Page 1 of 2

Hornstrandir

PostPosted: Tue 07. Apr 2009 22:26
by Hlynur___
hvernig er það, er hægt að keyra eitthvað meira inn á strandirnar en nr.3 sýnir?
kemst maður langt á læstum "33 patrol þangað?

Image

Re: Hornstrandir

PostPosted: Tue 07. Apr 2009 23:36
by saemi
Þetta er náttúrulega friðlýst svæði góurinn....

Auglýsing
um friðland á Hornströndum.

Samkvæmt heimild í 24. gr. laga nr. 47/1971, um náttúruvernd hefur [Umhverfisstofnun] fyrir sitt leyti ákveðið að friðlýsa svæðið norðvestan Skorarheiðar í Norður- Ísafjarðarsýslu, og er svæðið friðland.

Mörk svæðisins eru þessi:
Úr botni Hrafnsfjarðar um Skorarheiði í botn Furufjarðar. Mörkin fylgja Skorará frá ósi og í Skorarvatn. Þaðan liggja þau meðfram suðurströnd vatnsins, en síðan í beina línu úr suðausturhluta þess og í upptök þeirrar kvíslar, sem næst er vatninu og fellur í Furufjarðarós. Miðast mörkin við hugsaða línu 200 m fyrir sunnan kvíslina og síðan ámóta vegalengd sunnan Furufjarðaróss allt til sjávar í Furufjörð.

Reglur þessar gilda um svæðið:
1. Mannvirkjagerð öll, jarðrask og önnur breyting á landi, svo og undan landi allt að 60 föðmum (115m) frá
stórstraumsfjörumáli, er háð leyfi [Umhverfisstofnunar].


2. Umferð vélknúinna farartæka utan vega og merktra slóða er bönnuð, nema leyfi [Umhverfisstofnunar] komi til.

Re: Hornstrandir

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 00:11
by Hlynur___
okey, þá er það spurning með slóðann sem liggur með ísafjarðardjúpi og upp að drangjökli,
þekkir einhver hér inn á þessa slóðir?
langar að komast sem nærst Hornströndum

Re: Hornstrandir

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 05:53
by Thrullerinn
Eina sem ég veit er að fólk fer þangað til að komast frá vélknúnum ökutækjum og annarri byggð :)

Móðir mín hefur farið í göngur þarna síðustu 3-4 árin...

... þannig farðu bara fótgangandi ;) það er líka meira kúl 8)

Re: Hornstrandir

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 06:32
by Hlynur___
er búin að vera að googla þetta svoldið og get ekki betur seð en að maður ætti að geta komist mjög nálægt hornströndunum á ökutæki og það löglega, semsagt með því að keyra á eitthverjum slóða sem er nálægt drangajökli, en hinsvegar ef maður ætlar upp að hornbjargi og þar þá þyrfti maður að fara fótgangandi eða á báti

gangan verður að bíða til sumars :wink:

Re: Hornstrandir

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 07:51
by jens
Myndi reyna að nálgast þessar upplýsingar á f4x4.is.
Er frekar vantrúaður á að það sé farið upp í kringum jökulinn, nema þá upp svokallaðan hraundal og þannig yfir á jökul. Ég veit að menn hafa farið yfir jökul og nokkuð langt út á ströndina á bílum og sleðum, þá er farið að vetri til út af Steingrímsfjarðarheiði og þannig eftir fjöllunum yfir að jökli.

Re: Hornstrandir

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 09:09
by jens
Var aðeins að skoða þetta betur og í fyrsta lagi þá er þetta lámark 38" ferð.
Vanalegast er farið út af Steingrímsfjarðarheiði við sæluhúsið og keyrt eftir fjallahryggnum eins og ég sagði áður en það er mikið um vötn á leiðinni og þetta er ekki farið nema á harðfenni. Þú kemst upp á jökul og að hrollleifsborg, átt líka að geta farið ofan í leirufjörð. Svo er önnur leið sem ég hef heyrt um og þá er farið út á Snæfjallaströnd og hjá bæ sem heitir Unaðsdalur er slóði upp að jökli en þekki það ekki nógu vel.

Re: Hornstrandir

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 12:34
by íbbi_
Jökullinn gæti nú verid stórhættulegur núna

Re: Hornstrandir

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 12:42
by jens
Nákvæmlega, alveg í það síðasta að fara á jeppum myndi ég halda.

Re: Hornstrandir

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 18:33
by Hlynur___
takk fyrir infoið, en annars eru þeir á f4x4 að tala um að kíkja upp á Drangjökul um páskana

Re: Hornstrandir

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 20:27
by JonHrafn
Það eru slóðar sem liggja lengra í norður en Nr3, sá 2 jeppa vera lúsast þá þegar ég kíkti þangað um árið.

Re: Hornstrandir

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 20:47
by siggir
Hlynur___ wrote:hvernig er það, er hægt að keyra eitthvað meira inn á strandirnar en nr.3 sýnir?
kemst maður langt á læstum "33 patrol þangað?

Image


Skv. nýlegu korti er slóði alveg fyrir næsta fjörð og ca heim að ánni.

Re: Hornstrandir

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 20:52
by Twincam
Ættin mín á hús þarna í Veiðileysufirði (þessi neðri, við Reykjarfjörð).... ef ég man þetta rétt, þá á að liggja vegarslóði frá Ófeigsfirði og að mig minnir yfir í Bjarnafjörð, en hvort hann náði lengra en það man ég ekki... Annars man maður þetta ekki lengur, orðin alveg áreiðanlega ein 15-16 ár síðan maður kom þarna síðast.. :|

Re: Hornstrandir

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 21:08
by Hlynur___
JonHrafn wrote:Það eru slóðar sem liggja lengra í norður en Nr3, sá 2 jeppa vera lúsast þá þegar ég kíkti þangað um árið.


geturðu sagt mer svona sirka hvar þú sást þessa slóð, spurning hvert hún liggur?

siggir wrote:Skv. nýlegu korti er slóði alveg fyrir næsta fjörð og ca heim að ánni.


hvar er það að finna? 8)

Re: Hornstrandir

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 21:11
by siggir
Hlynur___ wrote:
JonHrafn wrote:Það eru slóðar sem liggja lengra í norður en Nr3, sá 2 jeppa vera lúsast þá þegar ég kíkti þangað um árið.


geturðu sagt mer svona sirka hvar þú sást þessa slóð, spurning hvert hún liggur?

siggir wrote:Skv. nýlegu korti er slóði alveg fyrir næsta fjörð og ca heim að ánni.


hvar er það að finna? 8)


Þetta er bara í kortabók sem ég á hérna heima. Vegaatlas, gefinn út 2007.