Page 1 of 3

Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Sat 23. May 2009 01:04
by TheFamous
Hvor er tjaa "betra"/"skemmtilegra"/"fróðlegra" ?? :lol:

Re: Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Sat 23. May 2009 01:31
by BirkirB
Ég segi vélfræði án þess að vita mjög mikið...frekar fjölbreyttir starfsmöguleikar og ef þú klárar þá er stutt í rafvirkjann...

Re: Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Sat 23. May 2009 11:55
by sh4rk
Það fer bara eftir því hvað þú ert að sækast eftir en ég er vélvirki og maður er nánast bara í stærri disel vélum og stórum tækjum sem maður lendir í að gera við

Re: Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Sun 24. May 2009 02:52
by Axel Jóhann
Það er einmitt gallinn sem ég sá við það að klára vélstjórann. Langar frekar að vera með bílvélar í höndunum heldur en dísel sleggjur.

Re: Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Sun 24. May 2009 04:01
by maxel
Vélvirkjun er ógeðslega leiðinleg...
Þú ert væntanlega að tala um Tækniskólann?...been there.
Fór í Borgó í staðinn

Re: Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Mon 25. May 2009 10:52
by TheFamous
hef nefnilega heyrt að sé mest gert í tölvu í bifvélanum en meira verklegt í vélvirkjanum, eitthvað vit í því ? :)

Re: Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Mon 25. May 2009 10:57
by gstuning
Menn verða að muna það að því meira sem þeir vinna í áhugamálinu sínu ALLA daga þá verður minni tími/áhugi
í að vinna í sínu eigin dóti.

Re: Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Mon 25. May 2009 11:08
by TheFamous
já... En áhugamálið verður nátturlega skemmtilegra ef þú lærir meira um það.. :wink:

Re: Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Mon 25. May 2009 11:40
by bimmer
TheFamous wrote:já... En áhugamálið verður nátturlega skemmtilegra ef þú lærir meira um það.. :wink:


Þarf ekki að vera - að vinna við þetta alla daga gæti drepið niður áhugann við að sinna þessu utan vinnutíma.

Re: Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Mon 25. May 2009 11:41
by ValliFudd
Kokkar fá fljótt leið á því að elda heim hjá sér... Mig langar reyndar að taka kannski fyrsta eða annað stig í Vélvirkjanum þó ég hafi engan áhuga á að vinna við það :)

Re: Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Mon 25. May 2009 11:57
by gstuning
bimmer wrote:
TheFamous wrote:já... En áhugamálið verður nátturlega skemmtilegra ef þú lærir meira um það.. :wink:


Þarf ekki að vera - að vinna við þetta alla daga gæti drepið niður áhugann við að sinna þessu utan vinnutíma.


Trickið er að hluta til að hafa mikinn metnað í starfinu sínu sem og utan þess.
Þ.e starfið er ekki áhugamál þá heldur hluti af manni sjálfum.

Ég get ekki séð bremsuklossa skiptir hafa mikinn áhuga að leika sér í sínum bíl á kvöldin.
Enn sá sem vinnur á vettvangi þar sem að hann er framarlega þá er það annað mál.

Re: Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Mon 25. May 2009 12:03
by TheFamous
hvað ætti maður þá að taka ? Btw þá ætla ég að stútentin áður..

Re: Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Mon 25. May 2009 13:19
by Solid
Taktu vélstjórann, klárt mál.

Engin tungumálafög, né íslenska til að byrja með þannig það er bara gaman.

Mikið betra nám, ekki "nákvæmlega" það sem þú ert að leita eftir, en einfalt að taka allt aðra stefnu ef þú bailar.
Við erum að tala um rafvirkjun, kælitækni og bifvélavirkja.

Re: Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Mon 25. May 2009 13:21
by gstuning
TheFamous wrote:hvað ætti maður þá að taka ? Btw þá ætla ég að stútentin áður..


Ef þú ætlar að klára stúdent afhverju ekki að fara þá í einhverja verkfræði?

Re: Bifvélun eða Vélvirkjun...

PostPosted: Mon 25. May 2009 13:24
by TheFamous
já ætla að skoða það :thup: takk fyrir ábendinganar ;)