Page 1 of 1

Sýrubað

PostPosted: Tue 14. Apr 2009 17:10
by siggir
Veit einhver hvort hægt sé að acid dip-a bíla á Íslandi? Sbr. þennan þráð.

http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=27678&hilit=acid+dip

Það var einhver umræða þarna en það fengust aldrei svör. Ég er með bíl í uppgerð og svona aðgerð myndi spara mér talsverða vinnu.

Re: Sýrubað

PostPosted: Tue 14. Apr 2009 17:57
by krullih
Kemi - Pelox suðukrem - svo bara mála þetta á ! Ekkert að gera óþarfa vesen úr þessu ;)

Alveg hægt að gera þeta 'ghetto' ef ekki er til svona aðstaða.

Re: Sýrubað

PostPosted: Tue 14. Apr 2009 18:51
by siggir
Hmm.. segðu mér meira frá þessu? Er þetta eitthvað efni sem maður sullar á stálið sem hreinsar í burtu allt ryð og alla málningu?

Re: Sýrubað

PostPosted: Tue 14. Apr 2009 19:10
by krullih
Sko, pelox suðukremið er frekar þykkt 'kremlegt' og er ætlað til að hreinsa suður af ryðfríum málmi.

Hægt að fá þetta líka í formi sprays sem fer svo bara á úðabrúsa. Er að hreinsa 1700m2 af járni þessa dagana með því - hentar fínt. En spurnig um að nota pensil til að ná alveg 100% yfir allt.

Kíktu á þá í Kemi og þeir geta líklega aðstoðað þig - farðu bara varlega.... ekkert grín að fá þetta á sig hvað þá í munn / andlit :oops:

Re: Sýrubað

PostPosted: Tue 14. Apr 2009 19:40
by siggir
krullih wrote:Sko, pelox suðukremið er frekar þykkt 'kremlegt' og er ætlað til að hreinsa suður af ryðfríum málmi.

Hægt að fá þetta líka í formi sprays sem fer svo bara á úðabrúsa. Er að hreinsa 1700m2 af járni þessa dagana með því - hentar fínt. En spurnig um að nota pensil til að ná alveg 100% yfir allt.

Kíktu á þá í Kemi og þeir geta líklega aðstoðað þig - farðu bara varlega.... ekkert grín að fá þetta á sig hvað þá í munn / andlit :oops:


Ok, takk. Ég á örugglega eftir að skoða þetta :)