Page 1 of 17

Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 09:35
by ValliFudd
Jæja, stutt í kosningar, ákvað að henda upp smá könnun og opna fyrir smá umræðu..
Hakaði í reit í könnuninni sem leyfir fólki að breyta ef menn skipta um skoðun í vikunni.

Sjálfur tók ég test á mbl.is uppá djókið og þar var ákveðið fyrir mig að Borgarahreyfingin væri málið. En ég er enn að reyna að ákveða mig.
http://www.mbl.is/mm/frettir/kosningar/compass.html

Re: Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 09:37
by srr
Samfylkingin fyrir mig.

Jóhanna FTW 8)

Re: Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 09:41
by Einarsss
X-S klárlega

Re: Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 10:29
by bebecar
Voðalega finnst mér samfylkingin sleppa ódýrt frá hruninu og sinni ábyrgð á því...

Re: Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 10:37
by Einarsss
já ... það voru samt ekki þeir sem voru við völdin síðustu 18 ár.

Miðað við það sem er í boði í dag þá skarar samfylkingin frammúr fyrir mér.

Framsókn? þvílíki loddara flokkurinn... nýji formaðurinn er bara kríp og þó þeir séu ekki við stjórn núna þá bera þeir mun meiri ábyrgð á ástandinu heldur en samfylkingin

Re: Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 10:45
by bimmer
bebecar wrote:Voðalega finnst mér samfylkingin sleppa ódýrt frá hruninu og sinni ábyrgð á því...


Sammála þér í því... alveg eins og hún hafi bara ekkert verið á svæðinu meðan hún
var í stjórn.

Vissulega hafa sjallar verið við stjórnvölinn miklu lengur en Samfylkingin hafði nægan tíma
til að bregðast við hefði hún á annað borð vilja/getu til þess......

Re: Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 11:28
by Alpina
Ætla ekki að styðja neinn af þessu

Re: Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 11:30
by Jónas
Sammála fyrri ræðumönnum.

Sorglegt að sjá fólk bauna yfir XD fyrir undanfarin ár og segjast svo ætla að kjósa XS.

ENGINN endurnýjun í gangi þar... Hver var með bankamálaráðuneytið...?

Re: Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 11:32
by grettir
Ég er fyrrverandi sjálfstæðismaður. Ég get ekki hugsað mér að kjósa þann flokk aftur.
Ekki á meðan svona fólk er í flokknum og svona skoðanir eru samþykktar.
Mig vantar annan hægri flokk. Sjálfstæðisflokkurinn er mesti ríkisafskiptaflokkur sem um getur.
Þessi grein eftir Helga Hjálmarsson fékk mig næstum því til að æla.

Borgarahreyfingin fær mitt atkvæði. Burtu með gamla hrokann og spillingarpakkið.

Re: Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 11:35
by ValliFudd
Guðlaugur Þór mætti hér í Olís með smá fyrirlestur um það hve frábær Sjálfstæðisflokkurinn er og hvað þetta sé ekkert þeim að kenna.

Hann kom með mjög einfalda útskýringu á þessu.

Hann sagði ástandið vera eins og það er, vegna flokkana sem hafa verið í samstarfi með Sjálfstæðisflokknum. Og að þeir hafi þurft að gera ýmislegt sem þeir hafi ekki viljað gera til að halda samstarfinu áfram.

Basically kenndi hann öllum þeim sem hafa verið í stjórn MEÐ Sjálfstæðisflokknum um hrunið mikla. Og sagði Sjálfstæðisflokkinn hafa reynt allt til að gera rétt, en hinir flokkarnir hafi klúðrað þessu. Þegar hann ældi þessu útúr sér, fóru nú nokkuð margir útúr salnum. Og munu líklega ekki kjósa þennan flokk. Hver vill fara í samstarf með flokk sem lætur svona? :shock:

Re: Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 12:01
by Jón Ragnar
bebecar wrote:Voðalega finnst mér samfylkingin sleppa ódýrt frá hruninu og sinni ábyrgð á því...


Djöfull er ég sammála


Get samt ekki sagt neitt því að ég ætla að kjósa D

Allt annað en fokking vinstri stjórn!!! :argh:

Re: Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 12:17
by Axel Jóhann
Alpina wrote:Ætla ekki að styðja neinn af þessu




Sama hér, ég skila auðu.

Re: Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 12:18
by grettir
Jón Ragnar wrote:
bebecar wrote:Voðalega finnst mér samfylkingin sleppa ódýrt frá hruninu og sinni ábyrgð á því...


Djöfull er ég sammála


Get samt ekki sagt neitt því að ég ætla að kjósa D

Allt annað en fokking vinstri stjórn!!! :argh:

Við vorum aðeins að ræða þetta í hádeginu - vinstri hægri dæmi.

Hvað flokkast sem vinstri mál? Að hafa góða leikskóla/grunnskóla? Gefa öllum færi á læknisþjónustu? Menntun? Hvað er svona hræðilegt við það?

Vinstri stjórnir hafa oftast verið kenndar við mikil ríkisafskipti og Sjálfstæðisflokkurinn toppar alla aðra flokka í slíkum afskiptum.

Með því að kjósa Sjálfstæðisflokk ertu í rauninni að kjósa ríkisafskiptaflokk. Vinstri flokk :wink:

Re: Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 12:22
by bimmer
Alpina wrote:Ætla ekki að styðja neinn af þessu


Stefnir í það líka hjá mér.....

Re: Hvern á að kjósa?

PostPosted: Mon 20. Apr 2009 12:31
by Stanky
Samfó hoppar á milli hægri og vinstri eftir því sem þeim þóknast. Þeir eru ekki með nein málefni - þeir bara go with the flow.... aka tækifærissinnar.

Ég ætla að gefa skít í þessar kosningar og kjósa Ástþór Magnússon.