bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Rolls Royce stolið!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=34914
Page 1 of 2

Author:  zazou [ Wed 11. Feb 2009 12:15 ]
Post subject:  Rolls Royce stolið!

Á maður að trúa því að einhverjir ribbaldar og dusilmenni hafi vogað sér að stela þessum bíl? :shock:

http://www.dv.is/frettir/2009/2/11/roll ... reykjavik/

Megi þeir vera dæmdir til að keyra um á kóreskum bílum það sem eftir er.

Author:  Spiderman [ Wed 11. Feb 2009 12:37 ]
Post subject: 

Ég er 99% viss um að þetta sé ekki sami bíllinn. Þessi sem þú vísar í stendur við Efstaleyti í Reykjavík. Hinn bíllinn er nýkominn og stóð við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði. Sá bíll er líka á erlendum númerum.

Author:  zazou [ Wed 11. Feb 2009 12:53 ]
Post subject: 

Spiderman wrote:
Ég er 99% viss um að þetta sé ekki sami bíllinn. Þessi sem þú vísar í stendur við Efstaleyti í Reykjavík. Hinn bíllinn er nýkominn og stóð við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði. Sá bíll er líka á erlendum númerum.


Er sá ekki grænn líka?

Author:  ValliFudd [ Wed 11. Feb 2009 13:11 ]
Post subject: 

Þetta er víst bíll sem bílaleigan Hassó á/átti..

Er þetta ekki sami og var í Fóstbræðraþætti fyrir nokkrum árum? :lol:

Author:  zazou [ Wed 11. Feb 2009 13:52 ]
Post subject: 

ValliFudd wrote:
Þetta er víst bíll sem bílaleigan Hassó á/átti..

Er þetta ekki sami og var í Fóstbræðraþætti fyrir nokkrum árum? :lol:

Hassó bíllinn er sá sem ég hélt það væri en leðurblökumaðurinn ekki.

Author:  totihs [ Wed 11. Feb 2009 13:58 ]
Post subject: 

hvað er mikið til af þessu hérna?

Hvað ætla þeir sér eiginlega að gera við bílinn?

Author:  Grétar G. [ Wed 11. Feb 2009 14:00 ]
Post subject: 

totihs wrote:
hvað er mikið til af þessu hérna?

Hvað ætla þeir sér eiginlega að gera við bílinn?


Skip og komonum úr landi

Author:  arnibjorn [ Wed 11. Feb 2009 14:03 ]
Post subject: 

Grétar G. wrote:
totihs wrote:
hvað er mikið til af þessu hérna?

Hvað ætla þeir sér eiginlega að gera við bílinn?


Skip og komonum úr landi


Eigandinn er væntanlega búinn að hafa samband við lögguna útaf þessu. Löggan hefur samband við tollinn. Tollurinn hefur samband við öll skipafélögin.

Verður erfitt að koma honum úr landi held ég.

Nema þeir setji hann um borð í eitthvað fiskiskip og smygli honum þannig :lol:

Author:  zazou [ Wed 11. Feb 2009 14:05 ]
Post subject: 

totihs wrote:
hvað er mikið til af þessu hérna?

Hvað ætla þeir sér eiginlega að gera við bílinn?

Shippa þessu út og nota í varahluti eða til aksturs í lögleysuríki? Persónuleg mál? Amk mun þessi bíll vera ríportaður um leið og hann sést í akstri.

Author:  íbbi_ [ Wed 11. Feb 2009 18:20 ]
Post subject: 

það var nýlega fluttur inn blár 86 silver spirit sem er nánast nákvæmlega eins og gamli hassó bíllinn, blár að utan og innan

hann er búinn að standa óhreyfður í aspa/æsufelli núna í dáldin tíma, hann er á nýju númerunum,

Author:  Alpina [ Wed 11. Feb 2009 18:54 ]
Post subject: 

Gísli Guðmunds,, B&L á RR alveg eins og Hasso bíllinn :shock:

Author:  Benzer [ Wed 11. Feb 2009 19:03 ]
Post subject: 

Það er líka einn svona ljósgulur í eyjum innfluttur fyrir ári síðan og hefur verið lítið notaður síðan :) bara deila því með ykkur :D

Author:  Mánisnær [ Wed 11. Feb 2009 19:48 ]
Post subject: 

Og ég held að það sé einn RR á Grenimelinum, eða var.

..

Author:  Gunnar H [ Wed 11. Feb 2009 20:00 ]
Post subject: 

Það væri nú allt í lagi að leita bara í næstu götum því þeir hafa varla náð langt á þessu enska rusli

Author:  BMWaff [ Wed 11. Feb 2009 21:30 ]
Post subject: 

Verður væntanlega bútað niður og sent þannig úr landi... Efast um að tollurinn eða þeir sem ættu að fylgjast með þessu þekki þetta niðurrifið :)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/