bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Jeppamenn norðursins...
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=34694
Page 1 of 2

Author:  gunnar [ Fri 30. Jan 2009 20:49 ]
Post subject:  Jeppamenn norðursins...

Jæja boys,,,

Ég var alveg grænn af öfund eftir að hafa verið að horfa á myndirnar úr ferðinni hjá strákunum í Reykjavík þegar þeir fóru í smá BMWKrafts ferð á jeppunum..

Eru engir hérna sem eru fyrir norðan sem eru game í að koma smá rúnt á sunnudaginn?

Endilega póstið hér ef einhver áhugi er fyrir hendi,,,, býst nú samt við því að þetta verði ansi dapur þráður :lol:

Author:  jon mar [ Fri 30. Jan 2009 20:55 ]
Post subject: 

ég kemst ekki mikið lengra en upp í fálkafell á mínum 30" ræfli :cry:

Reyndar lala seigur, en ekki til neinna stórræða.

En ég væri mögulega game ef það stæði eitthvað til sem ég ræð við.

Author:  Los Atlos [ Fri 30. Jan 2009 21:40 ]
Post subject: 

hef trúlegast afnot af einum 38" patta. svo á ég notturulega ix sem fer allt :lol:

Author:  gunnar [ Fri 30. Jan 2009 21:42 ]
Post subject: 

Endilega ef menn komast að láta heyra í sér,,

Ég og Jón virðist alla vega komnir á það að skella okkur eitthvað.

Author:  Steini B [ Fri 30. Jan 2009 21:58 ]
Post subject: 

Ég er alveg game í að koma með ykkur :D

Author:  gunnar [ Fri 30. Jan 2009 22:02 ]
Post subject: 

Steini B wrote:
Ég er alveg game í að koma með ykkur :D


Þú ert á Sauðarkróki?

Koma til Ak þá á jeppa eða ? 8)

Author:  Steini B [ Fri 30. Jan 2009 22:15 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Steini B wrote:
Ég er alveg game í að koma með ykkur :D


Þú ert á Sauðarkróki?

Koma til Ak þá á jeppa eða ? 8)

Tja, ég get örugglega náð að redda mér til AK, en ekki á jeppa...

Author:  jon mar [ Fri 30. Jan 2009 22:16 ]
Post subject: 

örugglega einhver sæti í boði. Reikna með að við verðum tveir í mínum.

Author:  mattiorn [ Fri 30. Jan 2009 22:39 ]
Post subject: 

Skodinn minn myndi rúlla þessu hvert sem þið mynduð fara...

en ég verð heima á sunnudaginn að horfa á Liverpool vs Chelski

Author:  gunnar [ Fri 30. Jan 2009 22:44 ]
Post subject: 

mattiorn wrote:
Skodinn minn myndi rúlla þessu hvert sem þið mynduð fara...

en ég verð heima á sunnudaginn að horfa á Liverpool vs Chelski


AAAAHHH!!! Anskotinn er leikurinn á sunnudaginn :x

Hann byrjar ekki fyrr en kl 15.30,,,, við leggjum bara sæmilega snemma af stað og verðum komnir fyrir leik :lol: :lol:

En SteiniB, það er laust farþegasætið í bílnum hjá mér...

Eina aukasætið í boði víst,,, tveggja sæta bara :lol:

Author:  Steini B [ Sat 31. Jan 2009 12:40 ]
Post subject: 

Oki, lýst vel á það, þá er bara að koma sér yfir fjallið :lol:

Author:  gunnar [ Sat 31. Jan 2009 12:53 ]
Post subject: 

Byrjar bara að rölta núna og verður kominn svona í fyrra fallinu á morgun :lol:

Author:  gunnar [ Sat 31. Jan 2009 20:52 ]
Post subject: 

Jæja þá er ferðin á morgun 8)

Nóg er búið að snjóa og því verður færið vonandi flott, mjúkt ofan á en hart undir 8)

Við ætlum að hittast kl 10.30 hjá Mjólkursamlaginu,,,

Það verður farið fyrst upp á fálkafell og þar uppeftir eins og menn komast að minnsta kosti, svo bara látum við þetta ráðast..

Ef það eru einhverjar spurning eða menn vilja hitta á okkur annars staðar þá getiði náð í mig í síma 849-8999

Sjáumst á morgun 8)

Author:  Steini B [ Sun 01. Feb 2009 14:10 ]
Post subject: 

Ég vissi að ég væri að gleyma einhverju :lol:

Author:  gunnar [ Sun 01. Feb 2009 19:48 ]
Post subject: 

Jæja er ekki málið að henda inn smá myndum af ferðinni hingað inn :wink:

Steini, þú misstir af hörku ferð 8)

Við fórum kannski ekki mjög langt, en þetta var helvíti gaman.

Asskoti erfitt færi þarna uppfrá, mjög laust að ofan

og minn bíll náði ekki að þjappa þessu nóg undir sig.




Image
Komnir upp á Fálkafell


Image
Cherokee hjá honum Jóni


Image
Yfirlits mynd yfir Ak.


Image
Gengið að ræða málin :lol: 8)


Image
Matti ófrýnilegur í farþegasætinu


Image
Farið var upp gilið í áttina að Súlumýrum


Image
Þurfti að hjakka svolítið til að komast upp, en hafðist á endanum


Image
Eeeeeen þurfti að snúa við þar sem Jón Mar sat fastur aðeins fyrir neðan, færðin orðin frekar erfið.


Image
Þá var draslið bara staðið niður á við aftur 8)


Image
Ógnvekjandi ekki satt?? :lol: :lol:


Image



Image
Smá kipp kipp 8)


Image
Svo var bara aðeins leikið sér áður en við fórum svo aftur niður eftir

Image
Matti tók aðeins smá rönn á Trölla :wink:



Image




Image
Svo þurfti auðvitað Jón að gera eitthvað action og heimtaði að fá að affelga :lol: :lol:

Image
Grófum bara undan bílnum og settum varadekkið undir, easy peasy 8)

Góð ferð allt í allt 8)

Þakka fyrir mig

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/