Ég er með slatta af bílablöðum... ábyggilega hátt í 100 kg sem mig vantar að losna við.
Þetta er mestmegnis EVO blöð held öll blöðin frá því apríl 2001 til loka 2008.
Síðan er ég líka með slatta af Total BMW og eitthvað af fleiri blöðum. Man ekki tímabilið á Total BMW blöðunum en væntanlega eitthvað á bilinu 2003-2007.
Ég sé því miður ekki fram á að fletta í þessu aftur í tímann, hef varla gert það hingað til svo þau fást gefins gegn því að vera sótt.
Ef einhver vill þessi blöð þá endilega hafið samband við mig í PM þar sem ég vil losna við þetta sem fyrst.

(fannst betra að setja þetta í "Off topic" en "Flóamarkaðinn" þar sem þetta er gefins en ekki til sölu, annars mega stjórnendur endilega færa þetta ef þeim finnst þetta betur eiga heima annars staðar.)
_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR