Page 1 of 1

Skipti á klossum og diskum

PostPosted: Thu 07. May 2009 20:49
by krullih
Er með Corollu, sjálfskipta. Klossarnir farnir og farið að svarfa stálið.

Hvað er eðlilegur tími á milli skipta á þessu (þ.e klossum og svo diskum) á svona bíl? Er keyrður af 50tugri konu sem er 'super-economic' og því aldrei tekið hart af stað eða nelgt niður (nema þegar paranojan á í hlut)

Held að það séu um 13 mánuðir frá því að skipta var, þ.a stóð bílinn hátt í 4 eða 6.

Mbk,
Jonni

Re: Skipti á klossum og diskum

PostPosted: Thu 07. May 2009 21:44
by krullih
Enginn með skoðun á málinu?

Gleymdi líka að spyrja - eru OEM að endast mikið betru en þetta dót frá n1?

Re: Skipti á klossum og diskum

PostPosted: Thu 07. May 2009 21:48
by dabbiso0
Jonni, ég get sagt þér að þetta er óvenjulegt.. hehe
sona er það að kaupa ódýrara :P

Re: Skipti á klossum og diskum

PostPosted: Thu 07. May 2009 21:55
by krullih
Meikar samt lítinn sens að þetta 'ódýrara' sé svona mikið mikið sneggra að fara.... :shock:

Re: Skipti á klossum og diskum

PostPosted: Thu 07. May 2009 22:08
by Jökull
krullih wrote:Meikar samt lítinn sens að þetta 'ódýrara' sé svona mikið mikið sneggra að fara.... :shock:


Nei það er reyndar allveg skiljanlegt, harðara í þeim og slíta diska hratt og ef diskurinn er ílla farinn þá endast klossar töluvert skemur en á nýjum diskum, það er svo margt sem spilar inní þegar er talað um slit á svona hlutum..

Re: Skipti á klossum og diskum

PostPosted: Thu 07. May 2009 22:11
by krullih
Þannig að best væri að;
Skipta um diska og klossa, og fá sér OEM klossa, að lágmarki.

Eða gefa remsa stöffinu annan séns.... :santa: Hafa samt aldrei farið svona hratt hjá mér áður.

Hvað er eiginlega eðlilegur tími á milli klossaskipta?

Re: Skipti á klossum og diskum

PostPosted: Thu 07. May 2009 22:32
by Hreiðar
Eru ekki klossarnir að framan alltaf aðeins sneggri að fara? Eða fer það bara eftir því hvernig maður keyrir.. Ef þú skiptir um allt fyrir 13 mánuðum finnst mér skrítið að allir séu farnir..

Re: Skipti á klossum og diskum

PostPosted: Thu 07. May 2009 22:49
by krullih
Heyrðu, var kannski full fljótt skrifað:
Þetta er bara að framan, og aðalega aftariklossarnir (dælu megin)

Að aftan eru bremsurnar í goody.

Re: Skipti á klossum og diskum

PostPosted: Fri 08. May 2009 10:14
by demi
Ef það er meira tekið af klossunum dælu megin þá þarf að liðka upp á dælunum og skipta um þétti gúmmíin og svoleiðis

Re: Skipti á klossum og diskum

PostPosted: Sun 10. May 2009 12:16
by Tommi Camaro
krullih wrote:Heyrðu, var kannski full fljótt skrifað:
Þetta er bara að framan, og aðalega aftariklossarnir (dælu megin)

Að aftan eru bremsurnar í goody.

færsla á dælunni er föst eða klossanir of stýfir í

Re: Skipti á klossum og diskum

PostPosted: Sun 10. May 2009 17:17
by Solid
Það er líka munur á því hvort þú takir harða eða mjúka klossa.

Mjúkir klossar endast styttra heldur en harðir klossar.

Harðir klossar rjúka reyndar upp þegar þeir verða mjög heitir og menn stífbremsa.

Re: Skipti á klossum og diskum

PostPosted: Mon 11. May 2009 12:27
by Axel Jóhann
krullih wrote:Heyrðu, var kannski full fljótt skrifað:
Þetta er bara að framan, og aðalega aftariklossarnir (dælu megin)

Að aftan eru bremsurnar í goody.






Orginal ENDAST lengur og færslurnar eru stífar hjá þér, og remsa eru rusl klossar, mæli með því að þú prófir að fara í Poulsen, þeir eru með Mintex klossa sem hafa verið að reynast mjög vel og virkilega ódýrir.