bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Í leit að íbúð í Osló
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=38467
Page 1 of 1

Author:  JOGA [ Tue 07. Jul 2009 14:39 ]
Post subject:  Í leit að íbúð í Osló

Heil og sæl,

Ég er að fara að yfirgefa Skotlandið og er á leið til Noregs þar sem ég hef fundið mér vinnu. Er á fullu að reyna að finna íbúð og datt í hug að þreifa fyrir mér hér þar sem ég þykist vita að það séu nokkrir "norsarar" hér inni.

Er í fyrsta lagi að leita að ca. 3 herbergja íbúð í Nágrenni Osló með góðum samgöngumöguleikum niður í miðbæ. Barnvænt og rólegt hverfi helst. Eitthvað á þægilegri leigu þar sem maður er ekki ríkastur í heimi svona ný skriðinn úr námi.

Í öðru lagi langaði mig að athuga hvort einhver vissi um íbúð á vikuleigu frá og með næsta sunnudegi þar sem ég og konan ætlum út að leita að íbúð. Skiptir ekki öllu hvar hún er staðsett en þurfum bílastæði þar sem ég ætla að keyra kaggann frá Skotlandi.

Endilega látið mig vita ef þið vitið um eitthvað. PM líklegast best þar sem ég er enn úti í UK.

Author:  _Halli_ [ Wed 08. Jul 2009 01:06 ]
Post subject:  Re: Í leit að íbúð í Osló

http://www.finn.no/finn/realestate/lettings/browse2?parent=TOWN&drillkey=SUBTOWN&areaId=20061

Velur hverfið hérna, herbergjafjölda o.s.frv. mjög fínt leitarkerfi. Getur prufað að fletta hverfunum upp á Google og skoðað borgina á Google Maps og fundið út þannig hvernig hverfin eru. Mikið af upplýsingum sem hægt er að finna með því.
Ég er t.d. að flytja í Uranienborg-Majorstuen og það er mjög fínt og rólegt hverfi í nánd við konungshöllina.

Annars eiga Sankthanshaugen, Nordstrand, Sagene og Torshov að vera mjög fín hverfi. Grünerløkka er einnig fínt, en frekar svona "busy" hverfi.

Edit: Svo þekki ég stelpu sem er í námi í Osló sem býr í Holmenkollen og hún segir að það sé mjög fínt, og þægilega staðsett til að komast í bæinn o.fl.

Author:  JOGA [ Wed 08. Jul 2009 12:09 ]
Post subject:  Re: Í leit að íbúð í Osló

Takk fyrir þetta Halli,

Ég vissi af Finn.no hef notað það slatta en það er svolítið erfitt þegar maður er ekki á staðnum.
Förum þess vegna út að skoða í næstu viku.

En ég hef þessi hverfi í huga. Mjög gott af fá svona hint :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/