bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bölvað netið....
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=34956
Page 1 of 2

Author:  krullih [ Thu 12. Feb 2009 22:03 ]
Post subject:  Bölvað netið....

Er alveg gífurlega hægt hjá mér þessa vikuna - aðalega á kvöldin.

Er með 'litlu' tenginguna hjá vodafoen, sem er einfaldlega bara lítið gagnamagn en sami max hraðinn skv. þeim.

Væri að ná 30kb/s innanlands, ef ég væri hugsanlega að ná´i af deiling.is

Netið yfirhöfuð er latt og hægt, einhverjar tillögr ?

Author:  300+ [ Thu 12. Feb 2009 22:28 ]
Post subject: 

Taka routerinn úr sambandi og setja aftur í samb.
Setja fresh stýrikerfi...

Author:  bjornvil [ Thu 12. Feb 2009 22:39 ]
Post subject: 

Ég er líka hjá Vodafone og mér finnst netið extra hægt í kvöld :?

Author:  Alpina [ Thu 12. Feb 2009 22:57 ]
Post subject: 

300+ wrote:
Taka routerinn úr sambandi og setja aftur í samb.
Setja fresh stýrikerfi...


Skipta um router ......

þessir eldri eru outdated,, var að tala við VODAFONE og það þarf að endurnýja þessa routera .. brenna fljótt út :x

Author:  BMWaff [ Thu 12. Feb 2009 23:52 ]
Post subject: 

* Ég er nánast búin að gefast upp á deiling.is útaf lélegum hraða, hefur ekkert með net-tenginuna mína að gera... Fyrir utan það að fólk virðist aldrei getað drullast til að klára að seeda... deiling.is er ekki benchmark fyrir nethraða (og ekki torrent yfir höfuð)
* Hægt net getur verið útaf spyware, adware, malware, vírus...
* Hægt net getur verið slappur router...
* Hægt net getur verið bilun hjá þjónustuaðila...
* Og fleira...

Hraðatest
http://speed.c.is (vodafone)
http://www.siminn.is/einstaklingar/adstod/netid/hradi (síminn)
http://nanna.rhi.hi.is/meter/meter.html
http://trinity.itn.is/bord/speedtest5000.html

Author:  Einarsss [ Thu 12. Feb 2009 23:55 ]
Post subject: 

ef þið eruð að downloada af torrent þá laggar netið á meðan ,,, nema þið séuð með því mun betri tengingu

Author:  Vargur [ Thu 12. Feb 2009 23:57 ]
Post subject: 

Ég er í sömu málum, er samt með stóru tenginguna og nýjan router.
Netið er oft extra hægt kvöldin og datt oft út í gærkvöldi.

Ég er hundsvekktur með þetta, dettur stundum í hug að þeir skrúfi bara fyrir hraðan á kvöldin. :?
Þetta er fáranlegt, maður fær ekki það sem maður borgar fyrir, hvað á maður að gera ?

Author:  bimmer [ Fri 13. Feb 2009 00:13 ]
Post subject: 

Vargur wrote:
Ég er í sömu málum, er samt með stóru tenginguna og nýjan router.
Netið er oft extra hægt kvöldin og datt oft út í gærkvöldi.

Ég er hundsvekktur með þetta, dettur stundum í hug að þeir skrúfi bara fyrir hraðan á kvöldin. :?
Þetta er fáranlegt, maður fær ekki það sem maður borgar fyrir, hvað á maður að gera ?


Ég var að lenda mikið í þessu - lýsti sér alveg eins og var verst á
kvöldin (þegar flestir eru á netinu og álagið á kerfið sem mest).

Það sem lagaði málin hjá mér var að draga í nýja símavíra innanhúss.
Sá sem hafði lagt þetta upphaflega gerði það með rassgatinu og allar
tengingar eftir því.

Eftir þetta hefur netið verið rock solid.

Author:  SteiniDJ [ Fri 13. Feb 2009 00:27 ]
Post subject: 

Zyxel routerarnir sem þú færð frá Vodafone eru algjört drasl og það þarf að skipta um þá reglulega. :/

Author:  krullih [ Fri 13. Feb 2009 00:41 ]
Post subject: 

Er ekki með torrent í gangi - þetta var einfaldlega bara einn punkturinn hjá mér. Hef sjálfur unnið við netuppsetningu en þarf alot of resfreshing.

Hef reyndar ekki spáð í að sviddsa router, kannski maður geri það bara á morgun.

Sorglega lélegt net hérna á klakanum m.v verð og fyrir kreppu "þróun"

Author:  Danni [ Fri 13. Feb 2009 00:42 ]
Post subject: 

Ég er einmitt búinn að vera í vandræðum með netið hérna.

Uppá síðkastið er netið búið að vera extra hægt þegar Torrent er opið. Við erum að tala um að það tók mig í dag rúmlega hálfa mínutu að buffera 2 sekúndna hljóðklippu. Ég get ekki heldur skoðað t.d. Bimmerforums þegar Torrent er opið, kemur alltaf Page Load Error.


Svo loka ég Torrent og eftir smá stund kikka öll 12 mbit-in inn aftur. En þetta á aðeins við um tölvuna sem Torrent er í gangi á. Ef ég fer í aðra tölvu er netið í fína lagi meðan Torrent er í gangi á minni. Óþolandi!! Fyrir tveimur vikum síðan hefði ég sagt að þetta getur ekki staðist :lol:

Author:  Haffi [ Fri 13. Feb 2009 05:31 ]
Post subject: 

minnka kannski uploadið? Svona adsl drasl er ekki full duplex

Author:  Einsii [ Fri 13. Feb 2009 08:33 ]
Post subject: 

Setja bara 5-10kb/sek takmark á upload í torrent þegar maður er að nota netið eitthvað. Taka svo takmarkið af þegar maður fer að sofa til að halda uppi hlutfalli (Ef maður er að nota þannig torrent síður)

Author:  Helgi M [ Fri 13. Feb 2009 08:37 ]
Post subject: 

Ég er með Zyxel rouder og hef haft síðustu árin.... Hann var alltaf að detta út, netið hægt og svo framvegis,, snúran sem kom frá vegg og í rouderinn var örugglega um 4 metra löng (símasnúran) en eftir að við hentum henni og settum 1 meters snúru þá hefur það aldrei dottið út síðan og verið þrusugott alla tíð,, og ég er hjá Vodafone núna :)

Author:  Stanky [ Fri 13. Feb 2009 10:02 ]
Post subject:  Re: Bölvað netið....

krullih wrote:
Er alveg gífurlega hægt hjá mér þessa vikuna - aðalega á kvöldin.

Er með 'litlu' tenginguna hjá vodafoen, sem er einfaldlega bara lítið gagnamagn en sami max hraðinn skv. þeim.

Væri að ná 30kb/s innanlands, ef ég væri hugsanlega að ná´i af deiling.is

Netið yfirhöfuð er latt og hægt, einhverjar tillögr ?


Sorry - var að downloada.... passa þetta næst.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/