Page 1 of 2

Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Sat 21. Mar 2009 16:10
by Svessi
Finnst orðið frekar mikið að vera farinn að borga um 1200 kr fyrir 10 metra (800 gr) af grisjunni hjá N1. Þetta var alltaf í kringum 700-800 kr, (sem var samt meira en nóg).

Ég vil ekki nota twist, hann er heldur ekkert það mikið ódýrari.

Einhver sem veit hvað maður getur fengið svona grisju ódýrari, alveg til í að kaupa í einhverju magni, samt ekki fullann sendibíl í einu!

Re: Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Sat 21. Mar 2009 16:16
by SteiniDJ
Ég vil ekki stela þræðinum, en kannski get ég hjálpað ef ég fæ svar við þessu. Hvað er bón grisja?

Re: Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Sat 21. Mar 2009 17:05
by Einarsss
ég keypti svona sér bónpúða(ekki svamp) frá meguiars til að bera á og svo meguiars örtrefja stykki til að taka það af. Hendi þessu svo bara í þvottavélina eftir notkun.

búið að endast ágætlega í 1 1/2 ár

Re: Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Sat 21. Mar 2009 18:18
by SteiniDJ
Ef þú ert að tala um klúta og þannig, þá er Ólafur í Glitrandi með geggjaða klúta frá Dodo Juice á góðu verði.

Linkur

Re: Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Sat 21. Mar 2009 18:20
by Svessi
SteiniDJ wrote:Ég vil ekki stela þræðinum, en kannski get ég hjálpað ef ég fæ svar við þessu. Hvað er bón grisja?


Image

Þetta er svona skársta myndin sem ég fann til að sýna hvernig grisja þetta er.
Þetta er yfirleitt úr bómull.

Bæði hægt að fá í rúllum og niðurskorinn í klúta, yfirleitt dýrara ef búið er að skera niður.
Er sirka 30 cm breitt í rúllu og ég klippi niður í 30-40 cm langa klúta, brýt þá saman og bæði bóna og þurka bónið af með þeim. Svo hendir maður þessu bara eftir notkun.
Ég nota yfirleitt svona 3-5 niðurklippta búta, fer eftir stærð á ökutækinu og hversu vel maður er að vanda sig.

Ég nota þetta bara eins og aðrir nota twist.
Sumir vilja meina að þetta fari betur með lakkið en að nota twist, ég nota þetta aðalega vegna þess að mér finnst þetta vera mun þægilegra en að nota twistinn.

Ég hef allavega ekki notað twist síðan ég kynnist því að nota svona grisju, sem eru svona 6-7 ár.

Re: Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Sat 21. Mar 2009 20:57
by Jón Ragnar
Hata að bóna með svona grisjum, verður allt útí einhverju kuski

Re: Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Sun 22. Mar 2009 00:09
by iar
Ég myndi prófa það sem Einar stingur upp á. Þessir klútar eru snilld í að þurrka bón af bíl! Nota líka sjálfur þennan pakka og þetta er algerlega málið! Þú munt ekki vilja sjá grisjuna eftir að hafa prófað microfiberinn. ;-)

Re: Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Sun 22. Mar 2009 05:46
by HAMAR
Ég hélt að allir hefðu hætt að nota tvist og grisjur fyrir ca. 25 árum :oops:

Re: Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Sun 22. Mar 2009 13:00
by Jón Ragnar
HAMAR wrote:Ég hélt að allir hefðu hætt að nota tvist og grisjur fyrir ca. 25 árum :oops:



Nákvæmlega :lol:

Re: Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Sun 22. Mar 2009 14:10
by lulex
rosalegt með mjallarbóninu :drool:


:oops:

Re: Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Sun 22. Mar 2009 15:38
by Elnino
einarsss wrote:ég keypti svona sér bónpúða(ekki svamp) frá meguiars til að bera á og svo meguiars örtrefja stykki til að taka það af. Hendi þessu svo bara í þvottavélina eftir notkun.

búið að endast ágætlega í 1 1/2 ár


hvar er hægt að kaupa þetta ?

Re: Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Mon 23. Mar 2009 10:30
by SteiniDJ
Elnino wrote:
einarsss wrote:ég keypti svona sér bónpúða(ekki svamp) frá meguiars til að bera á og svo meguiars örtrefja stykki til að taka það af. Hendi þessu svo bara í þvottavélina eftir notkun.

búið að endast ágætlega í 1 1/2 ár


hvar er hægt að kaupa þetta ?


Málningavörur eru með Meguiars, Kraftsmenn fá 15% afslátt á öllum vörum þar held ég. Svo hefur B&L verið með eitthvað af þessu.

Re: Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Mon 23. Mar 2009 13:10
by Elnino
SteiniDJ wrote:
Elnino wrote:
einarsss wrote:ég keypti svona sér bónpúða(ekki svamp) frá meguiars til að bera á og svo meguiars örtrefja stykki til að taka það af. Hendi þessu svo bara í þvottavélina eftir notkun.

búið að endast ágætlega í 1 1/2 ár


hvar er hægt að kaupa þetta ?


Málningavörur eru með Meguiars, Kraftsmenn fá 15% afslátt á öllum vörum þar held ég. Svo hefur B&L verið með eitthvað af þessu.



keypti eitthvað af svona dóti áðan í toyota selfossi, fer í málningarvörur næst

Re: Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Thu 14. May 2009 20:10
by Elnino
jæja þá er ég að vekja upp gamlan þráð.....

Hvernig þvoið þið bónpúðana, örtrefjatuskuna/handklæðið og vaskaskinnið.?

ég týndi uppls. sem ég hafði um hvernig ætti að þrífa þetta.

má þetta allt fara saman í þvottavél og á hvað mikið?

Re: Hvar fæ ég sem ódýrast bón-grisju

PostPosted: Thu 14. May 2009 20:18
by Jss
Elnino wrote:jæja þá er ég að vekja upp gamlan þráð.....

Hvernig þvoið þið bónpúðana, örtrefjatuskuna/handklæðið og vaskaskinnið.?

ég týndi uppls. sem ég hafði um hvernig ætti að þrífa þetta.

má þetta allt fara saman í þvottavél og á hvað mikið?


Birt án ábyrgðar en ég hef sett þetta á 30° prógram fyrir ullar eða viðkvæman þvott og alls ekkert mýkingarefni. (leiðbeiningar með einhverjum microfiber handklæðinu eða tuskunni sem ég keypti)

Annars eru einhverjar leiðbeiningar hér:

http://www.ehow.com/how_2139357_wash-microfiber-cloths.html

Síðan myndi ég líka leita t.d. á http://www.autopia.org/ til að vera viss.