Page 1 of 1

Langaði að sýna ykkur hvað ég er fáranlega óheppinn

PostPosted: Tue 31. Mar 2009 20:27
by bErio
Ég keypti mér VTi Civic 99 árgerð
Mega flottan og heillegan

Var svonna..

Image

Breytti smá og endaði svonna.

Image

En já svo var ég í smá fljótfærni að keyra kringlumýrabrautina og kikti ekki nógu vel á bensínmælirinn og bíllinn byrjar að koka.
Semsagt bensínlaus..
Ég legg honum í frárein og set hazardið á.. og búinn að hringja í strákana til að redda mér.
Bíllinn buinn að vera stopp í svonna 2 min.
Sem endar ekki skemmtilegra en það að ég fæ bíl aftan á mig þegar ég er kyrrstæður.. og bíllinn hennar á 80km/klst !

Bíllinn var á aðreininni og hentist uppá grasið
Segir kannski smá til um þunga höggsins.

Vorkenni stelpunni sem keyrði á mig.
Það var jeppi á undan henni sem að svegði frá á síðustu stundu eins og fífl og stelpan sá ekki bílinn minn fyrr en of seint.

Image

Image

Ég tognaði i háls, baki og hendin er eitthvað að bögga mig..
Vona samt að þetta sé bara temporary..

Síheppni Sævar

Re: Langaði að sýna ykkur hvað ég er fáranlega óheppinn

PostPosted: Tue 31. Mar 2009 20:28
by Angelic0-
Hafðu samband við lögfræðing strax...

Mega gangur í skaðabótamálum núna :lol:

en annars ertu í rétti er það ekki, bíllinn er kyrrstæður :!:

Re: Langaði að sýna ykkur hvað ég er fáranlega óheppinn

PostPosted: Tue 31. Mar 2009 20:38
by arnibjorn
Today, when driving home my car died on me. Out of gas. Called my friends and they where on the way when a women rear ended me. My car is ruined. FML

Djöfull ertu óheppinn drengur!!

Re: Langaði að sýna ykkur hvað ég er fáranlega óheppinn

PostPosted: Tue 31. Mar 2009 20:55
by Kristjan
Það munaði svo litlu að ég lenti í eins atviki í dag, munaði litlu að ég væri í sporum stelpunnar. Það var bíll á undan mér sem sveigði rétt áður en hann kom að kyrrstæðum bíl sem var með hazardinn á nota bene. Ég náði að sveigja frá sem betur fer.

Re: Langaði að sýna ykkur hvað ég er fáranlega óheppinn

PostPosted: Tue 31. Mar 2009 22:02
by Angelic0-
athyglis-skortur hjá fólki alltaf hreint :!:

Re: Langaði að sýna ykkur hvað ég er fáranlega óheppinn

PostPosted: Wed 01. Apr 2009 12:04
by Grétar G.
Áái vona að þú jafnir þig 100% á næstu dögum og aðrir ef fleiri eru með meiðsli.

Re: Langaði að sýna ykkur hvað ég er fáranlega óheppinn

PostPosted: Wed 01. Apr 2009 14:19
by Danni
Mér fannst hann flottari með eyelids og plötuna á réttum stað :?

En nóg um það. Leiðilegt atvik. Þetta er hættan við að vera stopp á veg með svona háan umferðahraða, þess vegna er ég alltaf með nóg bensín, tek helst bensín um leið og ljósið kemur. En hef samt tvisvar orðið bensínlaus :oops:

Re: Langaði að sýna ykkur hvað ég er fáranlega óheppinn

PostPosted: Wed 01. Apr 2009 18:08
by gardara
Angelic0- wrote:Hafðu samband við lögfræðing strax...

Mega gangur í skaðabótamálum núna :lol:

en annars ertu í rétti er það ekki, bíllinn er kyrrstæður :!:


Kyrrstæður bíll er alltaf í rétti!

Re: Langaði að sýna ykkur hvað ég er fáranlega óheppinn

PostPosted: Thu 02. Apr 2009 02:14
by DABBI SIG
gardara wrote:
Angelic0- wrote:Hafðu samband við lögfræðing strax...

Mega gangur í skaðabótamálum núna :lol:

en annars ertu í rétti er það ekki, bíllinn er kyrrstæður :!:


Kyrrstæður bíll er alltaf í rétti!


Ehm... síðan hvenær?
Þarf maður ekki að vera löglega staðsettur eða með lögleg/nægjanlega viðvörunarverki til að teljast í rétti þegar maður er stopp á akrein. Þ.e. með hazard ljós og jafnvel skella út viðvörunarþríhyrning?

Re: Langaði að sýna ykkur hvað ég er fáranlega óheppinn

PostPosted: Thu 02. Apr 2009 03:42
by Angelic0-
DABBI SIG wrote:
gardara wrote:
Angelic0- wrote:Hafðu samband við lögfræðing strax...

Mega gangur í skaðabótamálum núna :lol:

en annars ertu í rétti er það ekki, bíllinn er kyrrstæður :!:


Kyrrstæður bíll er alltaf í rétti!


Ehm... síðan hvenær?
Þarf maður ekki að vera löglega staðsettur eða með lögleg/nægjanlega viðvörunarverki til að teljast í rétti þegar maður er stopp á akrein. Þ.e. með hazard ljós og jafnvel skella út viðvörunarþríhyrning?


Ég er nefnilega ansi viss um að þetta er staðreynd :!:

Re: Langaði að sýna ykkur hvað ég er fáranlega óheppinn

PostPosted: Thu 02. Apr 2009 03:53
by Davíð St.
hvað gerist ef hann er ný stoppaður með hazzard og er að fara úr bílnum til að ná í þríhyrning þegar bílinn keyrir afturendann í klessu.

ég tel að þetta sé svipað mál og ef hann væri á ferð þegar bílinn dúndrar á afturendann þar sem hann Sævar var enn inní bílnum þegar hann fékk höggið á sig.

Re: Langaði að sýna ykkur hvað ég er fáranlega óheppinn

PostPosted: Thu 02. Apr 2009 05:49
by Kristjan
Ég hélt það væri alveg sama hvað maður gerði, ef maður fær bíl aftaná sig þá er maður alltaf í rétti.

Re: Langaði að sýna ykkur hvað ég er fáranlega óheppinn

PostPosted: Thu 02. Apr 2009 09:37
by gardara
DABBI SIG wrote:
gardara wrote:
Angelic0- wrote:Hafðu samband við lögfræðing strax...

Mega gangur í skaðabótamálum núna :lol:

en annars ertu í rétti er það ekki, bíllinn er kyrrstæður :!:


Kyrrstæður bíll er alltaf í rétti!


Ehm... síðan hvenær?
Þarf maður ekki að vera löglega staðsettur eða með lögleg/nægjanlega viðvörunarverki til að teljast í rétti þegar maður er stopp á akrein. Þ.e. með hazard ljós og jafnvel skella út viðvörunarþríhyrning?



Síðan alltaf.
Kyrrstæður bíll er ALLTAF í rétti.

Ég komst að raun um þetta þegar bakkað var á mig og ég var búinn að leggja ólöglega, var víst algerlega í rétti :wink:

Re: Langaði að sýna ykkur hvað ég er fáranlega óheppinn

PostPosted: Thu 02. Apr 2009 10:37
by ValliFudd
Held að það sé samt smá klausa varðandi "kyrrstæður alltaf í rétti"..

Ef þú ert stopp á t.d. Miklubraut, að hleypa út farþega eða taka inn farþega, gætir þú lent í því að vera dæmdur í órétti.