Page 1 of 4

Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 15:43
by Jón Ragnar
Jæja

skólar eru að klárast og hvað ætla menn að vinna í sumar?

er einhverja vinnu að fá?

Re: Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 15:45
by Bjarkih
Vonandi held ég bara áfram í minni vinnu og fer í mitt sumarfrí og slappa af 8)

Re: Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 15:55
by .
Fer væntanlega í sumarfríið langa í lok júlí(uppsögn) svo er það bara skóli um haustið held ég.

Re: Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 16:03
by arnibjorn
Bjarkih wrote:Vonandi held ég bara áfram í minni vinnu og fer í mitt sumarfrí og slappa af 8)


x2

Geri fastlega ráð fyrir að halda minni vinnu hjá Samskip og svo tekur maður sér góðan mánuð í sumarfrí :D

Þetta sumar verður svo awesome.

Re: Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 16:15
by Aron Andrew
Byrja í fríi 1. maí
Bíladagar í júní
Mallorca í lok Júlí
Þjóðhátíð um verslunarmannahelgina

Á reyndar ennþá eftir að finna mér vinnu :lol:

Re: Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 16:17
by arnibjorn
Aron Andrew wrote:Byrja í fríi 1. maí
Bíladagar í júní
Mallorca í lok Júlí
Þjóðhátíð um verslunarmannahelgina

Á reyndar ennþá eftir að finna mér vinnu :lol:


Með allt þetta planað og enga vinnu..

Ég vona að þú vinnir í lottó Aron :lol:

Re: Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 16:21
by krullih
Held minni vinnu, vona ég. Og veit ekki hvort ég taki heilan mánuð í frí - fæ þeta greitt sem orlof af yfirvinnu en ekki bara fasta daga þannig að þetta er ekkert agalega spennandi....

Re: Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 16:57
by Jónas Þór
búinn í skólanum 8 mai
útskriftarferð 27 mai 8)
síðan byrja ég að vinna 11 júni

verður solid sumar

Re: Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 17:08
by Jón Ragnar
Ég byrja að vinna um miðjan Maí

fínt að vera rúnta um á nýjum trukkum þá 8)

Re: Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 17:10
by gunnar
Ég skelli mér til Norge til múttu strax eftir próf.

Byrja svo að vinna bara í lok maí. Er mjög heppinn að hafa náð að græja mér sömu vinnu og seinasta sumar.

Svo er bara að koma E30 á götuna og nota hann og taka Súkku greyið aðeins í gegn og ferðast í sumar.

Býst ekki við neinni utanlandsferð á ströndina eða neitt slíkt þetta sumarið. Maður þarf bara að reyna að safna pening fyrir næsta vetur þar sem allt hefur hækkað svo mikið :x

Re: Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 17:48
by Twincam
ég er að spá í að gera bara ekki rassgat í sumar... ekki frekar en ég hef gert síðan 28.júní á síðasta ári...

Væri samt alveg til í einhverja vinnu.. svona sem löppin þolir... :roll:


En ég ætla samt að reyna að komast í tvær ferðir út fyrir landsteinana...
og fara þá til Bandaríkjanna með konu og barni að heimsækja ættingja hennar..
og svo eitthvað aðeins hlýrra og sveittara bara við tvö, til að teiga rándýrt erlent öl...

Og svo þess á milli, þá er ég að spá í að reyna að klára Subaruinn minn..

Re: Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 18:08
by gardara
Vinna jafn mikið og ég get og eyða svo öllum peningnum í bílamál... t.d. reyna að flytja inn camaro greyið.

Re: Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 18:12
by Kristjan
Sjá hvort ég geti fengið vinnu á rútu, superjeep eða í bíói. Hver veit samt. Ég er frekar fucked með þetta meðan ég er hérna í svíþjóð, það ræður enginn mann í gegnum síma.

Re: Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 18:20
by sh4rk
ætli ég haldi bara ekki áfram að vinna þar sem ég er að vinna og fari svo bara í sumarfrí þegar ég nenni, og reyni að græja E23

Re: Official Hvaðætlamennaðgeraísumar þráðurinn

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 18:49
by gstuning
Sumarið?

Klára rauða hérna á íslandi og selja, 300whp er powerið sem spíssar eiga að geta.
Bíladagar.
England svo og vonandi fara vinna á vélarverkstæði, kannski reyna redda mér flowbench (flæðimæla port í heddum, og alskyns svoleiðis) og dundast í því.
Fara á drift keppnir
Byrja hönnunarferlið á Plug N Play VEMS tölvum , M50 til að byrja með og næstu BMW vélar, svo VAG (VW, Audi) Volvo, Nissan og fleira. Búinn að vera vinna í þessu síðan fyrir áramót, miðar vel áfram. Byrja að hanna prentplötur í sumar.

Mappa einhverja bíla þarna úti á VEMS tölvum,, búinn að þurfa ýta nokkrum frá útaf skólanum
:(

Líklega vinna fyrir Dyno Dynamics UK eitthvað, setja upp bekki eða þjálfa fólk í að nota þá.

Nóg að gera þótt maður sé í raun ekki með job úti :lol: :lol:

Fara á hringinn ef ég á einhvern hátt mögulega get eða í það minnsta eitt gott roadtrip eitthvert.

Eins og ég er búinn að vera segja.
Þetta sumar verður legendary!!!!