Page 1 of 1

[Nerd question] USB/disk activity truflar nettengingu

PostPosted: Sun 10. May 2009 13:01
by zazou
Jæja, ég er búinn að vera að eiga við skrýtið vandamál að etja á nýlega Toshiba lappanum mínum. Hann felst í því að internettengingin dettur út ef ég er að flytja mikið af gögnum á milli staða á vélinni.
Einfaldasta leiðin til að ná þessu fram er að tengja 2 usb diska við vélina og flytja á milli. Ég er með Reliability & performance monitorinn (C:\Windows\System32\perfmon.exe) í gangi og þegar Disk hlutinn á honum spikear uppí 100% þá dettur nettengingin út :roll:
Það skiptir engu hvaða USB port ég er að nota.

Þekkir e-r hér eða hefur reynslu af svipuðu vandamáli? Gæti verið e-r sameiginlegur böss sem local gagnaflutningar hafa forgang á umfram þráðlausa netið?

Fáránlegt rugl :argh:

Re: [Nerd question] USB/disk activity truflar nettengingu

PostPosted: Sun 10. May 2009 17:12
by Solid
Skil ekki hvernig nettengingin verður fyrir áhrifum af USB.

ertu að nota 64-bita stýrikerfi ?

Mér dettur í hug lélegur hdd, með litlum buffer eða álíka... en netingin ? wth :shock:

Re: [Nerd question] USB/disk activity truflar nettengingu

PostPosted: Sun 10. May 2009 18:41
by zazou
Það er það skrýtna í þessu, bara fyrir slysni veitti ég samhenginu þar á milli athygli.

Helsta sem mér dettur í hug er hvort það sé einhver data bus samnýttur (ódýr tölva) og að HD hafi hærri forgang og því geti blokkerist sambandið við routerinn. Það kom ekki nægilega skýrt fram í upphaflega póstinum en skilaboðin eru þau að tölvan nær ekki sambandi við router.

Etv. netkort->móðurborð og HD->móðurborð->HD, þeas að '->' hlutinn sé samnýttur. En nú er ég kominn langt fyrir utan mína þekkingu og sérsvið. Þess vegna væri mjög gaman að fá álit frá hardcore vélbúnaðar/stýrikerfisgaurum.

Stýrikerfið er Windows Vista Businness (SP1).

Re: [Nerd question] USB/disk activity truflar nettengingu

PostPosted: Sun 10. May 2009 18:50
by gstuning
Það er ágætis séns að netkortið sé í raun ekki bein tengt í móðurborðið heldur beint í USB platformið.
Og það látið sjá um samskipti við kortið.

Re: [Nerd question] USB/disk activity truflar nettengingu

PostPosted: Mon 11. May 2009 09:51
by Djofullinn
Hvernig Toshiba er þetta?
Það þarf líklega að uppfæra biosinn á móðurborðinu.
Nokkrar af nýju Toshiba vélunum koma með bios sem veldur því að netkortin lagga óeðlilega mikið, hef ekki séð það tengjast USB notkon samt.

Finnur nýjan bios hérna:
www.toshiba-tro.de