bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

hitt verkefnið mitt. update 2, orðinn góður. svo bara breyta
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=35979
Page 1 of 2

Author:  E-cdi [ Wed 25. Mar 2009 10:38 ]
Post subject:  hitt verkefnið mitt. update 2, orðinn góður. svo bara breyta

jæja ég var að fá mér annað "verkefni" bíl til að druslast á um meðan Mustang er í viðgerð..

fékk þennan bíl á mjöög góðum prís. ef maður talar í tölum þá hefur hann verið að kosta svona 45þús kall.

skipti á honum og 3ára gömlu 42" medion lcd sjónvarpi sem kostaði nytt 149þus.. :lol:

en um er að ræða Jeep Grand Cherokee Ltd. árgerð 1996. ótrulega heill og fallegur bíll.

hann er með rafmagn í öllu. leðri. viðarinnréttingu, dökkum rúðum svo eitthvað sé nefnt..
hann er ekinn 205þús km og er með kílometramæli.
hann er fluttur inn frá kanada einhvertiman snemma á æfiferli sinum

því miður er þessi bara með L6 High output (192Hp) motornum en ekki V8 218hp eins og hinir 2cherokee-arnir sem ég hef átt. en ég er samt sáttur með jepplinginn

hann er silfurgrár með ljósblárri perlu. og breytir því um lit í ákveðnu ljósi..

þetta mun vera þriðji Grandinn minn, og annar Limited grandinn minn :P
þetta er flottur beater á meðan Mukkinn er í vetradvala eða inn í skúr í yfirhalningu ;)

jæja herna eru myndir.. ég er buinn að útvega mér bretti, huddi, ljósum vinstra megin. og jú stuðara.. en restin verður rétt og slegin til ;) nema efsti partur ljósafestingarinar.. ég bora hana úr bilnum sem ég fæ partana úr..

en anyways. herna eru myndir af dallinum og eitthvað

Image

Image
svo innréttingin. eins og ny :o
Image
Image

svo klessufjandinn. en þetta er ekki allvarlegt ;)
Image
Image

þegar ég fékk bílinn þá var hann numerslaus. og buinn að standa óhreifður í 13mánuði fyrir utan blokk herna á selfossi..

svo þegar ég fékk numerin á hann þá komst ég að því að allar bremsudælur voru fastar þannig að ég tók hann inn og liðkaði þær allar upp..
en hann var augljóslega á nyjum klossum allan hringin.. nuna bremsar dallurinn vel og allt virkar.
abs ljósið hætti að loga og það fór að virka rétt..

svo var ruðuþurkuarmurinn ryðgaður fastur :? sem er dáldið bjánalegt þar sem brakketið sjálft er úr plasti :lol:
en eftir einn brúsa af wd40 og hálftima barðsmíðar með töng þá liðkaðist það allt upp og ruðuþurkurnar eru farnar að virka aftur. en letingin er bilaður..
ég þarf að skipta um motorinn seinna..

herna er mynd af ryðgaða plast arminum :lol:
Image
og motorinn
Image


ég tel mig hafa gert fokkalega góðkaup þar sem þetta er fínn bíll

okkur vantaði einmitt ódyran bíl til að þjösnast á á meðan mustanginn er í viðgerð 8)
ekki bíll að verrigerðini :D
er einmitt buinn að eiga 2 áður..

Jeppann sem ég keyrði niður (ekki einn, heldur tvo) ljósastaura á.
hann var Laredo, en samt með 5,2l V8 motor.
Image
Raggi Róberts gerði hann upp ótrulegt en satt. Nuna er hann þektur sem Vibe/audiobahn Cherokee-inn.

svo átti ég þennan Limited sem ég seldi einhverjum jeppa kalli og hann bretti honum í drasl
Image
á því miður ekki stærri mynd :)7
takk fyrir mig í bili og njótið..
kem með uppdate þegar billinn verður komin með nyjan frammenda ;)

Author:  . [ Wed 25. Mar 2009 12:59 ]
Post subject:  Re: hitt verkefnið mitt

ertu ekki að grínast með þessi sæti :lol: :lol: :lol:

Author:  bjornvil [ Wed 25. Mar 2009 13:08 ]
Post subject:  Re: hitt verkefnið mitt

Sorry... en þetta eru ógeðslegir bílar. :puke:

Ég vona að ég þurfi aldrei aftur að keyra svona fyrirbæri.

En það er nú bara mín skoðun :)

Author:  Einarsss [ Wed 25. Mar 2009 13:09 ]
Post subject:  Re: hitt verkefnið mitt

. wrote:
ertu ekki að grínast með þessi sæti :lol: :lol: :lol:



:rofl:

þau horrific

Author:  E-cdi [ Wed 25. Mar 2009 13:11 ]
Post subject:  Re: hitt verkefnið mitt

þau eru heví þægileg sko :P

mér finnst þau kind of cool. ég meina.. ég hef átt áður cherokee með svona sætum. þá fannst mér þau ljót. en mér finnst ekkert að þessu

Author:  Steinieini [ Wed 25. Mar 2009 14:13 ]
Post subject:  Re: hitt verkefnið mitt

Image

:mrgreen:

Author:  Axel Jóhann [ Wed 25. Mar 2009 14:26 ]
Post subject:  Re: hitt verkefnið mitt

Steini lýsir þessu vel en þetta eru svalir bílar.

Author:  maxel [ Wed 25. Mar 2009 15:51 ]
Post subject:  Re: hitt verkefnið mitt

Hehe gangi þér vel með þetta.

Author:  dabbiso0 [ Wed 25. Mar 2009 16:23 ]
Post subject:  Re: hitt verkefnið mitt

bjornvil wrote:
Sorry... en þetta eru ógeðslegir bílar. :puke:

Ég vona að ég þurfi aldrei aftur að keyra svona fyrirbæri.

En það er nú bara mín skoðun :)


Nyji billinn er meira að segja algert drasl. Enda mikið af benz doti i honum

Author:  SteiniDJ [ Wed 25. Mar 2009 17:32 ]
Post subject:  Re: hitt verkefnið mitt

Áttum einusinni svona JEEP, eðal bíll. Vorum reyndar ekki með svona ömmusæti. :shock:

Author:  iar [ Wed 25. Mar 2009 17:40 ]
Post subject:  Re: hitt verkefnið mitt

Er ekki freistandi að sauma hnappa í sætin til að klára lookið? :-)

Image

Author:  íbbi_ [ Wed 25. Mar 2009 17:50 ]
Post subject:  Re: hitt verkefnið mitt

vann við að þjónusta þessa bíla og átti einn slíkan, og þetta eru fínir jeppar, ég er nú búinn að eiga alla helsta jeppana frá þessu tímabili, og samanborið við annað sem var á markaðinum á þessum tíma eru þessir mjög góðir,

wj bíllinn sem kom á eftir honum er fínn líka, en bilar helst til mikið, mér finnst svo þessir nýjustu sístir, mælaborðið í mopar eftir 05 er bara ekki ásættanlegt, auk þess sem nýji(kj) er kominn á sjálfstæðaframfjöðrun og flr sem dregur verulega úr honum sem jeppa, auk þess að vera hálfu tonni þyngri en þeir eldri,

finnst eiginlega bestu grandarnir vera facelift ZJ, s.s þetta boddý eftir 96.

sætin eins og eru í þessum þóttu alveg úbermega á sínum tíma, en skiljanlega eins og þau eru bólstruð þá lýta þau út fyrir að hafa fengið illvígan kynsjúkdóm þegar þau byrja að slitna.

Author:  johann735 [ Wed 25. Mar 2009 17:58 ]
Post subject:  Re: hitt verkefnið mitt

hahah klárlega svona bara uppá netta lúkið hahah verður alla vena ekkert ógeðslegra myndi bara skána við það held ég hahah

Author:  E-cdi [ Wed 25. Mar 2009 20:13 ]
Post subject:  Re: hitt verkefnið mitt

Ivar, er þú eini herna með viti eða? hehe

facelift billinn er snildar fallegur..
en þessi verður eilítið öðruvisi en þeir venjulegur.. ætla að surta giltu listana og þar sem nyja grillið mitt er crome og af laredo bil þá verður það málað svart..
en ég ætla að redda mér facelift frammstuðara.. semsagt með kösturunum.. þessi kom orginal með fiskaaugu og er orginal takki fyrir þokuljós að framan..
get tengt kastarana inn á orginal takkan sem er mjög gott..
einnig ætla ég að sverta á honum öll ljós nema ljóskerið að framan.. en er buinn að ákveða það að setja reyklitaða plasthlíf yfir frammljósin..


þetta með hnappana í sætin er snildar hugmind. spurning um að reyna það 8)

það er dáldill snobbfílingur í þessum sætum. en þau eru ótrulega vel með farin. ekkert slitin og líta mjög vel út.
og kannski er ég þessi gamlamanna típa að ég fila þessi sæti 8)

Author:  gardara [ Thu 26. Mar 2009 11:50 ]
Post subject:  Re: hitt verkefnið mitt

Djúsí sæti!
Hef annars alltaf verið frekar hrifinn af cherokee

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/