Page 1 of 2
Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 11:40
by ValliFudd
http://www.visir.is/article/20090525/FRETTIR01/491651432/-130 km mjög víða..
Hugmyndir og tillögur
- Bústaðavegur, frá gatnamótum við Sæbraut, verði breytt í 30 kílómetra svæði vestur Háaleitisbraut.
- Loks skorar borgarráð á Ríkisstjórn á Vegagerðina að ganga nú þegar til viðræðna við Reykjavíkurborg um tvöföldun Vesturlandsvegar um Kjalarnes alla leið frá Ártúnsbrekku að Hvalfjarðargöngum.
Samþykkt nú þegar
- Undirbúningur á 30 km hámarkshraða á Hringbraut, sem nái frá gatnamótum Hringbrautar og Sæmundargötu á móts við Háskóla Íslands allt vestur að hringtorgi við Ánanaust.
- Háaleitisbraut gerð að 30 kílómetra svæði
- Bústaðavegur frá gatnamótum við Sæbraut verði gerður að 30 km svæði vestur að Háaleitisbraut.
- Hofsvallagata verði öll gerð að 30 kílómetra svæði
- Umferðarljós fyrir vinstri beygju Miklubrautar og Grensásvegar
Re: Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 11:49
by Axel Jóhann
Þetta er ekki sniðugt.
Re: Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 12:32
by SteiniDJ
Það hefur verið margsannað að lækkun hámarkshraða bæti ekkert.

Re: Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 12:46
by Svezel
Mér finnast þetta bara ágætar tillögur, þröngar og hættulegar götur sem eru nálægt skólum og íbúðarhúsnæði.
Re: Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 15:36
by Geirinn
Spikfeita umferðarteppa (ef fólk fer þá eftir þessu yfir höfuð).
Re: Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 17:17
by 20"Tommi
Hærri sektir ..!!! meira í kassann það er málið
Re: Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 17:51
by Maddi..
Þetta er bjánalegt.
Re: Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 18:24
by Steinieini
Felur í sér mikil þægindi.
Þarf aldrei að skipta úr fyrsta gír

Re: Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 18:30
by Hlynur___
Geirinn wrote:Spikfeita umferðarteppa (ef fólk fer þá eftir þessu yfir höfuð).
já einmitt, meiri mengun er málið
Re: Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 20:47
by Danni
Finnst alveg vanta í þetta hver núverandi hámarkshraði er fyrir þá sem að búa ekki þarna í kring og vita ekkert hvaða götur er verið að tala um...
Re: Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 20:54
by Alpina
Hækkann í 80

Re: Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 22:07
by Schulii
Hámarkshraði í flestum tilfellum þarna er 50.
Re: Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 22:35
by iar
Svezel wrote:Mér finnast þetta bara ágætar tillögur, þröngar og hættulegar götur sem eru nálægt skólum og íbúðarhúsnæði.
Sammála því en set samt smá spurningamerki með að fara alveg niður í 30km á Bústaðavegi og Hringbraut. Hringbrautin er reyndar alveg skelfileg, þröng og með bílastæðum meðfram sem gerir hana alveg blinda og má búast við hverju sem er skjótast út á milli bíla og má alveg bæta það eitthvað og kannski er 30km bara málið..
Re: Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 23:14
by gunnar
iar wrote:Svezel wrote:Mér finnast þetta bara ágætar tillögur, þröngar og hættulegar götur sem eru nálægt skólum og íbúðarhúsnæði.
Sammála því en set samt smá spurningamerki með að fara alveg niður í 30km á Bústaðavegi og Hringbraut. Hringbrautin er reyndar alveg skelfileg, þröng og með bílastæðum meðfram sem gerir hana alveg blinda og má búast við hverju sem er skjótast út á milli bíla og má alveg bæta það eitthvað og kannski er 30km bara málið..
Hringbrautin er alveg stórhættuleg, fjölskylda kærustunnar minnar býr við Hringbrautina og ég þakka bara fyrir að hafa ekki lent í árekstri þarna við að skjótast inn á götuna

Re: Ólafur vill lækka hámarkshraða

Posted:
Mon 25. May 2009 23:28
by IvanAnders
Ég bý á þeim hluta Háaleitisbrautar sem búið er að lækka hraðann niður í 30km/klst og setja götuna alveg í keng til að menn séu ekki að fara hraðar.
Þetta böggar mig ekki neitt, og finnst mér þetta mjög jákvætt, þar sem það er grunnskóli og íþróttaheimili öðru megin við götuna, sem börn beggja megin við götuna sækja.
Hins vegar sé ég enga ástæðu fyrir því að setja 30 á alla Háaleitisbrautina!
Fínt eins og þetta er!
Einnig finnst mér algjör óþarfi að setja 30 á Bústaðarveginn!
Fullt af ljósastýrðum gatnamótum, sem og gangbraut með ljósum!
Annars er ég alveg fylgjandi restinni!