bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

draumalandið - must see
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=36354
Page 1 of 2

Author:  zneb [ Thu 09. Apr 2009 02:16 ]
Post subject:  draumalandið - must see

Fór á frumsýningu á þriðjudaginn... mæli eindregið með þessari mynd. E-ð sem ég held að flestir hefðu gott af að sjá og velta fyrir sér, hversu alvarlega sem þeir taka því sem er sagt. Mjög flott og vel gerð.
http://www.draumalandid.is/

eina sem maður getur sagt er voðalega getum við verið vitlaus... en hver dæmi fyrir sig

hvernig væri samt að fara að kalla þetta gott áður en allt fer?

Author:  Jónas [ Thu 09. Apr 2009 15:09 ]
Post subject:  Re: draumalandið - must see

Image

Author:  zneb [ Thu 09. Apr 2009 20:55 ]
Post subject:  Re: draumalandið - must see

hehe eins og ég segi, dæmi hver fyrir sig :wink:

en er ekki ágætt að sjá hlutina fyrst og vita hvað maður er að gagnrýna :?:

Author:  KristoferK [ Thu 09. Apr 2009 22:59 ]
Post subject:  Re: draumalandið - must see

Ótrúlegt hvað fólk nennir að væla yfir þessari "náttúru"... Hversu margir fóru uppá Kárahnjúka áður en að þeir fóru að virkja? 5-6 á ári? Hippar eru ekki kúl. Mótmælendur ekki heldur.

Losið ykkur við þessa skurðgrafa hræðslu og nýtum þessar auðlindir okkar. Við þurfum nú held ég á því að halda í dag.

Author:  KristoferK [ Thu 09. Apr 2009 23:00 ]
Post subject:  Re: draumalandið - must see

Úps :oops: Dobbel póst.

Author:  krullih [ Thu 09. Apr 2009 23:10 ]
Post subject:  Re: draumalandið - must see

Það er rétt Kristofer....

Virkjum allt til fjandans, og byggjum álver!!!!!! ÁLVER.....!!!!!!! Setjum öll eggin okkar í eina stór, aluminum basket og bara álverumst... skapar fáránlega mörg störf og þvílíka peninga....
Image

Þetta náttúrulega gerist aldrei.......

Er ekki spurning um að fara að gera greinarmun á álverum og virkjunum. Orðið þreytt. Álver eru ekkert svo fýsileg til langstíma litið, stór hluti peningsins fer útúr landi og stærstur hluti vinnuafls við framkvæmdina kemur frá erlendum aðilum - SHIBBY.

Hægt að skoða annað, og þarf að gera að mínu mati - og nota bene vinn ég í járniðnaðinum sem 'lifir á svona verkefnum'

Author:  ValliFudd [ Fri 10. Apr 2009 00:20 ]
Post subject:  Re: draumalandið - must see

krullih, ég er ekkert sérstaklega pro álver frekar en eitthvað annað, en getur þú sýnt mér graf sem er uppávið síðasta ár? :lol:

Ég segi frekar server farms og stærri tengingar til útlanda. Og vikja allt draslið, ef ekki má virkja, hvað viltu þá? Kolaver? Kjarnorkuver? Komdu með aðra lausn í rafmagnsmálum og ég skal glaður athuga það að skipta um skoðun :)

EDIT:
Smá viðbót.. Danir fór að pirrast út í kjarnorkuver sem er staðsett í Svíðþjóð, rétt hinumegin við sjóinn hjá köben. Allt vitlaust í DK og þeir vildu ekki kjarnorkuver svona nálægt sínu landi.

Svíar svöruðu um hæl.

"Hvar ætlið þið þá að fá rafmagn fyrir Kaupmannahöfn? Kaupmannahöfn fær 80% af sínu rafmagni frá þessu kjarnorkuveri"

Stundum hugsar fólk ekki alveg nógu langt :drunk: Hefði verið snilldin ein ef svíar hefðu bara slökkt á lekaliðanum fyrir dk þegar þetta kom upp :lol:

Author:  krullih [ Fri 10. Apr 2009 00:24 ]
Post subject:  Re: draumalandið - must see

Enginn að gagnrýna virkjanir (allavegana ekki ég)

Pointið með grafinu Valli er að það er bara fádæma heimskulegt að setja öll eggin í eina körfu (í tilefni páskanna). Álver er bara orðið 'standard' svar hjá öllum. Þegar komin 3, 4 á leiðinni með mikilli þrjósku og byggt upp af nánast gjaldþrota companíi. Dettur engum í hug að gera eitthvað nýtt?

Þetta er svona eins og fjórflokkarnir 'Ég kýs hann bara alltaf sko.....'

Íslendingar eru voðalega vanafastir, hvort sem það sé á góðu hlutina eða þá 'þægilegu'

Author:  ValliFudd [ Fri 10. Apr 2009 00:29 ]
Post subject:  Re: draumalandið - must see

Ég er klárlega sammála þér að mörgu leiti. En þetta bauðst fyrir austan og byggð var um það bil að leggjast af þar. That's a fact. Þetta bjargaði austurlandi. Eflaust hefði annar iðnaður einnig geta gert það en þetta er það sem í boði var og ekkert að því.

Author:  zneb [ Fri 10. Apr 2009 01:58 ]
Post subject:  Re: draumalandið - must see

Enginn að tala um hippa eða mótmælendur. Þetta snýst um allt annað og meira en það. Langt frá því að vera bara ádeila eingöngu á umhverfisspjöll, hvaða áhrif þetta hafði á efnahaginn er mjög stór partur af myndinni.

Get ekki séð betur en svo að margir hafi einfaldlega beðið eftir þessu fyrir austan til að húsnæðisverð hækkaði og það gæti hypjað sig í burtu, frænka mín þar meðtalin...

Bjargaði Austurlandi? Hvað lengi? Hvað var lagt undir? Hvaða áhrif hafði þetta á samfélagið?
KristoferK wrote:
KristoferK wrote:
Ótrúlegt hvað fólk nennir að væla yfir þessari "náttúru"... Hversu margir fóru uppá Kárahnjúka áður en að þeir fóru að virkja? 5-6 á ári? Hippar eru ekki kúl. Mótmælendur ekki heldur.


Losið ykkur við þessa skurðgrafa hræðslu og nýtum þessar auðlindir okkar. Við þurfum nú held ég á því að halda í dag.

Verður að afsaka en það að finnast ekki e-ð kúl eru vandræðalega léleg rök og sömuleiðis að stimpla alla sem eru ekki til í að gleypa við nákvæmlega öllu sem stjórnmálamenn mata ofan í mann hippa eða mótmælendur þykir mér frekar þröngsýnt, en engu að síður virðist ganga illa að finna betri rök á móti þeim sem setja spurningarmerki við svona mál.

Og hvað svo þegar það er búið, virkja bara næsta, og síðan næsta, þetta verður einn vítahringur með svona hugsun. Við höfum það fínt og höfðum það mjög fínt fyrir þetta og brjálæðið sem fylgdi í kjölfarið, hversu stóran part sem þetta hafði á ástandið sem við stöndum í núna en það bendir ýmislegt til að þetta hafi ekki hjálpað til... og þá er ég að tala um allt landið

og það að allir landsmenn hafi ekki farið á svæðið er engin ástæði fyrir því að láta það hverfa, hefur einnig mikil áhrif á allt svæði fyrir neðan virkjun, niður til strandar og út í sjó. Allar evrópuþjóðir voru á móti þessu þegar þetta kom til tals á fundi hjá þeim m.a. þar sem þetta var svæði á lista yfir mikilvæg votlendi á heimsvísu, nema einn maður sem var fulltrúi íslands á fundinum þar sem þetta mál var rætt, eina sem hann sagði var að þetta væri efnahgaslega nauðsynlegt fyrir ísland, sem þetta var ekki.

og þetta er langt frá því að vera bara hippar og mótmælendur, hugsa að það sé alveg það síðasta sem þú myndir hugsa ef þú sæir/þekktir mig :wink:

Author:  arnibjorn [ Fri 10. Apr 2009 02:01 ]
Post subject:  Re: draumalandið - must see

Virkjanir og álver eru solid. Ég mun allavega örugglega halda vinnunni minn á meðan Alcoa á Reyðarfirði lifir. :)

Author:  Alpina [ Fri 10. Apr 2009 06:41 ]
Post subject:  Re: draumalandið - must see

arnibjorn wrote:
Virkjanir og álver eru solid. Ég mun allavega örugglega halda vinnunni minn á meðan Alcoa á Reyðarfirði lifir. :)


:shock: :shock: ...... ertu á þrekhjóli með generator 8)

Author:  bimmer [ Fri 10. Apr 2009 08:09 ]
Post subject:  Re: draumalandið - must see

krullih wrote:
Það er rétt Kristofer....

Virkjum allt til fjandans, og byggjum álver!!!!!! ÁLVER.....!!!!!!! Setjum öll eggin okkar í eina stór, aluminum basket og bara álverumst... skapar fáránlega mörg störf og þvílíka peninga....
Image

Þetta náttúrulega gerist aldrei.......

Er ekki spurning um að fara að gera greinarmun á álverum og virkjunum. Orðið þreytt. Álver eru ekkert svo fýsileg til langstíma litið, stór hluti peningsins fer útúr landi og stærstur hluti vinnuafls við framkvæmdina kemur frá erlendum aðilum - SHIBBY.

Hægt að skoða annað, og þarf að gera að mínu mati - og nota bene vinn ég í járniðnaðinum sem 'lifir á svona verkefnum'



Álver eru ekki svo slæm. Það sem er hins vegar alveg ótækt er að þau eru öll í eigu erlendra aðila.
Það væri nær að við Íslendingar ættum álverin og fengjum að njóta ágóðans.

Og svo er þetta graf af álverði náttúrulega bara graf sem sýnir kreppuna. Á eftir að lagast - heimurinn
er sko ekkert að fara að hætta að nota ál.

Author:  krullih [ Fri 10. Apr 2009 11:35 ]
Post subject:  Re: draumalandið - must see

Enginn að tala um að hætta að nota ál - þetta er 'nauðsynjavara'

Við erum bara að troða ótrúlega stórum hluta af okkar innkomu, skuldum og mannafli í einn bissness....sem er flott þegar hann er booming....not so good right now.

ps. lesið ykkur til um Bechtel og þessi giga-corps með hliðsjón af IMF og kreppu.

mbk,
Jonni

Author:  Jónas [ Fri 10. Apr 2009 12:24 ]
Post subject:  Re: draumalandið - must see

Álver eru alveg framtíðinn, annað er bara hippa-tal.

Þótt verð á áli sé lágt í dag mun það hækka í framtíðinni þar sem að eftirspurn eftir áli á bara eftir að aukast í framtíðinni.

Hinsvegar er alveg rétt að það er bull að bara erlendir aðilar eigi þau.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/