvenær hávaðinn byrjar og á maður virkilega að halda fyrir eyrun allan tíman?

Ég veit ekki með eyrnatappa, það gæti hugsanlega gengið ef maður fyndi rétta stærð... eru til barna eyrnatappar?

Ég hef oft séð foreldra með börnum sínum á tónleikum með litlar heyrnahlífar. Þær stóru eru hannaðar fyrir fullorðið fólk og virka ekki vel fyrir smábörn.

Re: ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 19:41
by SteiniDJ
Kristjan wrote:
SteiniDJ wrote:
sindrib wrote:hvað með eyrnatappa

Ég hef oft séð foreldra með börnum sínum á tónleikum með litlar heyrnahlífar. Þær stóru eru hannaðar fyrir fullorðið fólk og virka ekki vel fyrir smábörn.


Ég hef séð barnaheyrnahlífar til sölu í Húsasmiðjunni í HFJ (frá Peltor), en veit ekki með barna eyrnatappa, held að það væri bara vesen.

Re: ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 19:50
by Lindemann
Kristjan wrote:
SteiniDJ wrote:
sindrib wrote:hvað með eyrnatappa


Ég hugsaði það sama, en ég held að barnið hans Kristjáns sé ekki nógu gamalt í það. Örugglega ekki þægilegt fyrir svo ungt barn að vera með eyrnatappa. (Mig minnir að þú sért með toddler, sorry ef svo er ekki :))


Að halda fyrir eyrun er ekki option því maður veit aldrei hvenær hávaðinn byrjar og á maður virkilega að halda fyrir eyrun allan tíman?

Ég veit ekki með eyrnatappa, það gæti hugsanlega gengið ef maður fyndi rétta stærð... eru til barna eyrnatappar?

Ég hef oft séð foreldra með börnum sínum á tónleikum með litlar heyrnahlífar. Þær stóru eru hannaðar fyrir fullorðið fólk og virka ekki vel fyrir smábörn.


ég er búinn að sjá einhverja krakka með svona heyrnarhlífar uppá kvartmílubraut í sumar, svo þetta er til einhversstaðar....man bara ekki hver átti þessa krakka.

Re: ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 20:26
by JonFreyr
Annad option gæti hugsanlega verid silikon eins og sundfolk notar :) virkar agætlega dempandi en væri audvitad best ad kaupa barnahlifar. Er ekki hægt ad nalgast svona hja bjorgunarsveitum sem selja flugelda?

Re: ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 21:02
by SteiniDJ
JonFreyr wrote:Annad option gæti hugsanlega verid silikon eins og sundfolk notar :) virkar agætlega dempandi en væri audvitad best ad kaupa barnahlifar. Er ekki hægt ad nalgast svona hja bjorgunarsveitum sem selja flugelda?


Eins og ég sagði, tékka Húsasmiðjuna. Er 99% viss um að ég hafi séð þetta þar. Þar að auki eru þessar byggingarvöruverslanir með Peltor vörur (algengustu heyrnahlífarnar) og þeir framleiða Jr. Muffins.

Re: ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 22:41
by ValliFudd
Mér var bent á Dynjanda í Skeifunni..
http://www.dynjandi.is/

Á eftir að kíkja þangað.. Mig vantar líka :)

EDIT:
https://www.dynjandi.is/is/mos/3557/

Re: ÓE að fá lánuð barnaheyrnahlífar

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 00:58
by gardara
Hvað með að vera alvöru og fá sér sérsmíðaðar heyrnasíur?

http://heyrn.is/tappar.html

....eða staðlaðar ef maður vill ekki punga út 30þús kalli í tappa (sem ég gerði nú reyndar)