Lögreglan á Selfossi var kölluð að verslun Krónunnar aðfaranótt laugardag eftir að þeim barst tilkynning um mann sem eldur hafði komist í.
Þegar lögreglan mætti á vettvang var enginn eldur sjáanlegur en í ljós kom að nítján ára piltur hafði hellt bensíni yfir sig og borið eld að.
Félagi hans var til halds og trausts, vopnaður slökkvitæki og hafði slökkt eldinn.
Lögreglan spurði piltinn hvað honum hefði gengið til. Pilturinn svaraði því þá til að hann hefði kveikt í sér til gamans þar sem það væri svo leiðinlegt að vera á Selfossi.
Samkvæmt dagbók lögreglunnar hlaut maðurinn ekki skaða af upptækinu þar sem hann hafði borið vaselín á fætur sínar til þess að fyrirbyggja brunann.
Meistari!
Re: Loksins snillingur á Selfossi!
Posted: Tue 14. Apr 2009 14:12
by Einarsss
hahaha ekkert betra að gera en að kveikja í sjálfum sér á selfossi
Re: Loksins snillingur á Selfossi!
Posted: Tue 14. Apr 2009 14:15
by Hlynur___
hahaha djöfulli góður
ég hefði samt frekar bara stokkið í ölfusánna en að kveikja í mer
Re: Loksins snillingur á Selfossi!
Posted: Tue 14. Apr 2009 14:18
by siggir
Shiii... Ég bjó nú á Selfossi í 18 ár en mér leiddist aldrei svona mikið.
Re: Loksins snillingur á Selfossi!
Posted: Tue 14. Apr 2009 14:36
by Dóri-
það sem kemur ekki fram í fréttinni er að hann kveikti í sér aftur og slökkvitækið kláraðist áður en það náðist að slökkva í þessu, hann hljóp út um allt og rúllaði sér
Re: Loksins snillingur á Selfossi!
Posted: Tue 14. Apr 2009 16:22
by ///M
Ég hef einmitt keyrt í gegnum Selfoss og þetta kemur mér alls ekki á óvart.
Re: Loksins snillingur á Selfossi!
Posted: Wed 15. Apr 2009 10:11
by Hreiðar
hvaða hvaða.. ég hef átt heima þarna, fínasti staður, ekkert lóner place
Re: Loksins snillingur á Selfossi!
Posted: Fri 17. Apr 2009 08:47
by Angelic0-
er þetta semsagt nýja tískan hjá þessum GOTH krökkum
hættir að skera sig
Re: Loksins snillingur á Selfossi!
Posted: Fri 17. Apr 2009 13:03
by IvanAnders
Þeir skera sig bara í keflavík vegna þess að það er of mikið rok til að kveikja eld!
Re: Loksins snillingur á Selfossi!
Posted: Fri 17. Apr 2009 13:08
by krullih
IvanAnders wrote:Þeir skera sig bara í keflavík vegna þess að það er of mikið rok til að kveikja eld!
BEST COMMENT EVER.
Re: Loksins snillingur á Selfossi!
Posted: Fri 17. Apr 2009 13:21
by gardara
IvanAnders wrote:Þeir skera sig bara í keflavík vegna þess að það er of mikið rok til að kveikja eld!
Re: Loksins snillingur á Selfossi!
Posted: Fri 17. Apr 2009 13:37
by íbbi_
ég fluttist langleiðina til selfoss nýlega.. og er BARA ánægður..
Re: Loksins snillingur á Selfossi!
Posted: Fri 17. Apr 2009 19:01
by Doror
íbbi_ wrote:ég fluttist langleiðina til selfoss nýlega.. og er BARA ánægður..
Enda er líklegt að Camaroinn þinn geti keyrt á Selfoss blindandi ef þú skellir honum bara í drive og lokar hurðinni.
Re: Loksins snillingur á Selfossi!
Posted: Fri 24. Apr 2009 16:24
by garnett91
hérna er myndband af þessu og hann er 17 ára ekki 19