OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Kristjan » Thu 28. May 2009 00:09

7 sæta bíll, 6 gíra helst, möguleiki á dráttarkróki...

Hvað er í boði? Þekkir þetta einhver? Fart, ert þú ekki á Renault?

Einhverjir aðrir hérna sem eiga bíl með svona specs?
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby SteiniDJ » Thu 28. May 2009 00:20

Veit ekki með gírafjölda, en Volvo hefur oft komið með sæti í skottinu. Svo er líka hægt að fá endalaust af jeppum (eins og Pajero) með aftursætum. Áttum einusinni þannig (2nd gen) sem var truflaður í alla staði.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Kristjan » Thu 28. May 2009 00:23

Enga jeppa eða jepplinga... ugh
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Mánisnær » Thu 28. May 2009 00:35

Hyundai Starex. Vinur minn var að selja einn í dag fyrir aðeins 350.000kr. 7 sæta með krók og bsk.
AggiM5 wrote:hi eg a felgur sem passa undid 39 . crom 8.5 brei mer miðiju ringgin og mer dekk lika vittur komma ad skoda?
User avatar
Mánisnær
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1770
Joined: Tue 22. Mar 2005 12:31
Location: Vesturbæ Reykjavíkur

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Kristjan » Thu 28. May 2009 00:46

málið með 6 gíra er að hann verður að geta rúntað á hraðbrautum á sæmilega lágum snúningi upp á eyðsluna að gera...
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Schulii » Thu 28. May 2009 00:53

Var ekki Opel Zafira eitthvað svona...??
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Kristjan » Thu 28. May 2009 00:55

Hyundai, Opel... uggghhh
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Saxi » Thu 28. May 2009 01:19

Audi A6 2,5d fæst 7 sæta og 6 gíra

kv
Egill H
Saxi
Saxi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 865
Joined: Tue 01. Nov 2005 12:38
Location: Höfuðstaðurinn

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby HAMAR » Thu 28. May 2009 02:00

Mercedes Benz W211 touring býður upp á 7 sæti.
BMW X5 nýji er fáanlegur 7 sæta.
Er ekki nógu fróður um óæðri bíltegundirnar til að getað bent á slíkt.
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(
User avatar
HAMAR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2232
Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Location: ókunnug.

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby íbbi_ » Thu 28. May 2009 02:14

kristján fæstir 6gíra bílar sem eru ekki sportbílar nota 6gírinn sem "sparigír" heldur er voðalega oft verið að hafa þá 6 gíra til þess að geta haft lægri hlutföll
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Jónki 320i ´84 » Thu 28. May 2009 03:20

Renault Megane Scenic II.

Fæst sjö sæta og sex gíra.

Einnig er hægt að fá hann 2.0L bensín eða 1.9L dísel.
Jónki
325i ´90 e30 M-techII
320i ´84 e30 Seldur
Vantar þig viðgerð á bílnum S:697-9021
Image
User avatar
Jónki 320i ´84
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1494
Joined: Sun 08. Jun 2003 03:11
Location: Reykjavík

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Svessi » Thu 28. May 2009 03:42

Veit ekki, en kannski get ég eitthvað hjálpað, hef keyrt þá nokkra strumpastrætóana og sendibílana.

Þarf aðeins að fá meiri info frá þér.

Hvað ertu að spá í að gera? Og í hvað ætlaru almennilega að nota bílinn?

Info-ið sem ég hef núna er að þú villt 7 sæta bíl, semsagt 6 farþega, rétt?
Þetta skiptir dálítið miklu máli, hvort þú ert að tala um 6 eða 7 farþega, 7 eða 8 manna.
Getur verið að tala um alveg sitthvora stærðina af bílnum, bara við þetta eina auka sæti.
Ertu að fara nota öll sætin, keyra bílinn fullann af fólki á hraðbraut eða villtu bara þessa stærð af bíl?

Villtu bíl sem þú getur verið með full lestaðann af fólki og geta cruizað á 160-180 á hraðbrautinni eða er nóg að geta verið á 110-120?

Svo líka hafa í huga að ef þú ert með 7 manns í bíl, þá ertu að tala um 550-700 kg pakka bara í kjöti, og það er mjög misjafnt hvernig bílar höndla það á 140-150 km hraða.

Eru þetta eitthvað af krökkum eða allt fullorðnir karlmenn?

Þú villt mögulega dráttarkrók. Hvað ætlaru að fara að draga? Stóra kerru með bíl aftaná, eða littla kerru?

Þú ætlar þér greinilega að fara til evrópu.

Ertu að hugsa um að kaupa bílinn hér heima og fara með út, kaupa bílinn úti, eða leiga bíl?
Ef þú ætlar að kaupa, hvað má hann kosta, hve gamall og hversu mikið ekinn má hann vera?

Og hvað ertu að spá, villtu bíl eins og Opel Zafira, þar sem þú setur tvo farþega í yoga stellingu og límir þá saman og treður í öftustu sætin eða geturu hugsað þér einhvern strumpastrætó (Dodge Caravan, Kia Carnival) eða sendibíl með sætum eins og VW Caravelle eða álíka.

Villtu bensín eða disel.

Af því sem er í boða hérna heima, þá myndi ég horfa á bíla eins og Dodge Grand Caravan (Grand stendur fyrir lengri gerðina) Plymouth Voyager, Town&Country (Þetta er allt sami bíllinn).
Ef þú ætlar þér að nota þetta í einhverja fólksflutninga og hraðbrautaakstur myndi ég ekki horfa á bíl með minna en 3,3 vélinni, helst 3,8. Og mikið af þessum bílum eru með krók.
Alveg ásættanleg sæti fyrir 7 manns, ekkert of stórir, höndla ágætlega og eyða ekkert miklu miðað við stærð.
Family-an mín er búin að eiga tvo svona, annar var ´97 með 2,4l 150hp 1700 kg með þriggja þrepa ssk og var að eyða í kringum 14-15 innanbæjar og 9 á langkeyrslu. Núna erum við með ´06 með 3,8 215hp 2000 kg með fjögra þrepa ssk og hann er að eyða 15-17 innanbæjar, fer dálítið eftir því hvernig hann er ekinn, og fer í 9,5 á langkeyrslu (miðað við 100-110 km jafnann hraða).
Bara svona til viðmiðunnar þá tekur 3.8 bíllinn Toyota Corolla 1.6 í spyrnu.
2,4 bíllinn er með topspeed 160 tómur, en 3,8 veit ekki með top speed en vel hægt að cruiz-a á 170-180 á hraðbraut hálf fullann.
Eina sem ég veit að maður þarf að passa sig á er að sjálfskiptingarnar í þessum bilum haf ekki verið neitt rosalega sterkar, í bílum sem hafa ekki fengið almennilega meðferð eða mikið í því að draga þungar kerrur, hjólhýsi hafa ssk farið í sirka 150 þús km.

Getur líka horft á Ford Windstar en það er minn af þeim hérna heima og það eru ekki eins góðir og þægilegir bílar, þeir eyða líka meira.

Svo geturu horft á bíla eins og Hyundai Starex, VW Caravelle, Benz Vito, Renault Trafic, Ford Transit. Gallinn er bara sá að þeir eru eiginlega allir með svo littler vélar hérna heima frá 75-110 hp og eru þetta 1500-2000 kg í eiginþyngd, vélar sem gera ekkert meira en að koma þér frá A til B.

Getur fengið Toyota Hiace með sæmilegum vélum hérna heima en þeir eru bara dýrir, mikið sett á þá notaða.

Erlendis geturu fengið þessa bíla með 170-200+ hp vélum sem geta náð þessum bílum í kringum og yfir 200 km hraða.
Sem dæmi: getur t.d. fengið VW caravelle með VR6 mótor. Starex geturu fengið með 175 hp vél og Vito-inn með 205 hp.
Og ég veit til þess að hægt er að fá Benz Sprinter með vél sem hægt er að halda á 160 km hraða á hraðbraut, nokkuð gott fyrir svona stórann bíl.
Þeir Sprinterar sem ég hef prófa hér heima hafa rétt verið að slefa yfir 115 km hraða með allt í botni.

Allavega nóg af röfli í mér í bili, kannski ertu að pæla í einhverju allt öðru.
Ef þú hefur einhvern bíla í huga, láttu okkur vita.

Meira info frá þér, frekari upplýsingar og hjálp frá mér/okkur.
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby fart » Thu 28. May 2009 07:25

Ég er búinn að keyra nokkra svona en að mínu mati er Renault Espace kóngurinn í bransanum. Það eina sem ég get fundið að þeim bíl er að hann er ekki með rennihurðar, en það kemur í Espace V á næsta ári.

Það er í raun enginn annar bíll í þessum flokki sem er eins fjölhæfur. Það er hægt að taka öll sætin (fyrir utan framsætin) úr bílnum ef það þarf að flytja eitthvað. Það er hægt að snúa þeim á móti hvorum öðrum ef menn vilja taka spjallið á þetta í ferðalagi, aftursætin eru öll eins og eru "full size".

Minn er er styttri típan en næsti bíll hjá mér verður annar eins nema Grand (munar einhverjum tugum sentimetra á lengd) því að skottið fyrir aftan öftustu sætin er frekar lítið í mínum, en á móti er hann afburðarlipur innanbæjar og að leggja í stæði. Hann er t.d. töluvert styttri en E60. Ég hef átt hann í tvö og hálft ár og get bara ekki lastað bílinn. N.b. svona bíl kaupir maður ekki útaf lookinu en sama á við um klósettpappír eða flugmiða. Í báðum tilvikum er það Þægindi/verð sem gilda. Mér er t.d. alveg sama hvort það er Boeing eða Airbus sem ég flýg í, og í hvaða lit viðkomandi flugvél er. það sem skiptir máli eru sætin, plássið, verðið og í einhverjum tilvikum þjónustan um borð.

Það skal taka fram að minn er "að sjálfsögðu" dýrasta týpan (fyrir utan að vera ekki Lengri típan) 3.0dci Initiale "paris" og þar að auki "Movicar" með innbyggðu DVD í höfðupúðunum, leður og alcantara, panorama þakinu, rafmagn í öllu draslinu, AC og Krús, Navi og góðar græjur, BiXenon, armpúðar á línua og sjálfskiptur. Svona bíll kostar skv. verðlista rúman €50.000 euro síðast þegar ég kannaði, en líkt og annað Franskt/Sænskt þá kaupir maður ekki svona bíl "úr kassanum" því að þetta skítfellur í verði fyrstu tvö árin.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby bebecar » Thu 28. May 2009 08:04

Ef þig vantar eitthvað þokkalega hagkvæmt, mátulega áreiðanlegt og ódýrt til að túra um Evrópu á þá eru Ford Galaxy vinsælir hérna úti í þetta og eins VW Touran. Persónulega myndi ég taka VW bílinn en hann er minni (en fæst með nokkuð góðri dísilvél sem er algjör sparibaukur).

Svo mætti líka skoða vel viðhaldna Vito eða Caravelle - hvorutveggja geta verið mjög töff ef rétt er haldið á spilunum og eru rúmgóðir (Vito ryðgar þó mjög mikið og ég veit ekki með aðra galla - en þarf af þeim sökum að vera í mjög góðu standi)... Caravelle er vinsæll sem leigubíll og er ágætur þó þeir hafi nú verið með eitthvað smá pikkles líka....

Image

Eða yngsta gerðin:
Image

Touran:
Image

Vito:
Image

Og svo Caravelle:
Image

Hinsvegar er ég alveg sammála því að Espace er kóngurinn í þessum geira og fyrsti bíllinn sem fór þessa braut....
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Einarsss » Thu 28. May 2009 08:09

átti Mazda 5 fyrir ca 2 árum sem var fínn í fjölskylduna og tók 6 farþega+ökumann og nokkuð þægilegt tæki. Kom með 2L 4cyl vél sem skilaði 160hp, rennihurðar og fínt pláss í skottinu þó öftustu sætin hafi verið sett upp. Fínt nota gildi en lítil akstursánægja
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 42 guests