bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Upplýsingar um leiguverð https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=34798 |
Page 1 of 1 |
Author: | bjornvil [ Thu 05. Feb 2009 12:48 ] |
Post subject: | Upplýsingar um leiguverð |
Sælir Nú vill ég fara að leigja út íbúðina mína fljótlega. Hún er í Reykjanesbæ og mig vantar svo að vita hvað er gangvirði á leigu á svona íbúð. Hverjir vita svona? Fasteignasalar? Húseigendafélagið? |
Author: | gstuning [ Thu 05. Feb 2009 12:50 ] |
Post subject: | |
Hvernig íbúð ? Best er að fylgjast með blöðunum og sjá hvað er verið að auglýsa þær á. |
Author: | bjornvil [ Thu 05. Feb 2009 13:09 ] |
Post subject: | |
Þetta er fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýli. Mjög fín íbúð. Varla að maður tími að leigja hana, en maður er víst að verða einn og hefur lítið við allt þetta pláss að gera, fyrir utan það að gott væri að vera með aðeins meiri aur milli handanna þessa dagana ![]() Ég hef ekki verið að skoða blöðin neitt af viti, en ég býst ekki við að það sé mjög mikið af svona íbúðum til leigu hér á Suðurnesjunum, svo ég held það sé erfitt að sjá einhverja verðhugmynd þannig. |
Author: | Doror [ Thu 05. Feb 2009 13:34 ] |
Post subject: | |
Hvað er hún margir fm? Ég er að leigja íbúð á góðum stað í kóp, 3 herb og 117 fm á 100k.. Bróðir minn er að leigja íbúð á Selfossi, 4 herbergja 110fm+ á svona 80-90k. til dæmis. |
Author: | bjornvil [ Thu 05. Feb 2009 16:07 ] |
Post subject: | |
Doror wrote: Hvað er hún margir fm?
Ég er að leigja íbúð á góðum stað í kóp, 3 herb og 117 fm á 100k.. Bróðir minn er að leigja íbúð á Selfossi, 4 herbergja 110fm+ á svona 80-90k. til dæmis. Ég man nú aldrei hvað hún er stór. Eitthvað um 120 fm. Býst við að 100k sé svona verðið á þessu. |
Author: | íbbi_ [ Thu 05. Feb 2009 16:09 ] |
Post subject: | |
ég var að leigja rúma 60fm í kópavogi á 80 og sagði því upp, hélt ég myndi sjá eftir þ´ví þar sem það VAR mjög gott verð, en sé í dag hvað þetta er búið' að breytast mikið, er að leigja aðeins minni íbúð + 30fm skúr á 65 |
Author: | Astijons [ Thu 05. Feb 2009 16:13 ] |
Post subject: | |
hafa það frekar í lærri kantinu sem þu fáir það borgað ... |
Author: | Hannsi [ Thu 05. Feb 2009 16:19 ] |
Post subject: | |
100-120 þús er alveg í lagi fyrir 120fm í tvíbýli Annars er mikið verið að auglýsa í Víkurfréttum laus húsnæði til leigu ![]() |
Author: | Alpina [ Thu 05. Feb 2009 18:28 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: ég var að leigja rúma 60fm í kópavogi á 80 og sagði því upp, hélt ég myndi sjá eftir þ´ví þar sem það VAR mjög gott verð, en sé í dag hvað þetta er búið' að breytast mikið, er að leigja aðeins minni íbúð + 30fm skúr á 65
Er ekki SRT 4 enn á nýbbanum ![]() ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Thu 05. Feb 2009 18:29 ] |
Post subject: | |
Alpina wrote: íbbi_ wrote: ég var að leigja rúma 60fm í kópavogi á 80 og sagði því upp, hélt ég myndi sjá eftir þ´ví þar sem það VAR mjög gott verð, en sé í dag hvað þetta er búið' að breytast mikið, er að leigja aðeins minni íbúð + 30fm skúr á 65 Er ekki SRT 4 enn á nýbbanum ![]() ![]() nei |
Author: | Alpina [ Thu 05. Feb 2009 18:32 ] |
Post subject: | |
Núú... sá hann þarna fyrir stuttu ![]() |
Author: | Mánisnær [ Thu 05. Feb 2009 19:44 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: ég var að leigja rúma 60fm í kópavogi á 80 og sagði því upp, hélt ég myndi sjá eftir þ´ví þar sem það VAR mjög gott verð, en sé í dag hvað þetta er búið' að breytast mikið, er að leigja aðeins minni íbúð + 30fm skúr á 65
hmm.. í Breiðholti þá ? Þetta er rosalega flott verð |
Author: | íbbi_ [ Thu 05. Feb 2009 21:45 ] |
Post subject: | |
leiguverð er bara ekki hærra en þetta, annars eruð þið ekki að gera jafn vel og þið ættuð að geta, það er verið að auglísa íbúðir á mega verðum í blöðunum daginn inn og út, 4herb íbúðir hérna í bænum eru komnar í 100kallin núna, og ég persónulega myndi ekki borga jafn mikið fyrir íbúð á suðurnesjunum og í bænum, neonin var heillengi eftir á nýbýlavegi,bý beint fyrir neðan og er ekki jafn ríkur af stæðum núna, þannig að hannvarð að bíða eftir að camaroinn kæmist inn, vaka tók hann reyndar í heimboð þarna í millitíðini, þar hefði hann nú best átt heima fyrir það eitt að vera dodge |
Author: | Hannsi [ Thu 05. Feb 2009 22:30 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: leiguverð er bara ekki hærra en þetta, annars eruð þið ekki að gera jafn vel og þið ættuð að geta, það er verið að auglísa íbúðir á mega verðum í blöðunum daginn inn og út, Verðinn hérna á suðurnesjunum eru líka ekki búinn að droppa eins og í bænum. Maður bíður enþá eftir því
4herb íbúðir hérna í bænum eru komnar í 100kallin núna, og ég persónulega myndi ekki borga jafn mikið fyrir íbúð á suðurnesjunum og í bænum, neonin var heillengi eftir á nýbýlavegi,bý beint fyrir neðan og er ekki jafn ríkur af stæðum núna, þannig að hannvarð að bíða eftir að camaroinn kæmist inn, vaka tók hann reyndar í heimboð þarna í millitíðini, þar hefði hann nú best átt heima fyrir það eitt að vera dodge T.d hérna í Garðinum var 5 hb einbýli til leigu á 120 þús með bílskúr og húsið 170fm og heitur pottur, fyrir rúmlega ári síðan. Og er held ég svipað í dag. |
Author: | gstuning [ Thu 05. Feb 2009 22:34 ] |
Post subject: | |
Verð munu droppa, enn svo mun það hætta, enginn er að fara borga með fasteignunum sínum mánuðum samann. Ég þarf að setja mína íbúð aftur á markaðinn og undir töluvert lægri leigu. enn aðstæður hafa breyst sem gera mér kleyft að leigja hana ódýrar, þannig að lægri leigan mun ekki bitna á mér né leigandanum |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |