Page 1 of 4
Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Wed 01. Apr 2009 21:41
by IceDev
Sælir
Ég er að reyna að ná smá vit í hann föður minn
Honum langar í Toyota Land cruiser 100 VX sem kostar í kringum 6 millur


Árgerð 2005 og ekinn 60 þúsund
Mér blöskraði þessi ákvörðun hjá honum þegar að hægt er að fá Range Rover Sport Diesel fyrir sama pening!


T.d -
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1Eða
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1S.s það sem ég er að biðja um er ráð um hvernig ég get sýnt honum að Toyota er ekki alpha og omega
Any ideas?
Re: Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Wed 01. Apr 2009 21:48
by Turbo-
ekki hægt

setur ekki kallinn á gamlan landrover með nýju boddý-i
+ að þessi cruiser er svolítið dýr
hægt að fá fína dísel 100cruisera á 2,5-3 millur í dag
Re: Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Wed 01. Apr 2009 21:54
by IceDev
Þetta er s.s uppfærsla á 2003 120 VX cruiser, vill fá nýrri bíl því er 2005 lægsta sem hann vill fara
Re: Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Wed 01. Apr 2009 22:06
by sh4rk
Cruiserinn er allveg mjög góður kostur í marga staði mjög góð ending á vélinni sem er í þeim þeas ef það er dísel vélin í þeim þekki ekki bensínvélina en RR er örugglega mikið dýrari í viðhaldi heldur en Cruiserinn þó svo ég viti ekki allveg um það
Re: Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Wed 01. Apr 2009 22:24
by Axel Jóhann
RR sport anytime! TOYOTUR ER EKKI JAFN GÓÐAR OG MARGIR VILJA HALDA!

Re: Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Wed 01. Apr 2009 22:28
by SteiniDJ
Toyotur eru fínar... For me to poop on.
Re: Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Wed 01. Apr 2009 22:28
by siggir
Ekkert að góðum Cruiser. Eina sem er að þessum er að hann er kjánalega dýr. Fyrir þremur árum seldi mamma 2005 120GX á sex milljónir.
Axel Jóhann wrote:RR sport anytime! TOYOTUR ER EKKI JAFN GÓÐAR OG MARGIR VILJA HALDA!

Þær eru líka oft betri en margir vilja halda

Re: Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Wed 01. Apr 2009 22:29
by Jökull
Það þarf ekki að hugsa þetta neitt frekar Range Rover er klárlega málið og þegar maður er búinn að keyra ógrynni af báðum þessum bílum þá er þetta bara niðurstaðan.
Re: Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Wed 01. Apr 2009 22:40
by Schulii
Er ekki hægt að gera töluvert meira á þessum krúserum heldur en svona innanbæjarjeppa?
Re: Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Wed 01. Apr 2009 22:41
by SteiniDJ
Jökull wrote:Það þarf ekki að hugsa þetta neitt frekar Range Rover er klárlega málið og þegar maður er búinn að keyra ógrynni af báðum þessum bílum þá er þetta bara niðurstaðan.
Ég hef ekki keyrt Land Cruiser, en ég hef keyrt Range Rover Sport og ég verð að segja að Toyotan þarf ekki að standa sig vel til að slá þeim við. :/ En það er auðvitað mitt álit.
Re: Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Wed 01. Apr 2009 23:16
by Aron Andrew
Þú færð líka mismunandi viðhorf í umferðinni ef þú ekur um á LC eða RR
Fólk á RR þykir ekki kúl í dag
En ég tæki LC, bíður upp á mun meira
Re: Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Thu 02. Apr 2009 00:15
by Dr. E31
RRS any day, skítt með ímyndina og allt hitt.
Re: Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Thu 02. Apr 2009 00:19
by IvanAnders
Það er betra og skemmtilegra að keyra RRS heldur en 100LC.... (keyrt þónokkuð af báðum!)
En það er loforð að RRS verður með meira og dýrara vesen!!!
Re: Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Thu 02. Apr 2009 00:49
by ///MR HUNG
RR er eitt af því síðasta sem ég mundi eða peningum í.
Re: Toyotumenn og ruglið í þeim!

Posted:
Thu 02. Apr 2009 02:49
by maxel
Range Rover....þetta er bara allt annað league..