Page 1 of 2

Hraðamyndavélar

PostPosted: Sat 23. May 2009 09:37
by Zed III
sá í Fréttablaðinu í morgun umræðu um að setja hraðamyndavél á Hringbraut þar sem banaslysið varð, enda er þetta vinsæll spyrnustaður.

Nú er ég ekki sérlega hrifinn af eftirliti stóra bróðurs en er þetta samt ekki fín hugmynd til að stoppa spyrnuglaða menn, þ.e. að smella hraðamyndavélum á þekkta hraðakstursstaði?

Re: Hraðamyndavélar

PostPosted: Sat 23. May 2009 09:54
by ValliFudd
Ég þoli ekki hvernig lögreglan notar hraðamyndavélarnar. Þetta á ekkert að vera í gangi 2 tíma í mánuði eins og nú er.. Þetta á að vera útum allt og ALLTAF í gangi.. Ekki bara einstaka sinnum. Lögreglan notar þetta ekki rétt. Þetta er notað sem fjáröflun en ekki til að minnka hraðakstur.

Engin myndavél í kassanum í svona mánuð, þá eru allir farnir að keyra frekar hratt, þá setja þeir myndavélina í kassann í svona 4 tíma og taka hana aftur úr kassanum. Og bíða annan mánuð þar til fólk er farið að keyra hratt á þeim stað aftur. Mjööööög heimskulegt.

Þetta á bara alltaf að vera í og alltaf í gangi.

Re: Hraðamyndavélar

PostPosted: Sat 23. May 2009 10:06
by saemi
ValliFudd wrote:Ég þoli ekki hvernig lögreglan notar hraðamyndavélarnar. Þetta á ekkert að vera í gangi 2 tíma í mánuði eins og nú er.. Þetta á að vera útum allt og ALLTAF í gangi.. Ekki bara einstaka sinnum. Lögreglan notar þetta ekki rétt. Þetta er notað sem fjáröflun en ekki til að minnka hraðakstur.

Engin myndavél í kassanum í svona mánuð, þá eru allir farnir að keyra frekar hratt, þá setja þeir myndavélina í kassann í svona 4 tíma og taka hana aftur úr kassanum. Og bíða annan mánuð þar til fólk er farið að keyra hratt á þeim stað aftur. Mjööööög heimskulegt.

Þetta á bara alltaf að vera í og alltaf í gangi.

Þeir eiga bara ekki nógu margar myndavélar :wink:

Re: Hraðamyndavélar

PostPosted: Sat 23. May 2009 10:09
by ValliFudd
saemi wrote:

Eru þeir ekki að græða fyrir svona 10 vélum í hvert skipti sem þeir setja þetta í kassana? hehe.. alltaf svona 500 teknir á 3 tímum..
Meðalsektarupphæð kannski 15 þús..
15.000x500 = 7.500.000 kr :)

Re: Hraðamyndavélar

PostPosted: Sat 23. May 2009 10:14
by Zed III
þetta á líka að vera notað sem öryggistæki, ekki bara fjáröflun.

Þó það séu ekki myndavélar í öllum kössum hefur þetta forvarnargildi. Ein myndavél sem er róterað milli 3-4 kassa myndi virka nálægt því eins vel og 4 vélar gagnvart hraðakstri.

Re: Hraðamyndavélar

PostPosted: Sat 23. May 2009 10:22
by ValliFudd
Samt ekki.. Þegar ég keyri sæbrautina í vinnuna á morgnana, eru örfáir sem kannski hægja á sér niður í 70 framhjá Shell stöðinni þarna við kleppsveg. En flest allir keyra bara á 80-90 þarna framhjá myndavélinni..

Re: Hraðamyndavélar

PostPosted: Sat 23. May 2009 10:38
by Einarsss
heh ég hægi altaf á mér niðrí svona 65 akkúrat á þessum ljósum og gef svo aftur í uppí eðlilegan umferðarhraða :P

Re: Hraðamyndavélar

PostPosted: Sat 23. May 2009 10:41
by SteiniDJ
Svo þýðir ekki að vera með hraðamyndavélar uppi lengi, það myndast svo ótrúlega mikil vinna við það. Þegar vélin er komin niður, þá myndast sko þvílíkt flæði á borðið hjá þeim sem sjá um þetta. Þetta var mér a.m.k. sagt.

Tók einhver eftir því að það var spooky Opil Zafira úti í kanti með huge tengdamömmubox rétt hjá stóra veginum rétt hjá KFC og Borgarspítalanum (man ekki fyrir mitt litla líf hvað hann heitir)? :D

Re: Hraðamyndavélar

PostPosted: Sat 23. May 2009 10:49
by Hannsi
Myndavélarnar á milli Kef og Garðs, ásammt milli Kef og sandgerðis eru alltaf í gangi.

Re: Hraðamyndavélar

PostPosted: Sat 23. May 2009 21:20
by Bjarkih
Ég vil bar benda á að hraðamyndavélar fækka ekki banaslysum. Þegar bretar fóru að stórfjölga þeim hjá sér þá hætti banaslysum að fækka. Þetta er bara fjáröflun og ekkert annað. Ef menn ætla að koma í veg fyrir slys þarf öðruvísi hugarfar ökumanna og sýnilega löggæslu. Núna er ég búinn að vera mikið á ferðinni hér á höfuðborgarsvæðinu í 3 daga og hef séð löggubíl í 2 eða 3 skipti! Held að það sé miklu frekar málið til að auka öryggi.

Re: Hraðamyndavélar

PostPosted: Sat 23. May 2009 21:40
by SteiniDJ
Bjarkih wrote:Ég vil bar benda á að hraðamyndavélar fækka ekki banaslysum. Þegar bretar fóru að stórfjölga þeim hjá sér þá hætti banaslysum að fækka. Þetta er bara fjáröflun og ekkert annað. Ef menn ætla að koma í veg fyrir slys þarf öðruvísi hugarfar ökumanna og sýnilega löggæslu. Núna er ég búinn að vera mikið á ferðinni hér á höfuðborgarsvæðinu í 3 daga og hef séð löggubíl í 2 eða 3 skipti! Held að það sé miklu frekar málið til að auka öryggi.

Ég keyri mikið á næturnar, sérstaklega um helgar og ég er næstumþví hættur að sjá lögguna. :/ Veit að hún hefur nóg að gera niðri í miðbæ, en það má ekki gleyma götunum! :)

Re: Hraðamyndavélar

PostPosted: Sat 23. May 2009 22:19
by Axel Jóhann
Já alveg sammála þeim að ofan, nú er ég úr eyjum og ég tel að það sé mun virkari löggæsla þar heldur en hér, hending að maður mæti löggubíl.

Re: Hraðamyndavélar

PostPosted: Sun 24. May 2009 04:25
by SteiniDJ
Axel Jóhann wrote:Já alveg sammála þeim að ofan, nú er ég úr eyjum og ég tel að það sé mun virkari löggæsla þar heldur en hér, hending að maður mæti löggubíl.

En svo er líka það að eyjarnar eru ekki beint stór staður og mun meiri líkur á að mæta löggunni. :)

Re: Hraðamyndavélar

PostPosted: Sun 24. May 2009 08:24
by bebecar
Bjarkih wrote:Ég vil bar benda á að hraðamyndavélar fækka ekki banaslysum. Þegar bretar fóru að stórfjölga þeim hjá sér þá hætti banaslysum að fækka. Þetta er bara fjáröflun og ekkert annað. Ef menn ætla að koma í veg fyrir slys þarf öðruvísi hugarfar ökumanna og sýnilega löggæslu. Núna er ég búinn að vera mikið á ferðinni hér á höfuðborgarsvæðinu í 3 daga og hef séð löggubíl í 2 eða 3 skipti! Held að það sé miklu frekar málið til að auka öryggi.

Nákvæmlega!

Ég minni enn og aftur á http://www.safespeed.org.uk/

Re: Hraðamyndavélar

PostPosted: Sun 24. May 2009 13:09
by Dóri-
Svona í umfjöllun um hraðamyndavélar, þá er verið að setja upp 2 stykki á milli Hveragerðis og Selfoss.

Sú sem er á leiðinni austur, áttina að Selfossi, er rétt eftir fyrstu beygjuna sem maður kemur í eftir að vera búin að fara í gegnum Hveragerði. Rétt eftir afleggjarann að bænum Krossi.

Sú sem er í hina áttina, átt að Hveragerði og Reykjavík, er rétt eftir að maður fer framhjá Kögunarhóli, þar sem maður fer á milli Ingólfsfjalls og hóls hinu megin við vegin.