bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

OT: VW Polo Dísel - Þungar bremsur
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=37233
Page 1 of 1

Author:  Stanky [ Wed 13. May 2009 10:25 ]
Post subject:  OT: VW Polo Dísel - Þungar bremsur

Sælir.

Ég er að gera mér vonir hérna að einhver viti hvað er að.

Málið er að bremsurnar eru fáránlega þungar í bílnum. Þær bremsa nánast ekkert og virka alveg eins og bremsur á bíl sem er ekki í gangi.

Þetta kom fyrir í miðjum akstri eftir bremsun, þá hætti bíllinn bara að bremsa.

Er einhver með bilanagreiningu á þessu í gegnum netið?

Author:  Zed III [ Wed 13. May 2009 10:28 ]
Post subject:  Re: OT: VW Polo Dísel - Þungar bremsur

biluð höfuðdæla kannski?

Ef þetta væri vökvinn/loft gæfu bremsurnar eftir og það er óliklegt að dælurnar verði allar stífar á sama tíma.

Bremsar bíllinn jafnt á báðum hjólum ?

Author:  Tasken [ Wed 13. May 2009 11:02 ]
Post subject:  Re: OT: VW Polo Dísel - Þungar bremsur

Sæll

Ég mundi skjóta á að membran í brake boosternum sé farin

eða þá að brake bosterinn hafi misst vacuum einhverra hluta vegna farin vacuum lögn eða þessháttar

Kv:Trausti

Author:  crashed [ Wed 13. May 2009 11:05 ]
Post subject:  Re: OT: VW Polo Dísel - Þungar bremsur

2 sem getur verið að slangan sem létir á bremsunum gæti verið í sundur eða lekið eða dotið úr sambandi svo hitt er sama og gerðist hjá mér er að bremsuvökvinn getur verið ónítur og þá verða bremsurnar mjög stífar og gæti verið að gera það að verkum að membran verði stíf

Author:  Stanky [ Wed 13. May 2009 11:20 ]
Post subject:  Re: OT: VW Polo Dísel - Þungar bremsur

Þegar bíllinn bremsar þá bremsar hann jafnt á báðum.

En eins og ég segi, hann eiginlega bara bremsar ekki neitt.

Það lekur enginn vökvi af honum -> er búinn að tjékka á því. Forðabúrið helst alltaf fullt.

Það eru ca 1500 km síðan það voru settir nýjir klossar.

Author:  Tasken [ Wed 13. May 2009 11:23 ]
Post subject:  Re: OT: VW Polo Dísel - Þungar bremsur

Slangan sem þú talar um að létti á bremsunum er einmitt vacuum slangan sem liggur inná brake boosterinn sem ég var að tala um :wink:

svo getur membran í boosternum ekki orðið stíf útaf ónýtum bremsuvökva.
þó ég þekki það ekki hvort að bremsurnar sjálfar geti orðið stífar útaf ónýtum vökva sem ég þó efast um

Author:  ///M [ Wed 13. May 2009 11:42 ]
Post subject:  Re: OT: VW Polo Dísel - Þungar bremsur

Stanky wrote:
Þegar bíllinn bremsar þá bremsar hann jafnt á báðum.



Image ?? :mrgreen:

Author:  Geirinn [ Wed 13. May 2009 21:12 ]
Post subject:  Re: OT: VW Polo Dísel - Þungar bremsur

Er ekki bara svona langt síðan þú varst í ræktinni ?

Kveðja, kjeeeeeelliinn.

Author:  Jónki 320i ´84 [ Thu 14. May 2009 03:37 ]
Post subject:  Re: OT: VW Polo Dísel - Þungar bremsur

Brake booster kúturinn er sennilegast ónýtur eða fær ekki vacuum frá soggrein.

Author:  Tasken [ Thu 14. May 2009 08:36 ]
Post subject:  Re: OT: VW Polo Dísel - Þungar bremsur

er vacuum fyrir boosterinn ekki oftast tekið frá stýrisdælu þegar um dísel bíla er að ræða ??

allavega séð það á dísel bíl áður?

Author:  IvanAnders [ Thu 14. May 2009 12:02 ]
Post subject:  Re: OT: VW Polo Dísel - Þungar bremsur

HALLÓ!!!

Þetta er dísel bíll, skoðaðu vaacum dæluna!
Þekki ekkert inná póló, en vaacum dælur í díesl eru yfirleitt aftan á alternatornum.

Author:  Jónki 320i ´84 [ Sat 16. May 2009 03:19 ]
Post subject:  Re: OT: VW Polo Dísel - Þungar bremsur

Já sæll þetta er disel kvikindi, tók ekkert eftir því.

Skoðaðu vacuum dæluna eins og Ívar Andri segir :wink:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/