Page 1 of 2
Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 12:33
by Jónas
Var í básum fyrir 2 vikum, eftir að hafa gengið fimmvörðuhálsinn og var dáldið vankaður á leiðinni heim.
Núna er það hinsvegar þannig að vegna Ultra-Maraþons þarf ég að komast inn í Þórsmörk, að krossá.
ooooog það eru c.a. 8 ár síðan að ég fór þangað, hvernig er að komast að krossá? Erfitt fyrir jeppling?
kv
Re: Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 12:37
by Steini B
Minnir að það sé nú ekkert mál að komast AÐ krossá, en yfir er annað mál

Re: Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 13:01
by bimmer
Hjólaði þetta í den þannig að þetta er ekkert mál fyrir jeppling.
Re: Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 13:18
by Jónas
Þarf nefninlega bara að komast AÐ henni,, er ekki göngubrú þarna yfir?

Re: Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 13:25
by Einarsss
jú það er göngubrú ... þú getur líka tekið rútu uppeftir frá bsí
Re: Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 13:40
by Jónas
Er að fara að skutla nokkrum fellow-Bootcömpurum í Ultra maraþonið yfir Laugaveginn,,
Skutla þeim í landmannalaugar og sæki þá svo í þórsmörk, en það er nóg að komast að Krossá.
Það er aðeins ódýrara að 5 deili með sér þessum bensínkostnaði í staðinn fyrir að þeir borgi 8000kr á mann í rútu

Re: Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 13:42
by gunnar
Ferð á hvaða Suzuki Vitöru eða álíka þarna yfir..
Veit ekki með Toyota Rav4 eða slíka bíla, fer eftir því hvar loftinntakið er á þessum bílum.
Re: Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 14:09
by Jónas
Gunni, þannig að ég ætti alveg auðveldlega að komast að Krossá á slyddujeppa?
Er einhver á sem ég þarf að fara yfir til að komast að henni?
Re: Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 15:19
by Dóri-
Krossá er mjög breytileg það er minnst í henni eldsnemma á morgnana eða seint á kvöldin.
Fór þarna yfir á breyttum hilux í fyrradag áin náði upp á hurðahúna straummegin.
Re: Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 15:47
by MR.BOOM
Það eru þrjú vöð sem þú þarft að skoða vel áður en þú lætur vaða í þau.
Fyrsta er neðra vaðið á Lóninu sem er yfirleitt létt yfirferðar,næst er Steiholtsáin
hún getur verið stórvarasöm illa búnum jeppum,mikil straumur getur verið í henni og hún vel djúp,síðast er það Grjótáin hún er eina stóra bergvatnsáin á leiðinni upp í mörk,hún er stundum vel kröpp að fara ofaní og ef eru leysingar þá djúp.
Besta ráðið ef þú ert ekki með það á hreinu hvernig á að fara yfir vöð,bíddu þá eftir betur búnum jeppa og fylgsdust hvering
hann ber sig að og fáðann til að hinkra eftir þér meðan þú bograst yfir.
Staumvötn eru hlutir sem menn leika sér ekki að,hef séð marga fara þarna illa í gegnum árin.
Re: Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 16:25
by Hreiðar
Það var Mazda jepplingur sem ætlaði yfir einhverja á þarna um helgina, held Mazda Tribute og hann komst ekki lengra en miðju og þá fór allt í kerfi í bílnum. Veit því miður ekki hvaða á, en ég held einhverja rétt áður en komið er að Krossá.
Re: Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 16:55
by Kristjan PGT
Hárrétt hjá sæma...þetta getur verið dýrt spaug.
En hvenrig bíll er þetta? Slyddujeppi og slyddujeppi er ekki það sama

Re: Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 17:23
by smamar
En krossáin liggur núna framhjá brúnni, þannig það er ekki hægt að nota brúnna nema stærsta partinn.
Sá einhverja túrista reyna að vaða restina veit ekki hvernig það gekk, annars eru allskonar bílar sem komast yfir krossá, það er bara velja besta vaðið.
Re: Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 18:49
by Jón Ragnar
Jónas wrote:Er að fara að skutla nokkrum fellow-Bootcömpurum í Ultra maraþonið yfir Laugaveginn,,
Skutla þeim í landmannalaugar og sæki þá svo í þórsmörk, en það er nóg að komast að Krossá.
Það er aðeins ódýrara að 5 deili með sér þessum bensínkostnaði í staðinn fyrir að þeir borgi 8000kr á mann í rútu

Ertu í bootcamp!
ég líka!

Re: Þórsmörk

Posted:
Wed 08. Jul 2009 18:57
by arnibjorn
John Rogers wrote:Jónas wrote:Er að fara að skutla nokkrum fellow-Bootcömpurum í Ultra maraþonið yfir Laugaveginn,,
Skutla þeim í landmannalaugar og sæki þá svo í þórsmörk, en það er nóg að komast að Krossá.
Það er aðeins ódýrara að 5 deili með sér þessum bensínkostnaði í staðinn fyrir að þeir borgi 8000kr á mann í rútu

Ertu í bootcamp!
ég líka!

Til hamingju.