Page 1 of 1

Djöfulsins snillingur

PostPosted: Sat 23. May 2009 12:11
by bimmer
http://www.visir.is/article/20090523/FR ... 0643554/-1

"Reiður vegfarandi í Peking hrinti manni fram af brú í borginni eftir að maðurinn hafði tafið umferð í fimm klukkustundir með því að hóta að kasta sér fram af brúnni.

Vegfarandinn smeygði sér framhjá lögreglumönnum, kvaddi sjálfsmorðskandidatinn með handabandi og hrinti honum svo.

Sem betur fer hafði lögreglan komið fyrir loftdýnum undir brúnni þannig að sá sem sjálfsmorðinu hótaði slapp með smávægileg bakmeiðsli.

Vegfarandinn sem rétti honum hjálparhönd var hinsvegar handtekinn. "

Re: Djöfulsins snillingur

PostPosted: Sat 23. May 2009 12:17
by Zatz
Sé sammt ekki af hverju hann megi ekki hjálpa honum en lögreglan má -.-

Re: Djöfulsins snillingur

PostPosted: Sat 23. May 2009 12:18
by ValliFudd
Haha, skil þennan gaur VEL!
Gaman að vera fastur í umferðarteppu vegna athyglissýki.. Ef hann hefði ætlað að gera þetta, hefði hann varla beðið eftir lögreglunni, og svo eftir því að dýna yrði sett fyrir neðan hann :alien:

Re: Djöfulsins snillingur

PostPosted: Sat 23. May 2009 15:32
by Stanky
ValliFudd wrote:Haha, skil þennan gaur VEL!
Gaman að vera fastur í umferðarteppu vegna athyglissýki.. Ef hann hefði ætlað að gera þetta, hefði hann varla beðið eftir lögreglunni, og svo eftir því að dýna yrði sett fyrir neðan hann :alien:


:shock:

Re: Djöfulsins snillingur

PostPosted: Sat 23. May 2009 18:46
by ValliFudd
Stanky wrote:
ValliFudd wrote:Haha, skil þennan gaur VEL!
Gaman að vera fastur í umferðarteppu vegna athyglissýki.. Ef hann hefði ætlað að gera þetta, hefði hann varla beðið eftir lögreglunni, og svo eftir því að dýna yrði sett fyrir neðan hann :alien:


:shock:

Gaurinn var búinn að standa þarna í 5 klst...

Re: Djöfulsins snillingur

PostPosted: Sat 23. May 2009 18:53
by SteiniDJ
ValliFudd wrote:
Stanky wrote:
ValliFudd wrote:Haha, skil þennan gaur VEL!
Gaman að vera fastur í umferðarteppu vegna athyglissýki.. Ef hann hefði ætlað að gera þetta, hefði hann varla beðið eftir lögreglunni, og svo eftir því að dýna yrði sett fyrir neðan hann :alien:


:shock:

Gaurinn var búinn að standa þarna í 5 klst...


Yeah, erfitt samt að setja sig í hans spor. :P Samt fimm tímar... Either you do it or don't!

Re: Djöfulsins snillingur

PostPosted: Sat 23. May 2009 23:16
by Maddi..
Já ekkert annað en athyglissýki.
Ef hann vildi drepa sig þá hefði hann verið búinn að íhuga og ákvarða en ekki hikað.

Re: Djöfulsins snillingur

PostPosted: Sat 23. May 2009 23:36
by Geirinn
Já allir sem standa á brú og eru að gera upp við sig hvort þeir ætli að drepa sig eða ekki eru athyglissjúkir.

Er ekki í lagi ?

Re: Djöfulsins snillingur

PostPosted: Sun 24. May 2009 00:45
by Maddi..
Geirinn wrote:Já allir sem standa á brú og eru að gera upp við sig hvort þeir ætli að drepa sig eða ekki eru athyglissjúkir.

Er ekki í lagi ?


Það eru nú margir sem gera svona sem ekkert nema kall á hjálp.
Maður hefur t.a.m oft heyrt um að margir þeir sem skera sig á púls gera það til að kalla á hjálp, frekar en að vilja í raun drepa sig.

Re: Djöfulsins snillingur

PostPosted: Sun 24. May 2009 01:36
by Stanky
Maddi.. wrote:
Geirinn wrote:Já allir sem standa á brú og eru að gera upp við sig hvort þeir ætli að drepa sig eða ekki eru athyglissjúkir.

Er ekki í lagi ?


Það eru nú margir sem gera svona sem ekkert nema kall á hjálp.
Maður hefur t.a.m oft heyrt um að margir þeir sem skera sig á púls gera það til að kalla á hjálp, frekar en að vilja í raun drepa sig.


Kannski var gaurinn að því. Og er hann þá athyglissjúkur?

Flest allir sem fyrirfara sér gera það ekki á 5 mínútum sko.

Endilega horfið á myndina "The Bridge". Maður þar sem var búinn að ákveða að drepa sig, en tók sér alveg 4-6 klst að hoppa.

Sjálfsvíg er ekki athyglissýki fyi.

Re: Djöfulsins snillingur

PostPosted: Sun 24. May 2009 02:43
by Maddi..
Nei okei, segi þá kannski ekki endilega athyglissýki, en fyrir sumum gæti það virkað þannig og í sumum tilfellum er það þannig.
Ég er ekki að styðja það að henda manninum framfyrir ef það misskildist þannig hjá mér.
En ég bæði þekki fólk sem hefur skorið sig á púls sem eitthvað kall á hjálp, án þess þó að vilja í raun og veru drepa sig, og svo fólk sem segist endalaust vera í sjálfsmorðshugleiðingum og ætli að drepa sig og jaríjarí án þess að vera á nokkurn hátt þunglynt eða þannig séð illa statt í lífinu. Það er þó ekki eitthvað sem fólkið í kringum það hunsar, það bara er búið að átta sig á því að það er athyglissýki frekar en annað.
Maður veit aldrei hvað fólk er að hugsa þegar það segist, eða er við það að, ætla að gera eitthvað slíkt.

Re: Djöfulsins snillingur

PostPosted: Sun 24. May 2009 02:46
by Maddi..
Stanky wrote:Endilega horfið á myndina "The Bridge". Maður þar sem var búinn að ákveða að drepa sig, en tók sér alveg 4-6 klst að hoppa.


Er þetta myndin sem var á netinu í nokkrum pörtum um brú í Bandaríkjunum sem var mjög vinsæll staður fyrir sjálfsvíg?

Re: Djöfulsins snillingur

PostPosted: Sun 24. May 2009 04:16
by SteiniDJ
Maddi.. wrote:
Stanky wrote:Endilega horfið á myndina "The Bridge". Maður þar sem var búinn að ákveða að drepa sig, en tók sér alveg 4-6 klst að hoppa.


Er þetta myndin sem var á netinu í nokkrum pörtum um brú í Bandaríkjunum sem var mjög vinsæll staður fyrir sjálfsvíg?


Myndin fjallar um gullna hliðið, eða Golden Gate og þá sem hafa tekið stökkið þar niður. Tala meira að segja við einn strák sem stökk, en lifði af útaf einhverjum óútskýranlegum ástæðum. Ágæt mynd svosem, feginn samt að ég borgaði ekki fyrir að sjá hana.