Page 1 of 1

Skítur í mótor?

PostPosted: Tue 14. Apr 2009 21:09
by Thrullerinn
Ef þér vantar verkefni yfir kaffibollanum þá er þetta örugglega málið :)

Málið er að ég er með bát sem ég get alveg sett í gang og allir að dansa, en ég get ekki
stoppað dansinn, þ.e. drepið á kvikindinu nema að kæfa hann. Þetta er mercruiser 3.0L vél.


Image

Búinn að rekja mig í gegnum teikningar og gruna að svokallað starter solenoid sé skammhleypt, ég er búinn að prófa að aftengja efri tvo vírana og það hefur engin áhrif þegar
mótorinn er í gangi..

Ég tók einnig rafgeyminn úr sambandi þegar hann var í gangi og hann gekk..

Hvað er annars starter solenoid?

Á bls 4 í þessu sést mjög ítarleg teikning, vandamálið er að hvað er það er það sem drepur á vélinni? er það kannski stóra "solenoidið" á startaranum sem tengist háspennukeflinu?
http://www.boatfix.com/merc/Servmanl/13/13E4R2.PDF

Öll hjálp vel þegin :)
Þröstur

Re: Starter solenoid..

PostPosted: Tue 14. Apr 2009 22:01
by saemi
Vantar ekki bara jarðtenginguna ... er hún ekki það sem er að klikka. Það er t.d. þannig á mörgum eldri flugvélum að ef jarðtengingin fer, þá er ekki hægt að drepa á!

Re: Starter solenoid..

PostPosted: Tue 14. Apr 2009 22:04
by Lindemann
Þessi segulrofi er bara fyrir startið, þ.e. fær stýristraum frá sviss og gefur þá power frá rafgeymi í startara.


jú sennilega vantar jarðtenginguna, ertu búinn að skoða yfirfara leiðslur eitthvað?

Re: Starter solenoid..

PostPosted: Tue 14. Apr 2009 22:06
by -Siggi-
Starter solenoid er bara segulrofi fyrir startarann.

Á bls. 4 í þessum manual sem þú linkaðir á er fjólublái vírinn nr5 í stóra tenginu 12v sviss straumur.
Það er hann sem þarf að rjúfa til að drepa á mótornum.
Hann liggur væntanlega í svissinn, það sést ekki á neinni teikningu þarna.

Re: Starter solenoid..

PostPosted: Tue 14. Apr 2009 22:25
by Thrullerinn
Snillingar !

Ætla fyrst að tjékka á jarðtengingunni og síðan rekja nr 5 fram í sviss og athuga hvort
svissinn sé ekki að rjúfa þennan straum, hef á tilfinningunni að hann hangi á plúsnum
einhversstaðar..

Re: Starter solenoid..

PostPosted: Tue 14. Apr 2009 22:34
by Lindemann
spurning hvort það sé ekki bara að leiða stöðugt á milli í svissinum....prófaðu að aftengja bara fjólubláa vírinn úr svissinum(eða einhversstaðar sem er þægilegt að komast í hann) og sjá hvort hann deyji ekki þannig.

Re: Starter solenoid..

PostPosted: Tue 14. Apr 2009 23:27
by Axel Jóhann
Græjaðu bara útsláttarrofa á alternatorinn. :)

Re: Starter solenoid..

PostPosted: Wed 15. Apr 2009 22:04
by Thrullerinn
Axel Jóhann wrote:Græjaðu bara útsláttarrofa á alternatorinn. :)


Hehe...

Heyrðu, þetta var fjólubláa kvikindið.. ég skipti um alternator þar sem gamli var ónýtur og nýji
alternatorinn (sem átti vera sama týpan) var með annarri stýringu. Þ.e. hann gaf út 12V á
fjólubláa vírinn (nr 5 sem -Siggi- talar um)

Þannig ég þurfti að klippa og víxla þeim þó svo að tengið hafi smellpassað...

Kærar þakkir,
Þröstur

Re: Starter solenoid..

PostPosted: Mon 18. May 2009 21:54
by Thrullerinn
Vonandi afsakið mig, en offtopic er offtopic :) Þið eruð mín eina von kútzar :alien:

Nú er kvikindið komið á flot og búinn að djöflast fram og aftur síðustu vikurnar, sólbrenndur og bara gaman..
Hægagangurinn var erfiður og ég endaði á því að rífa blöndunginn úr og skipti um allt í honum, allt annar eftir það.

Hinsvegar þegar ég er búinn að hita hann vel og botnkeyri þá lendi ég í því að hann vill ekki drepa almennilega á sér, þ.e.
höktir í gangi. Þetta er bara þegar ég botnkeyri.

Ef það er skítur sem glóð er í nálægt kertunum sem er að kveikja, hvernig losa ég hann án þess að rífa vélina í sundur.
Málið var að mótorinn hefur lítið sem ekkert verið keyrður síðustu tvö árin, sitthvað safnast upp..

Re: Starter solenoid..

PostPosted: Mon 18. May 2009 22:00
by Axel Jóhann
Hvernig mótor er þetta?

Re: Starter solenoid..

PostPosted: Mon 18. May 2009 22:03
by Thrullerinn
Axel Jóhann wrote:Hvernig mótor er þetta?


Mercruiser 3.0L (bátavél)

Image

Re: Skítur í mótor?

PostPosted: Tue 19. May 2009 00:06
by IngóJP
Hvernig væri að koma með mynd af bátnum fyrir hina sem hafa áhuga á þeim

Re: Skítur í mótor?

PostPosted: Tue 19. May 2009 01:13
by Thrullerinn
Á mynd af honum á lappanum...

Þetta er eins bátur.. Minn er ekki aaalveg eins sjæní.. ég reyndar reif teppið úr mínum og dúklagði.

Image
Image
Image

Re: Skítur í mótor?

PostPosted: Tue 19. May 2009 01:30
by IngóJP
Er hann í firðinum þessi

Re: Skítur í mótor?

PostPosted: Tue 19. May 2009 20:33
by Thrullerinn
IngóJP wrote:Er hann í firðinum þessi


Snarfara..
Annars virðist þetta vera að lagast, skíturinn að brenna upp..