Page 1 of 2
911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sat 06. Jun 2009 13:46
by Kristjan
viewtopic.php?f=19&t=37719Þetta er rosalegur bíll, mig langaði bara aðeins að commenta á þennan fyrst að það er ekki hægt í söluþræðinum...
Er einhver markaður fyrir þetta hér á landi í augnablikinu? Hefur hann verið auglýstur erlendis...
Svo langaði mig að heyra hvaða reynslu menn hafa af því að selja bíla út?
Re: 911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sat 06. Jun 2009 13:59
by gardara
uss vonandi verður hann ekki seldur úr landi
Re: 911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sat 06. Jun 2009 14:07
by Djofullinn
Ég held að það séu litlar líkur á því að hann verði seldur á Íslandi, því miður.

Re: 911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sat 06. Jun 2009 14:23
by SteiniDJ
Já, þetta er
flottur bíll! Held að þetta verð sé meira en réttlætanlegt þegar svona moli er á ferð.

Væri gaman ef næsti eigandi væri Íslendingur.
Re: 911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sat 06. Jun 2009 14:27
by Spiderman
Geðveikur bíll!
Verðið er í fullu samræmi við söluverð svona bíla erlendis.
En...... þeir sem hafa áhuga á þessum bíl hér á landi vita flestir á hvaða verði hann fór þegar hann var seldur árið 2004 og þ.a.l. finnst mér ólíklegt að menn borgi þetta verð fyrir hann í dag.
Ég veit að þetta eru kjánaleg rök en þetta er staðreynd.
Sölumöguleikarnar eru erlendis, ítreka að það er ekkert að verðinu.
Re: 911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sat 06. Jun 2009 16:38
by bebecar
Spiderman wrote:Geðveikur bíll!
Verðið er í fullu samræmi við söluverð svona bíla erlendis.
En...... þeir sem hafa áhuga á þessum bíl hér á landi vita flestir á hvaða verði hann fór þegar hann var seldur árið 2004 og þ.a.l. finnst mér ólíklegt að menn borgi þetta verð fyrir hann í dag.
Ég veit að þetta eru kjánaleg rök en þetta er staðreynd.
Sölumöguleikarnar eru erlendis, ítreka að það er ekkert að verðinu.
Rek undir þetta - verðið er í fínu lagi miðað við eintakið per se, en maður á dálítið erfitt með að borga premiumið þegar maður veit hvað hann fór á síðast. En svo má kannski prútta eitthvað...
Þessir bílar eru miklir safngripir eins og allir vita og það má alltaf bara hanga á þessu - það er örugglega öruggara peningalega séð en að eiga pening inni á bankabók!
Re: 911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sat 06. Jun 2009 20:17
by Alpina
Fáránlegt að velta sér uppúr því hvað bíllinn fór á síðast,,
það voru annaðhvort góð kaup,, eða slæm sala
þetta er BARA í lagi
Re: 911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sat 06. Jun 2009 20:21
by ///MR HUNG
Alpina wrote:Fáránlegt að velta sér uppúr því hvað bíllinn fór á síðast,,
það voru annaðhvort góð kaup,, eða slæm sala
þetta er BARA í lagi
Nákvæmlega.
Það kemur bara málinu ekkert við,Á maður að þurfa að sýna afsal frá því að bíll var keyptur þegar maður er að selja

Re: 911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sat 06. Jun 2009 20:24
by Arnarf
Hvað var hann seldur síðast á?
Re: 911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sat 06. Jun 2009 21:16
by 98.OKT
Arnarf wrote:Hvað var hann seldur síðast á?
Einhversstaðar heyrði ég að það hafi verið rétt rúmlega 2 millur, en ég ætla samt ekki að fullyrða það...
Re: 911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sat 06. Jun 2009 21:33
by jens
Alveg óháð þeim bíl sem hefur komið fyrir í þessum þræði og legg ég til að við tölum almennt um sérstaka bíla.
Jújú skil að það sé miðað við verð erlendis en verð á bílnum hér heima hlítur að endurspegla framboð og eftirspurn hér heima, einnig efnahag. Hvað gerist ef ég finn bíl erlendis sem er undir gangverði hér heima, á það sjálfkrafa að miða við það.
Re: 911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sat 06. Jun 2009 21:58
by SteiniDJ
Svo hækka bara svona góðir bílar í verði, bara með tímanum, ekki satt?
Re: 911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sat 06. Jun 2009 22:06
by Thrullerinn
SteiniDJ wrote:Svo hækka bara svona góðir bílar í verði, bara með tímanum, ekki satt?
En 5,5 eru heilmargir peningar..
En kannski er þetta bara það sem þessu bíll kostar.
Skoðaði hann um daginn, var parkeraður fyrir utan BYKO, þetta er rosalegt eintak.
Annars finnst mér þessi litur ekki góður, það er spurning hvort hann sé original?
Re: 911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sun 07. Jun 2009 01:04
by bebecar
Mér finnst þessi litur alveg mergjaður og kombóið 100% reyndar....
Ég gæti sem best trúað að einhver nojari hirði bílinn fljótlega...
Ef ég væri með svona grip í höndunum þá væri ég ekki til í að selja hann á því verði sem hann fór á síðast heldur... það var bara silly prís en það má kannski vera eitthvað á milli og verður það eflaust ef bíllinn selst (sérstaklega ef það er cash...) Það mætti alveg eins stinga þessum bíl inn í skúr og biðja um tvöfalt hærra verð eftir 10 ár án vandræða.
Ég er náttúrulega bara abbó sko, myndi kaupa hann strax ef hann væri nær minni kaupgetu

Vil reyndar bæta við að auðvitað skiptir verðið áður máli og Jens hefur lög að mæla í sínu innleggi líka.
Re: 911 Turbo í flóamarkaðinum... dayyuuumm

Posted:
Sun 07. Jun 2009 09:36
by Alpina
Verðið ereflaust miðað við verð á Erlendum mörkuðum,, einnig eru öll gjöld greidd af þessum bíl,,
Aksturinn er fásinnu lítill,,
bíllinn er í sérflokki ,, á öllum sviðum, og stigum
en eins og Þröstur sagði,, ég er á sama máli,, finnst liturinn ekkert spes,, (( en ég ætti alveg að þekkja slíka gagnrýni !!!!!!!!!! ))
en mörgum finnst þetta MERGJAÐ,, og það er það sem skiptir máli
ef menn eru að velta sér uppúr áður uppgreiddu verði .. þá kemur það þessari sölu ekkert við..
þessi bíll er í sérflokki,, og án vafa er erfitt að finna bíl sem ber jafnmikla reisn með sér og þessi bíll,,,
Alveg hreint mergjað eintak