bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Hærra skilagjald
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=34974
Page 1 of 1

Author:  Bjarki [ Fri 13. Feb 2009 16:46 ]
Post subject:  Hærra skilagjald

Jón Trausti Ólafsson, markaðsstjóri Heklu í viðskiptablaðinu 13.feb '09:

http://m5.is/?gluggi=frett&id=73593

Quote:
Jón Trausti telur skynsamlegt að farin verði svipuð leið og í Þýskaland og fleiri löndum Evrópu, og stjórnvöld myndu beita sér fyrir því að greiða hærra skilagjald fyrir gamla bíla, t.d. 200.000 krónur á bíl. ,,Slíkt myndi þýða að við gætum fyrir sömu fjármuni losað umtalsvert magn bíla af götunum sem eru bæði óöruggir, eyðslusamir og óumhverfisvænir.


þetta er náttúrlega komið frá hagsmunaaðila en þetta yrði ekki sniðugt.
Fyrst vilja þeir senda út bíla til að ná í verðmætan gjaldeyri svo vilja þeir hvetja til þess að henda öllum gömlum bílum....fullt af bílum sem fást fyrir 200þús með mjög gott NCAP próf og fínar mengunartölur.

Svo virðist hann ekki átta sig á því að megin ástæðan fyrir hækkun skilagjalds t.d. í Þýskalandi er til að hjálpa innlendum bílaiðnaði og það er m.a. skilyrði að keyptur sé nýr þýskur bíll.
Ætli hann vilji ekki hafa það sem skilyrði að keyptur sé nýr bíll hjá Nýju-Heklu :lol:

Author:  birkire [ Fri 13. Feb 2009 16:53 ]
Post subject: 

:lol: Ef svo ólíklega vildi að þetta yrði samþykkt ætla ég að byrja að safna ógangfærum druslum !

Author:  Danni [ Fri 13. Feb 2009 17:07 ]
Post subject: 

Ef þetta verður samþykkt verður Evandan mín fyrsti bíllinn sem fer á haugana fyrir 200þús kall :D

Author:  Axel Jóhann [ Fri 13. Feb 2009 18:49 ]
Post subject: 

Þá hendi ég bara Bronco-inum í staðinn fyrir að selja fyrir 90.000. :lol:

Author:  gunnar [ Fri 13. Feb 2009 19:05 ]
Post subject: 

Það mætti nu alveg hækka þetta upp i kannski 50 þusund eða eitthvað.

En annars er þetta natturulega komandi fra manni sem hefur mikilla hagsmuna að gæta að losna við bila sem eru a verðbilinu 0-200 þusund.

Author:  HK RACING [ Fri 13. Feb 2009 19:15 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Það mætti nu alveg hækka þetta upp i kannski 50 þusund eða eitthvað.

En annars er þetta natturulega komandi fra manni sem hefur mikilla hagsmuna að gæta að losna við bila sem eru a verðbilinu 0-200 þusund.
Og það eru einmitt bílarnir sem eru vinsælastir í dag...
á síðustu 2 dögum er ég búinn að fá hátt í 10 símtöl frá fólki sem er að leita að bíl á allt að 100 þús....

Author:  Grétar G. [ Fri 13. Feb 2009 21:04 ]
Post subject: 

Eru þýsku lögin samt ekki þannig af þú hendir honum og færð 200.000 kr. uppí NÝJAN þýskan bíl ?

Author:  Dóri- [ Fri 13. Feb 2009 21:22 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Það mætti nu alveg hækka þetta upp i kannski 50 þusund eða eitthvað.

En annars er þetta natturulega komandi fra manni sem hefur mikilla hagsmuna að gæta að losna við bila sem eru a verðbilinu 0-200 þusund.


þetta er fínt eins og þetta er, asnaleg þessi þróun síðustu ára þar sem það hefur verið hent fullt af bílum í toppstandi.

Author:  ValliFudd [ Fri 13. Feb 2009 22:09 ]
Post subject: 

Ég hlusta mikið á BBC World Service - 94,3 :oops: Og mér heyrðist þeir tala um 2500 evrur fyrir bíla að 9 ára aldri EF þú kaupir nýjan.. æji ég heyrði þetta ekki nógu vel en einhvernvegin svona var þetta ef ég man rétt..

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/