bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 22:52

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 13 posts ] 

Á Davíð Oddson að láta undan kröfum Jóhönnu?
52%  52%  [ 33 ]
Nei 43%  43%  [ 27 ]
Veit það ekki 5%  5%  [ 3 ]
Total votes : 63
Author Message
PostPosted: Sun 08. Feb 2009 20:07 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Mon 24. Sep 2007 00:33
Posts: 175
Location: Reykjavík
Jæja, þá er Davíð Oddson, Seðlabankastjóri, búinn að svara bréfi Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, þar sem hún fer fram á að hann segi af störfum tafarlaust. Eins og við mátti búast ætlar Davíð ekki að segja af sér og ásamt því að taka það fram í fjögurra blaðsíðna svari sínu til Jöhönnu, skýtur hann fast á Forsætisráðherra og meira og minna gerir grín af henni.

Og þá er auðvitað komið að umdeildu spurningunni; Hvort þeirra er réttu meginn við strikið; Er Jóhanna bara að ráðast að Davíð persónulega í einhverjum veruleikafirrtum nornaveiðum eða er Davíð svo uppfullur af hroka og valdafíkn að hann getur einfaldlega ekki gefið eftir og játað sig sigraðann?

Og allt í lagi að byrja á að taka fram að ég las bæði bréf Jóhönnu og síðan svar Davíðs Oddsonar. Ef þið eigið eftir að lesa svör Seðlabankastjóra þá eru þau að finna hér; http://sedlabanki.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=6800

Persónulega finnst mér þetta gott hjá kallinum að láta ekki undan þessum áróðri Ríkisstjórnarinnar. Eins og margt oft hefur komið fram þá gerði hann ekkert rangt, fyrir utan það að fylgja þeim reglum sem komu í gegnum EES. Ekki er hægt að reka hann fyrir það? Okkar ágæti Forsætisráðherra hefur tekið þá ákvörðun að það fyrsta sem hún vilji gera í embættinu er að skíta rækilega í brækurnar. Væri ekki nær að vinna í áttina að því að endurskipuleggja og byggja upp efnahags- og bankakerfið hér á landi í stað þess að ofsækja einstaklinga? Er hér kannski bara verið að slá ryki í augu almennings á meðan ríkisstjórnin situr á rassgatinu og gerir ekkert. Af hverju voru menn aftur að heimta það að ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar myndi enda?

Það verður fróðlegt að sjá svör Jóhönnu við þessum orðum Davíðs, enda þó nokkrar staðreyndir þarna sem hún getur ekki flúið frá. Forsætisráðherra óskar eftir því að Davíð Oddson segi af sér og að annar Seðlabankastjóri verði ráðinn á fagmannlegum grundvelli... Þ.e.a.s. hann á að víkja þar sem hann er ekki menntaður hagfræðingur. Á sama tíma er hagfræðingi vikið úr störfum efnahagsráðuneytisins og lögfræðingur ráðinn í hans stað. Með sömu rökum eiga hinir tveir Seðlabankastjórarnir að víkja; Þeir eru báðir menntaðir hagfræðingar.

Væntanlega hafa þeir Íslendingar sem hata Davíð Oddson í áskrift froðufellt af bræði þegar þeir lásu þetta bréf hans. En það er bara akkurat þannig að Davíð Oddson á að víkja af því að hann heitir Davíð Oddson og er Sjálfstæðismaður og allir þessir gömlu kratar hafa verið með horn í síðu hans undanfarin 20 ár. Núna vilja menn hefna sín, þetta tengist störfum hans voða lítið virðist vera. Enda margoft búið að sýna fram á það að hann gerði ekkert rangt ef við ættum að líta á þetta frá fagmannlegu sjónarhorni. En hvað er gaman við það? Það er miklu skemmtilegara að væla bara og hóta hinu og þessu og beita síðan áróðri í fjölmiðlum. Það er jú það sem þetta snýst um, ekki satt, að vera með fyndnasta skrípaleikinn? Ef við eigum að reka hann fyrir að vera lögfræðingur en ekki hagfræðingur, eigum við þá ekki að reka Forsætisráðherra fyrir að vera flugfreyja?

Davíð Oddson á að sjálfsögðu ekki að láta kúga sig úr embætti án einhverra saka. Það er bara þannig að Jóhanna Sigurðardóttir klikkaði á aðferðafræðinni. Og nú spyr ég; Hvað gerði Davíð rangt? - Ég svosem veit að ég fæ engin haldbær svör. Pólitískir andstæðingar Davíðs hafa ekki getað bent á hvað hann gerði af sér síðan í október og það fer ekki að breytast.

Fróðlegt verður að fylgjast með áframhaldinu og fróðlegast verður að horfa á Jóhönnu reyna að snúa sig útúr þessari vitleysu sem hún sjálf hefur komið sér í. Væri ekki nær að einbeita sér að öðrum málefnum í stað þess að kosta þjóðina mörg hundruð milljónir til þess eins að losna við Seðlabankastjórn... Ég myndi halda það.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 08. Feb 2009 20:25 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 01. Apr 2008 14:00
Posts: 339
Mín skoðun er sú að Davíð hefði átt að fá stólinn hennar Jóhönnu, einungis fram að kosningum í maí og bara með það að markmiði að setja bráðabirgðalög til að hægt væri að frysta eignir og taka auðjöfra eignarnámi, hann er eini maðurinn sem hefur verið í stjórnmálum og hægt væri að hóa í sem hefur BALLS til að hjóla í þessa kalla af fullri hörku. Vill taka það fram að ég myndi ekki X-a við D í næstu kosningum en þessa fléttu hefði ég viljað sjá.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 08. Feb 2009 20:31 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Mon 24. Sep 2007 00:33
Posts: 175
Location: Reykjavík
300+ wrote:
Mín skoðun er sú að Davíð hefði átt að fá stólinn hennar Jóhönnu, einungis fram að kosningum í maí og bara með það að markmiði að setja bráðabirgðalög til að hægt væri að frysta eignir og taka auðjöfra eignarnámi, hann er eini maðurinn sem hefur verið í stjórnmálum og hægt væri að hóa í sem hefur BALLS til að hjóla í þessa kalla af fullri hörku. Vill taka það fram að ég myndi ekki X-a við D í næstu kosningum en þessa fléttu hefði ég viljað sjá.


Já, hann er einn af fáum pólitíkusum hér á landi með bein í nefinu. Synd að ekki fleiri taki hann sér til fyrirmyndar.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 08. Feb 2009 20:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
KristoferK wrote:
300+ wrote:
Mín skoðun er sú að Davíð hefði átt að fá stólinn hennar Jóhönnu, einungis fram að kosningum í maí og bara með það að markmiði að setja bráðabirgðalög til að hægt væri að frysta eignir og taka auðjöfra eignarnámi, hann er eini maðurinn sem hefur verið í stjórnmálum og hægt væri að hóa í sem hefur BALLS til að hjóla í þessa kalla af fullri hörku. Vill taka það fram að ég myndi ekki X-a við D í næstu kosningum en þessa fléttu hefði ég viljað sjá.


Já, hann er einn af fáum pólitíkusum hér á landi með bein í nefinu. Synd að ekki fleiri taki hann sér til fyrirmyndar.


Já ég er sammála þessu. Mér fannst líka fyndnast í þessu öllu að sjá að hún móðir mín sem er mesta anti-Davíð manneskja í veröldinni á eftir Steingrími J, var sammála Davíð í þessari rimmu hans.

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 08. Feb 2009 22:07 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Fri 07. Sep 2007 22:24
Posts: 134
Location: World Class
http://ruv.is/servlet/file/bref%20til%20davids.pdf?ITEM_ENT_ID=249196&COLLSPEC_ENT_ID=32

_________________
Pajero 36" '07 - Dísil-Hákur (TIL SÖLU)
E46 BMW 318i - Kreppu-Beater
E39 BMW 523 - A-B Beater


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 08. Feb 2009 22:17 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Það má samt ekki gleyma því að forsætisráðherra er yfirmaður seðlabankastjóra. Síðast þegar ég vissi þá eiga menn að fara eftir því sem þeim er skipað, hvernig yrði þetta annars ef allir embætismenn ríkisins færu bara að gera hlutina eftir eigin höfði bara vegna þess að þeim finnst tilskipun yfirmans vera persónuleg árás?

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 08. Feb 2009 22:30 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Mon 24. Sep 2007 00:33
Posts: 175
Location: Reykjavík
Bjarkih wrote:
Það má samt ekki gleyma því að forsætisráðherra er yfirmaður seðlabankastjóra. Síðast þegar ég vissi þá eiga menn að fara eftir því sem þeim er skipað, hvernig yrði þetta annars ef allir embætismenn ríkisins færu bara að gera hlutina eftir eigin höfði bara vegna þess að þeim finnst tilskipun yfirmans vera persónuleg árás?


Ef að yfirmaður þinn segir við þig; "þú ert rekinn afþvíbara," ferðu þá bara hljótt og þegjandi af því að þú átt að fara eftir því sem þér er skipað?

Davíð Oddson er ekki að gera hlutina eftir eigin höfði. Hann er að sinna starfi sínu, og hann sem starfsmaður hefur auðvitað réttindi. Það er ekkert hægt að reka hann afþvíbara.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 08. Feb 2009 22:35 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Posts: 1445
Location: Reykjavík
KristoferK wrote:
Bjarkih wrote:
Það má samt ekki gleyma því að forsætisráðherra er yfirmaður seðlabankastjóra. Síðast þegar ég vissi þá eiga menn að fara eftir því sem þeim er skipað, hvernig yrði þetta annars ef allir embætismenn ríkisins færu bara að gera hlutina eftir eigin höfði bara vegna þess að þeim finnst tilskipun yfirmans vera persónuleg árás?


Ef að yfirmaður þinn segir við þig; "þú ert rekinn afþvíbara," ferðu þá bara hljótt og þegjandi af því að þú átt að fara eftir því sem þér er skipað?

Davíð Oddson er ekki að gera hlutina eftir eigin höfði. Hann er að sinna starfi sínu, og hann sem starfsmaður hefur auðvitað réttindi. Það er ekkert hægt að reka hann afþvíbara.


myndir þú hafa smið í vinnu sem bakari ef brauðið myndi alltaf koma myglað fram ?

þessi maður er vanhæfur, hann á að segja af sér, menn hafa sagt af sér við ekkert eða jafnvel minna tilefni...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 08. Feb 2009 22:38 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Alveg óháð því hvort menn telja Davíð hafa gert eitthvað eða ekki gert eitthvað þá einfaldlega verður að fá nýjan seðlabankastjóra til að skapa einhvern trúverðugleika á íslensku fjármálakerfi.
Seðlabanki (sem er mikilvægasta stofnun fjármálakerfisins) án trúverðugleika er óstarfhæf stofnun.
Þeir sem hafa lesið sér eitthvað til í hagfræði vita hversu miklu máli það skiptir fyrir virkni peningamálastefnunnar að seðlabankinn sé trúverðugur.

Þeir sem enn eru á því að Davíð eigi ekki að víkja hreinlega skilja ekki einfalda hagfræði.
Það eru einfaldelga hagfræðileg rök fyrir því að skipta þarf um stjórn SÍ.
Hefur ekkert með „hatur“ eða „einelti“ að gera.
Maður er alveg kominn með ógeð á því hvernig Íslendingar þurfa alltaf að henda skynseminni út um gluggann til að geta sett sig í einhverjar pólitískar skotgrafir. Sorglegt vægast sagt.
Fólk þarf að hætta þessum endalausum flokkshugsunarhætti og fara að hugsa sjálfstætt.
Því miður er eins og stór hluti fólks sé með greind á við skónúmerið sitt og geti ekki myndað sér skoðun á hlutum nema að gleypa við einhverjum kjánalegum og einfeldningslegum flokkslínum.
Það er kominn tími til að Íslendingar hætti þessum afdalahugsunarhætti og fari að láta fagmennsku ráða för.
Eins og staðan er í dag er þetta einn stór sirkus og við erum að athlægi úti í heimi.

Hér eru annars nokkrir punktar um SÍ sem birtust í Fréttablaðinu fyrir einhverju síðan:
Quote:
1. Seðlabankinn er gjaldþrota. Stjórnendur hans töpuðu 150 milljörðum í óvarlegri lánastarfsemi til svokallaðra „óreiðumanna” í því sem kallað var ástarbréfaviðskipti. Þetta jafngildir hálfri milljón króna á hvert mannsbarn í landinu.
2. Seðlabankinn nýtti ekki góðu dagana til að byggja upp gjaldeyrisvaraforða í samræmi við vöxt fjármálakerfisins, þrátt fyrir ábendingar um nauðsyn þess, m.a. frá Þorvaldi Gylfasyni. Viðbúnaður bankans við fjármálakreppu var því í skötulíki.
3. Jafnvel í vor synjaði bankinn láni frá J.P. Morgan sem bauðst á góðum kjörum og nam hærri fjárhæð en aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins nú. Lýsir það ótrúlegu vanmati á viðbúnaðarþörf.
4. Bankinn áttar sig ekki á hlutverki sínu í fjármálastöðugleika og beitti ekki stjórntækjum sínum til að hemja vöxt bankanna, heldur lækkaði þvert á móti bindiskyldu sem var mjög misráðið.
5. Seðlabankinn hefur nær aldrei náð verðbólgumarkmiði sínu frá því honum var sett það í upphafi aldarinnar.
6. Bankinn vanmat augljóslega áhrif of sterks gengis á neyslu og fjárfestingagleði og þar með þenslu.
7. Að geyma gjaldeyrisforða þjóðarinnar á Englandi eftir að Icesave-vandinn var ljós og hætta á frystingu hans, er líkt því að vera í sjóorrustu hjá skipstjóra sem gleymdi púðrinu í landi. Yfirsjónin ætti að varða við þjóðaröryggi.
8. Óviðunandi er að stjórnendur Seðlabankans hafi frétt það í London í febrúar sl. að íslensku bankarnir væru í alvarlegum vanda. Ætlast verður til þess vegna stöðu og hlutverks bankans að hann hefði átt að uppgötva það sjálfur og fyrr.
9. Óskiljanlegar eru ívilnanir hinn 15. apríl í tengslum við bindiskyldu vegna útibúa erlendis eftir þær upplýsingar sem Seðlabankinn hafði fengið í London.
10. Hafi Seðlabankinn fengið svo greinargóðar upplýsingar um stöðu bankanna í London er skýrsla bankans um fjármálalegan stöðugleika frá maí sl. beinlínis villandi upplýsingagjöf.
11. Ófaglegt er að engin viðbragðsáætlun hafi verið til í bankanum vegna fjármálakreppu.
12. Lækkun og hækkun vaxta á víxl jók ekki trúverðugleika.
13. Óheppilegt var og trúlega viðvaningsháttur að Seðlabankinn keppti við viðskiptabankana um fjármagn, m.a. með skuldabréfaútgáfu og í lánalínum.
14. Viðvaningsháttur var að bankinn þagði þegar fréttir bárust af því að hann væri ekki með í samningum norrænu seðlabankana við þann bandaríska. Að bankinn skyldi ekki ná samningum við þann bandaríska var nógu slæmt en þögnin jók á ótta og óvissu og gróf enn frekar undan trúverðugleika á ögurstundu.
15. Ákvörðun um ríkisvæðingu Glitnis var stórslys. Svo röng var hún að stjórnvöld vonuðust fljótlega eftir þroti bankans svo ekki þyrfti að efna samninga! Hve illa er þá komið fyrir trúverðugleika Seðlabankans?
16. Fum og fát í gengismálum dró enn frekar úr trúverðugleika og fagmennsku í Seðlabanka Íslands. Ákvörðun um að festa gengið við 175 stig verður lengi kennd sem hrapaleg mistök, enda lifði „staðfesta” bankans í gengismálum aðeins í tvo daga, því oftrúin á krónuna var svo víðs fjarri veruleikanum á gjaldeyrismarkaði. Hún hefur síðan fallið um tugi prósenta.
17. Kastljósviðtal við formann bankastjórnar hjálpaði ekki til við að verja stærsta fyrirtæki landsins, Kaupþing, falli.
18. Þyngra er en tárum taki ótímabær yfirlýsing Seðlabankans um svokallað Rússalán. Bæði spillti það mjög þeim lánasamningum sem Geir Haarde hafði átt frumkvæði að og einnig orðspori okkar á alþjóðavettvangi.
19. Fyrrnefnt Kastljósviðtal, sem m.a. var birt í Wall Street Journal, dró nokkuð úr trúverðugleika íslensks fjármálakerfis á viðkvæmu augnabliki. Einkum þau ummæli sem voru þýdd svo:…Iceland is „not going to pay the banks’ foreign debts”.
20. Óheppilegt var að seðlabankastjóri skyldi hóta stjórnarformanni stærsta fyrirtækis landsins knésetningu.
21. Óheppilegt er að seðlabankastjóri dylgi um viðskipti einstaklinga við bankakerfið og ástæður beitingar hryðjuverkalaga.
22. Óheppilegt er að seðlabankastjóri aflétti einhliða trúnaði af fundum sínum með forystumönnum ríkisstjórnarinnar og samningum við IMF.


Annars eru menn alltaf að segja það að Davíð hafi varað við hruninu, ég spyr þá, af hverju gerði hann ekkert i því (hann hefði t.d. getað tekið seðlabankastjóra Líbanon sér til fyrirmyndar)?
SÍ gerði t.d. ekkert til að hemja útþenslu íslenska bankakerfisins, frekar að SÍ hafi hjálpað bankakerfinu að þenjast út.
Það dugar því lítt fyrir Davíð að hreykja sér af því að hafa séð þetta allt fyrir.

Ástæða þess að ég vil Davíð úr SÍ hefur ekkert með pólitík að gera eins og sumar einfaldar sálir vilja snúa þessu upp í.
Þetta snýst um skynsemi.

_________________
BMW E34 525iA '95


Last edited by Zyklus on Thu 12. Feb 2009 02:36, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 08. Feb 2009 22:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Hvernig finnst honum hann semsagt hafa staðið sig vel?

Sagði fólki að eitthvað væri að, þegar enginn hlustar. Fer hann þá bara heim og segir, jæja þau vilja ekki hlusta, ég robaði þessu úr mér, ég er stikkfrí???

Þegar allt fer á rassgatið þá er það ekki MÉR að kenna því að ég var búinn að láta vita.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 09. Feb 2009 05:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Hver nennir að horfa á Sörvævor og allt þetta sviðsetta raunveruleikasjónvarp þegar hann býr á Íslandi?

Þetta mál er of flókið til að taka afstöðu, þetta er bara eins og trúarbrögð fyrir mér, Davíð góður, einhver annar vondur eða öfugt. Það sem skiptir mig mestu máli er bara skemmtanagildið 8)

Image


Samfylkingin hefur frá byrjun verið popúlistaflokkur sem sveiflast með nýjustu skoðanakönnunum, engin festa. Þó er ég hlynntur þeirri endurnýjun og hreinsun sem er að eiga sér stað víðast hvar sem afleiðing af komu þeirra og rugludallanna í stjórn.

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 09. Feb 2009 16:09 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Posts: 1121
Location: Rvk
Finnst alveg sjálfsagt að maðurinn sem situr (ásamt öðrum) við stjórnvölin á íslensku peningastefnunni segi af sér eða sé rekinn þegar allt kerfið er hrunið! alveg sama hvort hann hafi reynt að gera allt sem "hann" taldið vera rétt á þeim tíma sem hann gerði það (eða gerði ekki myndir maður segja núna)...

Mér persónulega væri sama þó þetta væri einhver annar en Davíð Oddson, hann ætti að fara... Fólk er bara of fast í þessum skrípaleik sem hefur umkringt Dabba Kóng að allt sem gerist sem tengist honum eru persónulegar árásir eða samsæri... Finnst skrítið að fólk sé að standa með manni sem tekur sína eigin hagsumi framar allri þjóð okkar og mögulega lengja í þessu ástandi sem við erum í með svona bulli... Ég mat Davíð mikils einu sinni, hann hefur marga kosti... En margir af þeim kostum eru einmitt ókostir alveg í augnablikinu...

_________________
Núið:
BMW 730d '04


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 11. Feb 2009 19:03 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02
Posts: 469
Svolítið seint svar, en kom þó!

Finnst fáránlegt að fólk sé ennþá að hugsa um að þetta séu flokkadrættir og einelti. Menn sem sigla fyrirtækjum í einkageiranum eða í þeim opinbera eiga að sæta ábyrgð, í 99% tilfella með uppsögn, þarna er honum boðin afsögn OG samningar um eftirlaun.

Maðurinn gerði frábæra hluti á sínum tíma og er snargáfaður að sögn annara en það skiptir bara núll máli hérna. Þeir sem eru með bláustu augun geta varla lengur verið að verja einstakling sem sigldi beint í þrot og neitaði öllum hringjum á leiðinni. Þetta heitir hroki og frekja.

Sorglega er að hann hefði geta sagt af sér, beðist afsökunar og haldið í eitthvað af hans áður góða orðstýr. Það er núna farið og eftir situr stór hópur fólks með andstyggð á honum og hans hroka.
Get varla ímyndað mér að þetta gleymist - þó svo að við séum frábær í að gleyma.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 13 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 6 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group