Page 1 of 1

Sprauta felgur

PostPosted: Wed 25. Mar 2009 22:47
by Henbjon
Sælir kraftsmenn.

Ég er með renault megane sport sem ég hef haldið alveg original. Ég nenni ekki að fokkast í ábyrgðinni og hann er líka helvíti skemmtilegur svona óbreyttur bara. :) Ég var samt að spá, ég þarf að henda nýju gúmmíi á felgurnar fyrir sumarið og það væri tilvalið að setja nýjan lit á felgurnar í leiðinni!

S.s. þær eru ekkert skemmdar né beyglaðar, þannig það þarf bara að pússa upp. Hvar er hægt að láta gera allt þetta fyrir sig og fá góða lokaniðurstöðu sem mun ekki líta illa út eftir 1 ár ?

Með kveðju

Re: Sprauta felgur

PostPosted: Thu 26. Mar 2009 10:33
by Höfuðpaurinn
polyhudun.is

Re: Sprauta felgur

PostPosted: Fri 27. Mar 2009 10:28
by Angelic0-
Vélsmiðjan Völlur, hef látið þá vinna svolítið fyrir mig :!:

Allt mega flott, blása og mála felgur :!:

Re: Sprauta felgur

PostPosted: Sat 28. Mar 2009 20:24
by fart
Er samt ekki allt í lagi að sprauta bara, veit að húðun er sterkari

Re: Sprauta felgur

PostPosted: Sat 28. Mar 2009 20:27
by fart
Mig langar dálítið að sprauta RC felgurnar mínar

Re: Sprauta felgur

PostPosted: Sat 28. Mar 2009 20:53
by Jón Ragnar
með að sprauta felgur fæst miklu fallegri áferð

Re: Sprauta felgur

PostPosted: Sat 28. Mar 2009 21:12
by fart
Mig langar allavega að reyna það, spara smá pening enda bara track felgur.

Re: Sprauta felgur

PostPosted: Sat 28. Mar 2009 21:23
by gardara
fart wrote:Mig langar dálítið að sprauta RC felgurnar mínar



Mig langar dálítið í RC felgurnar þínar

Re: Sprauta felgur

PostPosted: Sat 28. Mar 2009 21:26
by 20"Tommi
ekki sandblása ...!!! gler blása frekar ....mun betra ef sprauta á felgurnar