Page 1 of 2

Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 16:41
by krullih
Ætla að leyfa mér að venta smá út hérna :oops:

Mútta lenti í alvarlegu slysi í júní / júlí í fyrra og hefur verið algerlega óvinnufær + þvílíkir verkir og fleira síðan þá. Hefur sett stórt strik í reikning heimilsins og auðvitað lífs allra heimilisaðila.
Ásamt henni voru tvær aðrar konur, báðar á sama róli - óvinnufærar og í hönki.

Drengurinn sem nelgdi aftaná þær var ölvaður...... fékk dóm í dag ////280,000kr\\\\ og 18 mánuðir án teinis....

Ekki mikið ballance þarna á milli að mínu mati - langar helst að ræða við kauða persónulega - en veit að það er ekki rétta leiðin :| :evil: :evil: :argh: :argh:

Re: Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 16:46
by jens
Slæmt mál og dómar oft mjög skrítnir í svona málum, vona að hún nái sem mest af fyrri heilsu.

Re: Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 16:58
by bimmer
Því miður er löggæslu- og dómskerfið handónýtt hér á landi.

Re: Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 17:00
by Angelic0-
bimmer wrote:Því miður er löggæslu- og dómskerfið handónýtt hér á landi.


x2 :!:

Seinvirkt og bjánalegt IMO :!:

Of vægir dómar við grófum brotum og alveg bjánalega þungir við ýmsum minna grófum brotum :!:

Re: Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 19:34
by Bjarkih
Hvernig er með svona tilvik, er alveg ómögulegt eða of dýrt að höfða einkamál?

Re: Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 21:00
by krullih
Það er mögulegt, og auðvitað í skoðun - en þessu fylgir kostnaður því það verður að fara í gegnum lögfræðifirma...$$$$$

Og auðvitað er fjárhagur einstaklingsins alls ekki á réttum kili eftir svona áfall.....

Hálfgerður vítahringur á heildina litið

Re: Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 23:09
by BjarkiHS
krullih wrote:Það er mögulegt, og auðvitað í skoðun - en þessu fylgir kostnaður því það verður að fara í gegnum lögfræðifirma...$$$$$

Og auðvitað er fjárhagur einstaklingsins alls ekki á réttum kili eftir svona áfall.....

Hálfgerður vítahringur á heildina litið


En hvað er málið ??
Mamma þín á að fá tjón sitt bætt úr tryggingu bílsins sem veldur tjóninu !!! (tryggingarnar eiga svo endurkröfurétt á tjónvald)

einkamál hvað ? lengri dóm ? hærri sekt ?

Re: Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 23:14
by ///MR HUNG
krullih wrote:Ætla að leyfa mér að venta smá út hérna :oops:

Mútta lenti í alvarlegu slysi í júní / júlí í fyrra og hefur verið algerlega óvinnufær + þvílíkir verkir og fleira síðan þá. Hefur sett stórt strik í reikning heimilsins og auðvitað lífs allra heimilisaðila.
Ásamt henni voru tvær aðrar konur, báðar á sama róli - óvinnufærar og í hönki.

Drengurinn sem nelgdi aftaná þær var ölvaður...... fékk dóm í dag ////280,000kr\\\\ og 18 mánuðir án teinis....

Ekki mikið ballance þarna á milli að mínu mati - langar helst að ræða við kauða persónulega - en veit að það er ekki rétta leiðin :| :evil: :evil: :argh: :argh:
Það er væntanlega verið að dæma fíflið fyrir að keyra fullur en svo á hún eftir að fá sínar bætur fljótlega því það er oftast reiknað með ári í því ferli.

Hún fær bætur og hann feitttttan reikning.

Re: Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 23:18
by Bjarkih
Er það ekki svona sem Tort og þessi fyrirtæki gera út á?

Re: Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 23:30
by Kristjan
Tryggingarfélagið á endurkröfurétt á fulla gaurinn.

Hann mun þurfa að vinna fyrir skuldunum það sem eftir er, held það sé nokkuð sver refsing.

Skiptir litlu hvort hann fari í jailið í nokkur ár eða ekki, hann verður í skuldafangelsi það sem eftir er...

Re: Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 23:32
by Djofullinn
krullih wrote:Það er mögulegt, og auðvitað í skoðun - en þessu fylgir kostnaður því það verður að fara í gegnum lögfræðifirma...$$$$$

Og auðvitað er fjárhagur einstaklingsins alls ekki á réttum kili eftir svona áfall.....

Hálfgerður vítahringur á heildina litið

Þær eru slysatryggðar. Tala við lögfræðing sem sérhæfir sig í svona málum. Tort etc.

Re: Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Tue 07. Apr 2009 01:36
by IngóJP
Þau mál eru alveg á hreinu. Hann er að benda á það hvað gaurinn sleppur í raun vel frá dómnum.

Samanber vin okkar beggja sem keyrði fullur á ljósastaur 2005 fékk sekt uppá 220 þúsund og 24 mánuði í prófmissi að vísu skuggalega mikið magn sem mældist í honum

Re: Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Tue 07. Apr 2009 06:56
by Viggóhelgi
Miðað við það að mamma þín og 2 aðrar eru í fokki,,, þá myndi maður ýminda sér. 20% öryrki (max) það er venjan í svona slysum..

upphæðirnar eru hæðstar að fara í 10 mills.. enn vanalega ekki ofar enn 5 mills samt...

15 - 30 millur sem gæjinn liggur fyrir. það er nú töluvert. enn samt sem áður eru það peningar sem maður myndi ekki vilja fá, í stað þess að hafa heilsuna..

réttarkerfið er samt gallað með þetta að gera. að þessi skitni 280 þúsund kall er dómurinn,, endurkröfurétturinn sem tryggingarfélagið yrði svo annað mál þannig að ekkert hægt að telja það sem dóm.


280 fyrir að skemma 3 líf varanleg. er ROSALEGA small price to pay.

Re: Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Tue 07. Apr 2009 11:08
by basten
bimmer wrote:Því miður er löggæslu- og dómskerfið handónýtt hér á landi.


Ég er sammála með að dómar eru alltof vægir í mörgum málaflokkum hér á landi en ég fæ ekki séð að löggæslan hér á landi sé handónýt eins og þú segir.

Re: Agalegt dómskerfi hérna á klakanum.... smá 'ventilation'

PostPosted: Tue 07. Apr 2009 11:21
by SteiniDJ
basten wrote:
bimmer wrote:Því miður er löggæslu- og dómskerfið handónýtt hér á landi.


Ég er sammála með að dómar eru alltof vægir í mörgum málaflokkum hér á landi en ég fæ ekki séð að löggæslan hér á landi sé handónýt eins og þú segir.


Sammála, lögreglan hefur heldur betur verið að standa sig undanfarna mánuði.