bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Porsche 944 Turbo ''T944''|mössun á síðu 2,,felgur á síðu 4! https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=34630 |
Page 1 of 5 |
Author: | ViktorGuðbergs. [ Tue 27. Jan 2009 20:58 ] |
Post subject: | Porsche 944 Turbo ''T944''|mössun á síðu 2,,felgur á síðu 4! |
Vorið 1986 kom út af færibandinu í Stuttgard skínandi svartur bíll. Nýji eigandinn var búinn að bíða lengi eftir þessum degi. Beið spenntur eftir að fá hann afhentan í sínu umboði. Þetta var Porsche 944 Turbo, var þetta fyrsta árgerð af þessari tegund. Honum var ekið varlega heim og sýndur öllum þeim sem vildu sjá. Vel var hugsað um bílinn og voru gerðar á honum smá breitingar, settir á hann sílsar og svunta að aftan. Einnig var skipt um wastgate og eitt og annað. En gleðin var ekki endalaus, haustið 1987 var ekið aftan á hann þar sem hann stóð kyrr á ljósum. Beyglaðist afturgaflinn og aðeins inn á afturbrettin. Ekkert stór tjón en samt til þess að maðurinn vildi selja. Og þá fréttir Pabbi minn af bílnum hjá Manfred Freisinger Motorsport! Nú víkur sögunni til Íslands, Pabbi (Guðbergur Guðbergsson) og vinur hans Nonni (Jón S. Halldórsson) Hringja út og fá það staðfest að hann væri enn til sölu og eftir nokkra mínútna umhugsun var keyptir miðar og vinirnir voru mættir stuttu seinna að skoða gripinn. Sem sagt í stuttu máli, bíllinn var keyptur, ekið í skip, varahlutir keyptir og allt sent til Íslands. Koma hann heim í febrúar 1988, vegna anna í öðru mótorsporti þá drógst vel fram á haustið að gera við bílinn og kom bíllinn á götuna 07-12-1988. Bíllinn stóð vel undir væntingum. Aksturseiginleikar og afl var með því mesta sem hægt var að fá í fjöldaframleiddum bíl á þessum tíma. Enginn bíll á Íslandi átti séns í hann í ökuleikni. Sést best að hann sigraði 750 c.c. mótorhjól í keppni upp Kambana. Og var það í fyrsta sinn sem mótorhjól tapaði þannig spyrnu. Var þetta eini bíll fjölskyldunnar sem taldi 3 á þessum árum. Þannig að þetta er bíllinn sem menn þurfa ekki að selja þó svo þeir eignist börn. Sumarið 1989 var haldið keppni á planinu hjá Miklagarði. Var það kallað Akstursleikin Ungafólksins. Var búið að gera braut með keilum og kepptu 2 í einu. Brautin var þröng og ekki mikill hraði en þessum erfiðari að aka. Voru veitt mínus stig fyrir að snerta keilur og það bætt við tímann sem menn náðu. Þarna voru allar gerðir af bílum, pabbi og mamma á Porsche 944 Turbo og til dæmis Jóns S. Halldórsson á Trabant. Var gífurlega gaman að sjá Jón tvíhjóla á Trabbanun og sýndi hann vel hversu góður ökumaður hann var. Þegar allir voru búnir að aka var spurt hvort Jón eða Beggi hefðu unnið og svarið var nei. Svo öllu var pakkað saman og haldið upp í skúr að vinna. Laga þurfti Jeppsterinn fyrir næstu torfærukeppni. Rúmum klukkutíma seinna kom dómnefndin með bikarinn úr keppninni og veitti Mömmu hann. Hún hafði öllum að óvörum ekið á besta tíma dagsins. En ekki var þetta eina keppnin sem bíllinn tók þátt í. Var keppt á honum í sandspyrnu á keppni Kvartmíluklúbbsins sem haldinn var í Ölfusi. Sigraði hann þar sinn flokk. En nýjar gerðir af bílum koma árlega á markaðinn og 30-10-1990 var bíllinn seldur. Þá hafði pabbi fundið Porsche 911 Carrera 4. Núna eiga nokkir eigendur hann, sem gera mis mikið við hann, pabbi eignast hann svo aftur 2002 og seldi strax. En núna í haust keypti ég hann og hef verið að dunda mér við að laga hann. Búinn að fara yfir bremsur, ljós, er að laga púst. Og svo þarf að laga smá á boddyið. Verður hann klár þegar ég kem með hann á götun fyrir afmælið mitt í apríl. Hér eru nokkrar myndir af honum. Hérna er bíllinn kominn í hús ![]() ![]() Byrjað að vinna á fullu í bílnum ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Síðan er bíllinn á lyftunni í uppherslu:) |
Author: | F2 [ Tue 27. Jan 2009 21:42 ] |
Post subject: | |
... |
Author: | íbbi_ [ Tue 27. Jan 2009 22:11 ] |
Post subject: | |
ekki amarlegur skúrinn í stæðsta einbýli landsins |
Author: | Alpina [ Tue 27. Jan 2009 22:16 ] |
Post subject: | |
Þetta þótti aldeilis MEGA bíll á sínum tíma ,,,,,,,, Pabbi þinn var eflaust ,,, feiitttttt svalur,, á sínum tíma akandi um á þessu ps ,, fínt afl í þessu einnig til hamingju með þetta |
Author: | Thrullerinn [ Tue 27. Jan 2009 22:19 ] |
Post subject: | |
góður fyrsti bíll !! ![]() Bróðir minn átti hann fyrir nokkrum árum, ók honum smá þá.. fínasti kaggi ![]() |
Author: | ValliB [ Tue 27. Jan 2009 22:42 ] |
Post subject: | |
Glæsilegur bíll. En ef þetta er fyrsti bíllinn, hvernig verður þá næsti? ![]() |
Author: | jens [ Tue 27. Jan 2009 23:02 ] |
Post subject: | |
Glæsilegur bíll, til lukku með gripinn. |
Author: | Sezar [ Tue 27. Jan 2009 23:51 ] |
Post subject: | |
Man vel eftir þessum ![]() Getur verið að Þorsteinn Kragh "smyglari" hafi átt hann í nokkur ár? |
Author: | saemi [ Tue 27. Jan 2009 23:58 ] |
Post subject: | |
Ég man eftir þessum á árunum um 90. Einn svalasti bíllinn á Verslóplaninu á þeim tíma. Ásamt hvíta bensanum sem pabbi Guðjóns OZ átti. Þetta eru allavega þeir 2 sem ég man í augnablikinu eftir ![]() |
Author: | Porsche-Ísland [ Wed 28. Jan 2009 01:06 ] |
Post subject: | |
Sezar wrote: Man vel eftir þessum
![]() Getur verið að Þorsteinn Kragh "smyglari" hafi átt hann í nokkur ár? Rétt er það, Þorsteinn átti á á tímabíli. Á annan Porsche í dag. 964 með turbo looki, settum í hann blower fyrir nokkrum árum. |
Author: | Alpina [ Wed 28. Jan 2009 07:30 ] |
Post subject: | |
Porsche-Ísland wrote: Sezar wrote: Man vel eftir þessum ![]() Getur verið að Þorsteinn Kragh "smyglari" hafi átt hann í nokkur ár? Rétt er það, Þorsteinn átti á á tímabíli. Á annan Porsche í dag. 964 með turbo looki, settum í hann blower fyrir nokkrum árum. Er sá bíll dökkblár |
Author: | Porsche-Ísland [ Wed 28. Jan 2009 08:43 ] |
Post subject: | |
Alpina wrote: Porsche-Ísland wrote: Sezar wrote: Man vel eftir þessum ![]() Getur verið að Þorsteinn Kragh "smyglari" hafi átt hann í nokkur ár? Rétt er það, Þorsteinn átti á á tímabíli. Á annan Porsche í dag. 964 með turbo looki, settum í hann blower fyrir nokkrum árum. Er sá bíll dökkblár Rétt er það. |
Author: | ingo_GT [ Wed 28. Jan 2009 09:10 ] |
Post subject: | |
Flottur hjá þér ![]() Ekki slæmt að eiga svona sem fyrsta bíl ![]() |
Author: | gunnar [ Wed 28. Jan 2009 09:15 ] |
Post subject: | |
Mjög flott eintak ![]() Endilega taka fleiri myndir ![]() |
Author: | ViktorGuðbergs. [ Thu 29. Jan 2009 16:09 ] |
Post subject: | |
Takk fyrir öll góður orðin ![]() já ég kem með fleiri myndir bráðum þegar það hefur e-ð gerst í bílnum.. |
Page 1 of 5 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |