bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Er að leita mér að fartölvu - ráð?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=35801
Page 1 of 3

Author:  zazou [ Wed 18. Mar 2009 14:17 ]
Post subject:  Er að leita mér að fartölvu - ráð?

Hafið þið hér einhverjar (rökstuddar) skoðanir á fartölvum?

Er að skoða vélar á bilinu 100-150þ., Asus, DELL, HP, Toshiba( :evil: )

Notkun: internet, divx, dvd, tónlistarspilun
Ekki: leikir, forritunarmál, grafíkvinnsla


Toshiba RUSLIÐ mitt dó fyrir 2 vikum, árs gömul BT klúðraði nótunni og ég nenni ekki að standa í einhverju stappi. Búinn að gera páska-, vor-, sumar-, haust- og jólahreingerninguna, fara í gegnum bókhaldið 20x, taka til í skúrnum og ég veit ekki hvað - tölvuleysið að drepa mann :oops:

Author:  Kristjan [ Wed 18. Mar 2009 14:21 ]
Post subject:  Re: Er að leita mér að fartölvu - ráð?

Ég er með Packard Bell, hún hefur reynst mér vel í þetta hálfa ár.

Author:  jens [ Wed 18. Mar 2009 14:21 ]
Post subject:  Re: Er að leita mér að fartölvu - ráð?

Mikið skil ég þig, er sjálfur að gefast upp á " ódýrari " gerðinni að fartölvu, hvað er til ráða.

Author:  Solid [ Wed 18. Mar 2009 14:28 ]
Post subject:  Re: Er að leita mér að fartölvu - ráð?

Þér basicly vantar bara multimedia vél.

Ég mæli með Packard Bell vélum, er með eina svoleiðis sem kostaði rúmlega 125 þúsund kall.

Hún er samt sem áður gríðarlega öflug og hefur ekkert klikkað á einu ári.
Er til dæmis að keyra XBMC og Race Driver GRID á henni án vandræða.

Image

Author:  Steini B [ Wed 18. Mar 2009 14:48 ]
Post subject:  Re: Er að leita mér að fartölvu - ráð?

DELL, HP og IBM (heita núna lenovo eða eitthvað álíka)

Eru í dýrari kantinum, en líka góðir þjarkar sem endast...

Maður er alltaf að heyra og lesa um allskins fartölvur með vesen, en þessar 3 finnst mér vera þær sem fá mesta lofið...

Author:  zazou [ Wed 18. Mar 2009 14:56 ]
Post subject:  Re: Er að leita mér að fartölvu - ráð?

Er þetta Packard Bell selt á Íslandi og hver er ábyrgðaraðili? Til að bæta við þá er STÓR kostur ef það er alþjóðleg ábyrgð - þeas að ekki þurfi að senda tölvuna til Ísland (ef maður væri fluttur út). Svo er líka spurning hvort maður endist nokkuð fram yfir helgi tölvulaus :oops: - þeas draslið verður að fást hér.

Author:  Einsii [ Wed 18. Mar 2009 15:01 ]
Post subject:  Re: Er að leita mér að fartölvu - ráð?

Er EJS ekki að auglýsa Fermingartilboð á einhverri inspiron 15 vél.

Ég er dell maður og hef átt tvær þannig. Er enn að nota gömlu inspiron 8600 véilna sem ég keypti í kringum 2002-2003, Hún er núna að keyra Windows 7 sem sjónvarpstölva og klikkar ekki :)

Fékk mér nýlega Latitude D830 sveraði minnið uppí 4 gíg og hún borðar þunga tölvuleiki í morgunmat, og videovinnslu í kvöldmat ;)

Author:  ValliFudd [ Wed 18. Mar 2009 15:02 ]
Post subject:  Re: Er að leita mér að fartölvu - ráð?

Persónulega er ég hættur að treysta ódýrari merkjunum og fæ mér líklega ekki aftur neitt annað en HP eða Dell..

IBM/Lenovo þoli ég ekki.. Færð nýja vél og ferð í add/remove programs.. og já.. Thinkpad forrit.. þau eru oftast milli 25-40.. :shock:

HP er mitt uppáhald. Traust merki, traustur umboðsaðili (Opin Kerfi).

Virðist samt ómögulegt að fá þá til að gefa upp verð á heimasíðunni.. :?

Author:  Kristjan [ Wed 18. Mar 2009 15:04 ]
Post subject:  Re: Er að leita mér að fartölvu - ráð?

zazou wrote:
Er þetta Packard Bell selt á Íslandi og hver er ábyrgðaraðili? Til að bæta við þá er STÓR kostur ef það er alþjóðleg ábyrgð - þeas að ekki þurfi að senda tölvuna til Ísland (ef maður væri fluttur út). Svo er líka spurning hvort maður endist nokkuð fram yfir helgi tölvulaus :oops: - þeas draslið verður að fást hér.



Tölvuvirkni EHF

Ekki láta samt sölumennina slá þig útaf laginu, þeir eru ansi dúbíús, eins og þeir séu nýsloppnir útaf hrauninu. :lol:

Author:  zazou [ Wed 18. Mar 2009 15:11 ]
Post subject:  Re: Er að leita mér að fartölvu - ráð?

Kristjan wrote:
zazou wrote:
Er þetta Packard Bell selt á Íslandi og hver er ábyrgðaraðili? Til að bæta við þá er STÓR kostur ef það er alþjóðleg ábyrgð - þeas að ekki þurfi að senda tölvuna til Ísland (ef maður væri fluttur út). Svo er líka spurning hvort maður endist nokkuð fram yfir helgi tölvulaus :oops: - þeas draslið verður að fást hér.



Tölvuvirkni EHF

Ekki láta samt sölumennina slá þig útaf laginu, þeir eru ansi dúbíús, eins og þeir séu nýsloppnir útaf hrauninu. :lol:

Var þar, Asus & Toshiba. Heyrði þá sögu fyrir löngu að eigandinn (amk þá) væri dæmdur :lol:

Author:  Jón Bjarni [ Wed 18. Mar 2009 15:19 ]
Post subject:  Re: Er að leita mér að fartölvu - ráð?

Það eru 4 Asus tölvur á mínu heimili.
eina sem hefur klikkað í þeim að einn harðurdiskur hrundi.
En boðeind sem er með asus umboðið á íslandi síðast þegar ég vissi reddaði því samdægurs.
Ég mæli með asus og að kaupa þær hjá Boðeind

Author:  bimmer [ Wed 18. Mar 2009 15:21 ]
Post subject:  Re: Er að leita mér að fartölvu - ráð?

Verslaði Toshiba laptop hjá Tölvutek fyrir áramót - mjög sáttur.

Author:  Einarsss [ Wed 18. Mar 2009 15:23 ]
Post subject:  Re: Er að leita mér að fartölvu - ráð?

Thinkpad!

henda bara út öllu thinkvantage ruslinu sem kemur með og þá ertu solid

Author:  Spiderman [ Wed 18. Mar 2009 15:30 ]
Post subject:  Re: Er að leita mér að fartölvu - ráð?

Ég er búinn að nota Thinkpad í meira en tíu ár.

Ég keypti T40 fyrir 6 árum og hún er enn í daglegri notkun.

Author:  ///M [ Wed 18. Mar 2009 15:31 ]
Post subject:  Re: Er að leita mér að fartölvu - ráð?

einarsss wrote:
Thinkpad!

henda bara út öllu thinkvantage ruslinu sem kemur með og þá ertu solid



Náákvæmlega, ég er með ibm x300 besta tölva sem ég hef átt.. og ég hef átt slatta :-)

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/