bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Veggjakrot...
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=35694
Page 1 of 1

Author:  Astijons [ Sat 14. Mar 2009 19:53 ]
Post subject:  Veggjakrot...

offtopic í áttundaveldi

en er ekki til neinir svona veggjakrotarar lengur sem gera FLOTTAR myndir og hætta þessu krassi?

þetta er lítið pirrandi ógeðslega ljót ógeð...

Author:  Mánisnær [ Sat 14. Mar 2009 22:17 ]
Post subject:  Re: Veggjakrot...

Snýst um að koma nafninu þínu á framfæri, töggin eru fljótlegri en að gera verk útum allan bæ, þeir færustu krassa líka.

Author:  slapi [ Sat 14. Mar 2009 23:56 ]
Post subject:  Re: Veggjakrot...

Fátt fer eins mikið í taugarnar á mér og þetta krass.
Merkilegt hvað óþroskaðir hálfvitar leggja á sig til að koma þessum viðbjóðslegu töggum upp á merkilega staði.
Ekki eru þetta bara eignaspjöll heldur aumingjaskapur að þurfa að eyðileggja eigur fólks og fyrirtækja með þessu skíta gjörning til að koma nafninu sínu á framfæri :roll: , yeye,
Menn hafa gengið svo langt að tagga bíla og hús fólks , þvílíka fokking hugsunarleysið.
Það sem verður oftast fyrir barðinu á þessum vitleysingum eru eigur borga og ríkis , kostnaður við þrif á þessu lendir því á hinum almennaborgara og kæmi mér ekki á óvart að kostnaður við þetta hjá Reykjavíkurborg hlaupi á 7 stafa tölum á ársgrundvelli.
Kannski er þetta eins með þennan lýð og okkur bílaáhugamennina , kannski vantar svæði fyrir þetta. En þar með er spennan farin úr þessu. Menn fá væntanlega lítið útur því að tagga sama portið oft.

Author:  Árni S. [ Sun 15. Mar 2009 15:55 ]
Post subject:  Re: Veggjakrot...

ég hata svona viðbjóð :evil:
það sem fór með mig yfir strikið er að það vora spreyjað huge "bombu" aftan á bíl vinar minns og það var heldur enginn drusla það var glæ nýr chrysler 300c

þetta gerðist nú reyndar í svíþjóð en samt

helvítis skítapakk

Author:  gardara [ Sun 15. Mar 2009 16:29 ]
Post subject:  Re: Veggjakrot...

Árni S. wrote:
ég hata svona viðbjóð :evil:
það sem fór með mig yfir strikið er að það vora spreyjað huge "bombu" aftan á bíl vinar minns og það var heldur enginn drusla það var glæ nýr chrysler 300c

þetta gerðist nú reyndar í svíþjóð en samt

helvítis skítapakk



Áttu myndir af því? :lol: :lol:

Author:  Árni S. [ Sun 15. Mar 2009 21:59 ]
Post subject:  Re: Veggjakrot...

gardara wrote:
Árni S. wrote:
ég hata svona viðbjóð :evil:
það sem fór með mig yfir strikið er að það vora spreyjað huge "bombu" aftan á bíl vinar minns og það var heldur enginn drusla það var glæ nýr chrysler 300c

þetta gerðist nú reyndar í svíþjóð en samt

helvítis skítapakk



Áttu myndir af því? :lol: :lol:


nei en afherju er þetta svona fyndið

Author:  krullih [ Sun 15. Mar 2009 22:40 ]
Post subject:  Re: Veggjakrot...

Leiðinlegt þegar amatörar eru að verki - en þegar fagmenn gera sín verk (þeir fá reyndar oftast borgað fyrir að krota á veggina!) þá er það alveg ótrúlega flott verk. Eitt sem maður þarf líka að hugsa um ef maður sér flotta mynd á 'unwanted' spot er tíminn sem einstaklingurinn hafði í hana - oft ótrúlega stuttur en frábær mynd.

En svona 'skemmdarverk' og ljót tögg frá 7 bekkingum eru ekki alveg að gera sig og koma óorði á annars flott listform!

Author:  Solid [ Mon 16. Mar 2009 02:47 ]
Post subject:  Re: Veggjakrot...

slapi wrote:
Fátt fer eins mikið í taugarnar á mér og þetta krass.
Merkilegt hvað óþroskaðir hálfvitar leggja á sig til að koma þessum viðbjóðslegu töggum upp á merkilega staði.
Ekki eru þetta bara eignaspjöll heldur aumingjaskapur að þurfa að eyðileggja eigur fólks og fyrirtækja með þessu skíta gjörning til að koma nafninu sínu á framfæri :roll: , yeye,
Menn hafa gengið svo langt að tagga bíla og hús fólks , þvílíka fokking hugsunarleysið.
Það sem verður oftast fyrir barðinu á þessum vitleysingum eru eigur borga og ríkis , kostnaður við þrif á þessu lendir því á hinum almennaborgara og kæmi mér ekki á óvart að kostnaður við þetta hjá Reykjavíkurborg hlaupi á 7 stafa tölum á ársgrundvelli.
Kannski er þetta eins með þennan lýð og okkur bílaáhugamennina , kannski vantar svæði fyrir þetta. En þar með er spennan farin úr þessu. Menn fá væntanlega lítið útur því að tagga sama portið oft.


Vel mælt!

Author:  SteiniDJ [ Mon 16. Mar 2009 12:10 ]
Post subject:  Re: Veggjakrot...

Þegar graffarar taka sig til og leggja tíma og mikla vinnu í verkin koma oft ótrúleg listaverk, en þegar þeir eru að krota eitthvað óskiljanlegt bullumsull út um allt - þá er það bara augnasori. Þegar maður sér svona ótrúlega úrbantöffara krota, þá eru þetta lang oftast bara einhverjir smápjakkar. :/

Author:  íbbi_ [ Wed 18. Mar 2009 01:16 ]
Post subject:  Re: Veggjakrot...

þessir fávitar eru samt að mála þessi listaverk sín á eigur annara, ef maður kæmi af svona hyski að sprauta á sína eigin eign þá kæmi viðkomandi ekki vel út úr því,

Author:  Kwóti [ Wed 18. Mar 2009 09:43 ]
Post subject:  Re: Veggjakrot...

svo eru sumir sem að fá listamenn til að taka veggi hja sér og það er oftar en ekki mjög flott
heyrði svo að þeir í nakta apanum hefðu fengið einhvern virtan norðurlanda graffara til að koma og graffa vegg hjá sér og svo í "átakinu" hjá borginni var málað yfir það :lol:

Author:  Geirinn [ Wed 18. Mar 2009 12:42 ]
Post subject:  Re: Veggjakrot...

Það kom einhver gæji á hurðina hjá afa mínum einu sinni og spurði hvort hann mætti gera listaverk á hlið á bílskúrnum hjá honum sem snéri út að leikvelli....

Afa fannst það sjálfsagt mál, ekki nennti hann að mála vegg sem hann sá aldrei og í þokkabót voru bara einhverjir krakkar að krota þarna....

Út kom príðindis verk sem stóð lengi...

Þetta er í lagi þegar fólk spyr um leyfi....

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/