Heil og sæl,
Ég er að fara að yfirgefa Skotlandið og er á leið til Noregs þar sem ég hef fundið mér vinnu. Er á fullu að reyna að finna íbúð og datt í hug að þreifa fyrir mér hér þar sem ég þykist vita að það séu nokkrir "norsarar" hér inni.
Er í fyrsta lagi að leita að ca. 3 herbergja íbúð í Nágrenni Osló með góðum samgöngumöguleikum niður í miðbæ. Barnvænt og rólegt hverfi helst. Eitthvað á þægilegri leigu þar sem maður er ekki ríkastur í heimi svona ný skriðinn úr námi.
Í öðru lagi langaði mig að athuga hvort einhver vissi um íbúð á vikuleigu frá og með næsta sunnudegi þar sem ég og konan ætlum út að leita að íbúð. Skiptir ekki öllu hvar hún er staðsett en þurfum bílastæði þar sem ég ætla að keyra kaggann frá Skotlandi.
Endilega látið mig vita ef þið vitið um eitthvað. PM líklegast best þar sem ég er enn úti í UK.
