Geysir wrote:
bebecar wrote:
lulex wrote:
naglar eru málið

](./images/smilies/eusa_wall.gif)
Fyrir fólk sem kann ekki að keyra eftir aðstæðum já!
HEI!.
Það að jafn vel menntaður og gáfaður náungi sem þú ert að þá finnst mér svo út úr kú að þú skulir koma með svona alheimskt og hálfvitalegt komment.
Ég hef búið út á landi allt nánast allt mitt líf og keyri reglulega út á land og þar eru naglar nauðsyn, hvort sem fólk kann að keyra eður ei. Alveg ótrúleg glæra sem myndast oft á vegum út á landi og þar eru nagladekk það eina sem virkar.
Er alveg á því samt að naglar eru óþarfir á höfuðborgarsvæðinu og styð ég það heilshugar að minnka nagladekkjanotkun á höfuðborgarsvæðinu.
Það fer svo í mínar fínustu að sjá svona komment og skrif að það hálfa væri hellingur.
Ég styð nagla þar sem þeirra er þörf annars staðar ekki.
GEYSIR

Slakaðu á
Mig langaði bara aðeins að kynda undir þessu

og það tókst heldur betur... En ég var auðvitað að svara kommentinu "naglar eru málið" sem er ekki sérlega skynsamlegt komment.
En flestir vita nú mína skoðun á þessu. Ég geri mér grein fyrir því að það getur verið glæra á vegum úti á landi en það breytir því ekki að það er samt hægt að aka eftir aðstæðum. Það má t.d. aka hægar, nota harðkornadekk, sleppa því að fara hreinlega, nú eða setja radíal keðjur undir eins og fólk gerir hér á meginlandinu. Það er ekki eins og Ísland sé eina landið í heiminum þar sem snjóar eða kemur hálka á vegi og það er hægt að gera ýmislegt til að aka af öryggi í hálku.
Naglar eru vita gagnslausir í bænum og gefa falskt öryggi. Úti á landi geta naglar gefið talsvert hagræði (það er auðvitað hundleiðinlegt að þurfa í sífellu að vera skella keðjum undir) þar sem þar er oftar glerhálka t.d. á þjóðvegum og þá þarf einfaldlega að vega og meta kostnaðinn af því og velta því yfir á þá sem kjósa að aka á nöglum.
Úti á landi skiptir þetta minna máli - það er alveg rétt. Innanbæjar þá er þetta hinsvegar grafalvarlegt mál, sérstaklega þegar haft er í huga að grip er minna við allar aðrar aðstæður nema ís og þéttpakkaðan snjó og svo ekki sé minnst á svifrykið sem frá þessu kemur sem er oft yfir hættumörkum og hefur áhrif á þúsundir manna.
En ég ítreka að svarið mitt var bara í stíl við "naglar eru málið" og þarf ekki að taka alltof alvarlega

Já, og svona smá viðbót. Ég ók talsvert úti á landi vegna vinnu á meðan ég vann fyrir Skeljung og alltaf án nagladekkja. Reyndar voru allir bílarnir þá án nagladekkja sem voru gerðir út frá höfuðborgarsvæðinu og út á land. Ég veit ekki hvernig það var með bíla hinsvegar sem voru staðsettir út á landi. En allavega, bílarnir voru notaðir úti á landi og þetta var ekki neitt tiltökumál. Ég veit um fleiri fyrirtæki sem eru með sölumenn úti á landi á bílum sem aka á naglalausum dekkjum.