Page 1 of 1

ólykt úr miðstöð á skoda

PostPosted: Sun 07. Jun 2009 15:54
by Zed III
ég er að fá smá ólykt úr miðstöðinni minni á octaviu þegar loftkælingin er ekki í gangi. Þetta er svolítið súr lykt, eins og eitthvað hafi blotað og sé að súrna. Einhverjar hugmyndir ?

Re: ólykt úr miðstöð á skoda

PostPosted: Sun 07. Jun 2009 16:29
by Saxi
Man eftir að hafa lesið um "moldy sock smell" úr miðstöðvum á x5world einhverntíma. Hvort það voru ónýtar frjókornasíur eða eitthvað annað man ég ekki alveg. Getur prufað að nota leitina á spjallinu hjá þeim

http://www.xoutpost.com/bmw-sav-forums/x5-e53-forum/

kv.
Egill

Re: ólykt úr miðstöð á skoda

PostPosted: Sun 07. Jun 2009 19:47
by Örvar A
Lenti einu sinni í þessu þegar fugl fór í þúsund parta yfir vél í bíl sem ég átti. Lausn: þrífa vélina nokkrum sinnum og drífa í því. Það er mjög leiðinlegt að þrífa gamalt harðnað blóð.

Re: ólykt úr miðstöð á skoda

PostPosted: Sun 07. Jun 2009 22:09
by Bjarkih
Það er hægt að kaupa sprey til að losna við svona, sá svoleiðis t.d. í Würth.

Re: ólykt úr miðstöð á skoda

PostPosted: Mon 08. Jun 2009 12:09
by pes1
þetta er þekkt vandamál, prufaðu að skipta um frjókornasiu og síðan að dæla air condition hreinsi inn í miðstöðina

Re: ólykt úr miðstöð á skoda

PostPosted: Mon 08. Jun 2009 12:23
by Zed III
pes1 wrote:þetta er þekkt vandamál, prufaðu að skipta um frjókornasiu og síðan að dæla air condition hreinsi inn í miðstöðina


testa þetta. Þarf spes air condition hreinsir eða er þetta allt eins ?

Re: ólykt úr miðstöð á skoda

PostPosted: Mon 08. Jun 2009 14:12
by SteiniDJ
Ég er með þetta vandamál á mínum og frjókornasíuskipti gerði ekkert til að bæta það. Spurning um að prófa þennan hreinsi?

Re: ólykt úr miðstöð á skoda

PostPosted: Mon 08. Jun 2009 19:58
by pes1
Zed III wrote:
pes1 wrote:þetta er þekkt vandamál, prufaðu að skipta um frjókornasiu og síðan að dæla air condition hreinsi inn í miðstöðina


testa þetta. Þarf spes air condition hreinsir eða er þetta allt eins ?


Wurth selur þetta, eins er Toyota með svona hreinsi, geri ráð fyrir því að flest umboðin séu með þetta, allt sami skíturinn geri ég ráð fyrir, það er ágætt að kaupa nýja fjókornasíu og dæla vel af hreinsi í hana, síðan dæliru bara inn í miðstöðina og mannst svo að loka fyrir allar ristarnar :) og svo setur þú miðstöðina bara í botn