bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

O/T sumarið er komið. og skordýrinn líka
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=37354
Page 1 of 1

Author:  íbbi_ [ Mon 18. May 2009 00:11 ]
Post subject:  O/T sumarið er komið. og skordýrinn líka

sumarið hefur aldeilis kickað hressilega inn þessa dagana, og með því hefur skordýraflóran lifnað heldur betur við líka.

ég er með stóra og gróna lóð sem nær hringin í kringum húsið hjá mér, sem veldur því að ég get hvergi opnað glugga á án þess að fá býflugur og geitunga inn. og það er búið að vera 30°+ í kofanum í dag og er það bókstaflega ólíft..

einnig er ég með sólpall, sem er töluvert rými undir gólfinu á. og ég nokkuð hræddur um að þarna eigi helvs geitungarnir eftir að hreiðra um sig, ég sé umerki eftir bú á flr en einum stað á húsinu og lóðinni.

ég er eitthvað lítið hrifinn af þessum kvikindum, og vildi gjarnar geta setið í pottinum í friði fyrir þessu,

hvaða ráð eru raunverulega að virka, ég hef verið að spá í að fá meindýraeyðir til að eitra garðinn og veggi, og reyna hindra að þetta nái sér almennilega á stofn hérna,

hvaða reynslu hafa menn af þessu?

Author:  gardara [ Mon 18. May 2009 00:44 ]
Post subject:  Re: O/T sumarið er komið. og skordýrinn líka

Ef þú ert með einhvern stað, t.d. hlaðinn steinvegg þar sem geitungar sækjast í þá er ein lausn að rífa upp vegginn, setja sand á bakvið hann og hlaða hann aftur... Þetta var gert á mínu heimili eftir mikið vesen með jarðgeitunga... Ástæðan fyrir því að þetta virkar er sú að geitungarnir geta ekki gert bú í sandi þar sem hann mótast ekki, en áttu auðvelt með að grafa sig inn í og byggja bú í moldinni sem var áður bakvið.
Svo verðurðu að passa að láta hvergi glitta í óvarið timbur, geitungarnir sækja svakalega í það... En það er nóg að skvetta bara fúavörn á timbrið og þá ættu þeir að láta það í friði...

Svo er náttúrulega sniðugt að reyna að fylla upp í með einum eða öðrum hætti í alla staði þar sem þeir gætu farið að sækja í....

Það er líka sniðugt að hafa flösku með bjór eða einhverjum sætum drykk í einhverstaðar á lóðinni þar sem þú ert ekki að þvælast mikið sjálfur. Við lóðamörk eða einhverstaðar þar sem þú villt að geitungarnir sækja frekar í.

Image

Og svo ef þú ert mikill grill eða reykingarmaður þá veistu að geitungarnir forðast allan reyk :)

Author:  íbbi_ [ Mon 18. May 2009 01:10 ]
Post subject:  Re: O/T sumarið er komið. og skordýrinn líka

óvarið timbur :bawl: ég bý í timburhúsi með tvo palla.. s.s ekkert nema timbur

konan ætlaði einmitt að planta krukkum með sírópi útí garð á nokkrum stöðum, engvir hlaðnir veggir hérna reyndar, hef mestar áhjyggjur af pallinum, það er svona 30cm rými undir honum öllum, sem er svo opið undir á öðrum gaflinum, akkurat hliðina á pottinum, vildi síður lenda í þeim á sundskýluni..

Author:  Geirinn [ Mon 18. May 2009 08:58 ]
Post subject:  Re: O/T sumarið er komið. og skordýrinn líka

íbbi_ wrote:
óvarið timbur :bawl: ég bý í timburhúsi með tvo palla.. s.s ekkert nema timbur

konan ætlaði einmitt að planta krukkum með sírópi útí garð á nokkrum stöðum, engvir hlaðnir veggir hérna reyndar, hef mestar áhjyggjur af pallinum, það er svona 30cm rými undir honum öllum, sem er svo opið undir á öðrum gaflinum, akkurat hliðina á pottinum, vildi síður lenda í þeim á sundskýluni..

Nú er ég ekki alveg viss, en mig grunar að þetta eigi eftir að lagast með sumrinu, er þetta ekki "graðatímabilið" þar sem allt er á fullu hjá þessum krítjurs ?

Author:  Einsii [ Mon 18. May 2009 09:08 ]
Post subject:  Re: O/T sumarið er komið. og skordýrinn líka

Mín reynsla er að láta þá í friði þá vilja þeir heldur ekkert með þig hafa.

Annars er alveg pottþétt hægt að láta meindýraeyði úða einhverjum fjanda svo þeir haldi sig frá húsinu.

Author:  demi [ Mon 18. May 2009 09:15 ]
Post subject:  Re: O/T sumarið er komið. og skordýrinn líka

geturu ekki bara stráð sandi yfir allt sem er undir pallinum ?, bara gengið yfir pallinn nokkrum sinnum stráandi sandi í raufarnar svo bara sópað leifunum af pallinum

Author:  Thrullerinn [ Mon 18. May 2009 10:20 ]
Post subject:  Re: O/T sumarið er komið. og skordýrinn líka

Bjó eitt sinn á Nýja Sjálandi og við fundum geitungabú(neðanjarðar) í garðinum sem við fylltum af bensíni, mjög umhverfisvænt, það virkaði amk. hefðum kannski átt að kveikja í því :lol:

Það þarf væntanlega að svæfa kvikindin, eitthvað efni notað sem ég man ekki hvað heitir og taka síðan búið.

Author:  gardara [ Mon 18. May 2009 14:44 ]
Post subject:  Re: O/T sumarið er komið. og skordýrinn líka

Geirinn wrote:
íbbi_ wrote:
óvarið timbur :bawl: ég bý í timburhúsi með tvo palla.. s.s ekkert nema timbur

konan ætlaði einmitt að planta krukkum með sírópi útí garð á nokkrum stöðum, engvir hlaðnir veggir hérna reyndar, hef mestar áhjyggjur af pallinum, það er svona 30cm rými undir honum öllum, sem er svo opið undir á öðrum gaflinum, akkurat hliðina á pottinum, vildi síður lenda í þeim á sundskýluni..

Nú er ég ekki alveg viss, en mig grunar að þetta eigi eftir að lagast með sumrinu, er þetta ekki "graðatímabilið" þar sem allt er á fullu hjá þessum krítjurs ?

Geitungarnir eru reyndar aggresívastir í ágúst, því að þá rekur drottningin þá úr búinu og þeir hafa engann stað til að lifa á....

Author:  Geirinn [ Mon 18. May 2009 14:48 ]
Post subject:  Re: O/T sumarið er komið. og skordýrinn líka

gardara wrote:

Æji, þetta hljómaði allavega vel :lol:

Author:  Jökull [ Mon 18. May 2009 16:05 ]
Post subject:  Re: O/T sumarið er komið. og skordýrinn líka

gardara wrote:
Ef þú ert með einhvern stað, t.d. hlaðinn steinvegg þar sem geitungar sækjast í þá er ein lausn að rífa upp vegginn, setja sand á bakvið hann og hlaða hann aftur... Þetta var gert á mínu heimili eftir mikið vesen með jarðgeitunga... Ástæðan fyrir því að þetta virkar er sú að geitungarnir geta ekki gert bú í sandi þar sem hann mótast ekki, en áttu auðvelt með að grafa sig inn í og byggja bú í moldinni sem var áður bakvið.
Svo verðurðu að passa að láta hvergi glitta í óvarið timbur, geitungarnir sækja svakalega í það... En það er nóg að skvetta bara fúavörn á timbrið og þá ættu þeir að láta það í friði...

Svo er náttúrulega sniðugt að reyna að fylla upp í með einum eða öðrum hætti í alla staði þar sem þeir gætu farið að sækja í....

Það er líka sniðugt að hafa flösku með bjór eða einhverjum sætum drykk í einhverstaðar á lóðinni þar sem þú ert ekki að þvælast mikið sjálfur. Við lóðamörk eða einhverstaðar þar sem þú villt að geitungarnir sækja frekar í.

Image

Og svo ef þú ert mikill grill eða reykingarmaður þá veistu að geitungarnir forðast allan reyk :)

Ég bjó til svona flöskugaur eitthvað sumarið bara með djús vatni og helling af sykri og ég hafði ekki undan að tæma flöskuna :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/