Page 1 of 1

Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 15:34
by bebecar
Mæli með að fólk tékki aðeins á umræðunni hér... (í kommentum við framboðs tilkynningu)

http://helgasigrun.blog.is/blog/helgasigrun/entry/813503/

Það er kannski ekki vitlaust að þrýsta á um einhverjar úrbætur í málefnum akstursíþrótta núna þegar stutt er til kosninga.

Hér er svo fréttin sjálf...
http://www.dv.is/frettir/2009/3/3/velhjolamenn-hafa-ekki-fyrirgefid-helgu/

Það má geta þess að á fjárlögum fyrir 2007 átti að veita 418 milljónum í ýmis konar íþróttastarf, nema auðvitað akstursíþróttir. 484 milljónir fyrir 2008... allt gott og blessað með það en ekki króna í akstursíþróttir. Skákíþróttin fær t.d. 44 milljónir sem auðvitað er í góðu lagi og á að vera - það er bara ótrúlegt að ekki sé króna í uppbyggingu á akstursmannvirkjum. Hvorki fyrir bíla, götuhjól, mótorkross né go-kart.

Árið 2008 áttu 1180 milljónir að fara í íþróttamannvirki Reykjavíkur, þar af 790 milljónir í gervigrasvelli og viljið þið giska hve mikið fór í stuðning við akstursíþróttir? Tölurnar fyrir önnur bæjarfélög eru svipaðar að teknu tilliti til stærðar hlutfalla og á sama tíma fær kvartmílubrautin 400 þúsund frá Hafnarfirði til að reka brautina....

Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 15:41
by Aron Andrew
Það er umræða um þetta í mótorsportinu, eigum við ekki að hafa þetta bara á öðrum hvorum staðnum svo menn þurfi ekki að fletta á milli :)

Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 15:51
by bebecar
Aron Andrew wrote:Það er umræða um þetta í mótorsportinu, eigum við ekki að hafa þetta bara á öðrum hvorum staðnum svo menn þurfi ekki að fletta á milli :)


Jú, mér datt bara í hug að fleiri færu hér inn.... :wink:

Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 16:06
by ValliFudd
Þetta var mikið rætt á bíla/mótorhjólaspjallsíðunum fyrir 2 árum eða svo.. Þá var Ragnheiður forvarnarfulltrúi Vís að bakka þetta upp á fullu. Þær tvær eru rosalegar...

En ég held að hún eigi eftir að kosta framsókn haug af atkvæðum. Og ekki voru þau mörg fyrir..

Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 16:57
by bimmer
Hver kýs Framsókn???? :hmm:

Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 16:58
by Aron Andrew
bimmer wrote:Hver kýr Framsókn???? :hmm:

Image

Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 17:03
by bebecar
Ég held þetta sé bara meira spurning um afhverju eru þrýstingur frá akstursíþrótta hópum ekki til?

Ekki það að það verði margt um fína drætti á næstu árum í fjárútlátum frá ríki - en það má nú kannski krefjast einhvers réttlætis í þessum málum....

Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 18:10
by SteiniDJ
Ég hef aldrei ætlað mér að kjósa framsókn, en sá örsmái vonarneisti sem þeir höfðu er algjörlega dauður f. mér. :evil:

Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 21:04
by Bjarkih
ValliFudd wrote:Þetta var mikið rætt á bíla/mótorhjólaspjallsíðunum fyrir 2 árum eða svo.. Þá var Ragnheiður forvarnarfulltrúi Vís að bakka þetta upp á fullu. Þær tvær eru rosalegar...

En ég held að hún eigi eftir að kosta framsókn haug af atkvæðum. Og ekki voru þau mörg fyrir..



Það er nú BARA kostur ef framsókn tapar atkvæðum.