bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 10:31

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 6 posts ] 
Author Message
PostPosted: Mon 15. Jun 2009 13:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 11. Mar 2004 18:20
Posts: 2074
Location: Keflavík
Getur einhver frætt mig á því að flytja bíl yfir til Noregs. Get ég haft hann á Íslenskum númerum í einhvern tíma?

_________________
Gunni 8663170

BMW M5 Anthrazit Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 15. Jun 2009 13:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Myndi hafa samband við tryggingarfélagið þitt (þarft að fá "græna kortið" fyrir bílinn etc.) og lánastofnunina (ef þú ert með lán á bílnum).

Held að það séu fyrstu skrefin.

Því næst myndi ég hafa samband við þann sem myndi flytja bílinn (Eimskip / Samskip) og ath. hvaða pappíra þú þarft svo að þeir telji sig hafa leyfi fyrir flutningnum. Ef þú ert t.d. með lán á bílnum þá þarf held ég að fylgja veðbókarvottorð eða leyfi frá lánveitanda, svo og leyfi frá þeim sem tryggir bílinn (a.k.a. "græna kortið").

Þetta gæti verið vesen ef þú ert með lán á bílnum (þeir vilja vera alveg vissir um að þú standir við þína samninga gagnvart þeim).

Með tollamál... er ég ekki alveg viss, fer eflaust eftir því hvort að þú sért tímabundið í landinu eða ekki.

Hvað varðar skoðun á bíl með íslensk númer þá ættir þú að vera nokkuð safe ef þú ferð á viðurkennda skoðunarstöð úti og lætur senda pappírana hingað (kannski Bimmer eða Alpina gætu frætt þig meira um það).

Þetta eru amk. nokkrir punktar sem þú verður að ath., vona að þetta hjálpi.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 15. Jun 2009 17:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
http://hallonorden.org/forside/ice/forside/norge/generelt-om-flytning-til-norge/bil.aspx

Quote:
Bifreiðar

Ekki er hægt að taka vélknúin farartæki með búslóðinni til Noregs án þess að greiða tolla af þeim. Nánari upplýsingar um tollskráningu á farartækjum og upphæð tolla eru á vef Tollstofu (Tollvesenet).

Áður en bifreiðin er tekin til landsins er mikilvægt að afla sér upplýsinga hjá Umferðarstofu (Statens vegvesen) (Vegvesen.no), um tæknikröfur sem gerðar eru til farartækisins áður en það fær norsk skráningarmerki. Einnig er mikilvægt að kanna útflutningsreglur hjá yfirvöldum í brottflutningslandinu.

Pendlarar og fólk sem býr tímabundið í Noregi

Einstaklingar sem búsettir eru erlendis og uppfylla öll skilyrði mega aka um í Noregi í bifreið á erlendu skráningarmerki. Þetta á við fólk sem vinnur tímabundið í Noregi eða pendlar á milli vinnustaðar í Noregi og heimilis í öðru landi.

Ef einstaklingar hyggjast dveljast allt að eitt ár í Noregi þurfa þeir ekki að sækja um ökuleyfi hjá Tollstofu. Skjöl sem staðfesta að um tímabundna dvöl sé að ræða verða alltaf að vera í farartækinu. Ef dvölin í Noregi er framlengd í allt að tveimur árum þarf að sækja um ökuleyfi. Umsóknin er send Tollstofu (Tollvesenet) áður en ár er liðið frá því að sest var að í Noregi. Ef breytingar hafa orðið á starfsráðningu á árinu ber að tilkynna það strax til Tollstofu (Toll).

Einstaklingar sem pendla á milli Noregs og annars lands geta í vissum tilvikum notað farartæki í Noregi sem skráð er í öðru landi. Þá er annað hvort farið fram á að einstaklingurinn pendli daglega eða dveljist erlendis í að minnsta kosti 185 daga á 12 mánaða tímabili. Hann má ekki vera með norskt lögheimili, né heldur maki hans og börn undir 18 ára aldri. Nánari upplýsingar á vef Tollstofu (Toll).

Reglur um tollfrjálsan innflutning og tímabundinn akstur er að finna í fyrirmælum um tollfrjálsan innflutning og tímabundin not af erlendri bifreið í Noregi (Toll). Fyrirmælin eiga einnig við um hengivagna og hjólhúsi.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 15. Jun 2009 18:20 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Tue 29. Jan 2008 00:18
Posts: 663
farðu bara inná http://www.vinnumalastofnun.is þar eru allar upplýsingar sem þú þarft, en getur ekki tekið bíl sem er með lán á sér.!

EDIT http://www.eures.is/atvinnuleitandi/gatlistar/#Nordurlond

_________________
:naughty:


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 15. Jun 2009 18:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Bui wrote:
farðu bara inná http://www.vinnumalastofnun.is þar eru allar upplýsingar sem þú þarft, en getur ekki tekið bíl sem er með lán á sér.!

EDIT http://www.eures.is/atvinnuleitandi/gatlistar/#Nordurlond


Tjah, eins og ég sagði í póstinum að ofan, þú maður getur það, en það er vesen (og líklega bara geðþóttarákvörðun lánveitanda sem gildir).

Ég og einn annar stóðum í svona fyrir ekki svo mörgum dögum. Þeir eru alveg tilbúnir í að búa til vesen úr þessu en sem betur fer þá var þetta rétt nægilega vel undirbúið í okkar tilfelli og málið fór vel.

Ég hugsa samt að þumalputtareglan sé sú að lánabílar fái ekki að fara úr landi.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 15. Jun 2009 19:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 11. Mar 2004 18:20
Posts: 2074
Location: Keflavík
Já það verður ekkert lán á bílnum.. En þakka fyrir þessa upplýsingar

_________________
Gunni 8663170

BMW M5 Anthrazit Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 6 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group