Page 1 of 1

Prumpubílar

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 19:46
by zazou
Í fréttum Stöðvar 2 um daginn var rætt um konversjón venjulegra bíla yfir í metan. Mín tilfinning/innsæi segir mér að vélin verði aflminni þegar hún er knúin af prumpi - þekkir einhver staðreyndirnar?

Ég veit að vinsæl breyting í Bretlandi er að breyta bensínvélum yfir í LPG og þar tapast umtalsvert afl.

Re: Prumpubílar

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 20:05
by Lindemann
jú það tapast dálítið afl við þetta og bætist við slatta þyngd líka.

Það er ekkert stórmál að breyta bíl svona, þarf bara að koma fyrir auka spíssum í soggreinina og finna pláss fyrir kútana....annað er bara svona dútl.

Re: Prumpubílar

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 21:02
by ss
þetta er reyndar smá rafmagnsvesen líka, en aflið sem tapast er bara nokkur prósent