bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Superbowl XLIII - 1. febrúar 2009
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=34551
Page 1 of 1

Author:  KristoferK [ Sun 25. Jan 2009 03:15 ]
Post subject:  Superbowl XLIII - 1. febrúar 2009

Image

Jææææja, eftir slétta viku verður leikið um hinn margrómaða og gífurlega eftirsótta Superbowl titil í 44. skiptið en til úrslita leika Arizona Cardinals og Pittsburgh Steelers.

Cardinals eru nokkuð óvænt komnir í Superbowl eftir að hafa slegið út Philly Eagles í síðustu umferð, en sigursælasta (og besta 8) ) lið NFL deildarinnar; Pittsburgh Steelers fór léttilega með Baltimore Ravens í hinum undanúrslitaleiknum þökk sé bestu vörn fyrri ára.

Pittsburgh Steelers
Image

Arizona Cardinals
Image

Flestir búast við Steelers sigri, en við skulum þó ekki gleyma að langflestir spáðu Patriots öruggum sigri í Superbowl leiknum í fyrra og þar komu NY Giants heldur betur á óvart. Það er þó klárt mál að Kurt Warner þarf að eiga svakalegasta leik allra tíma ef hann ætlar sér að stýra Cardinals til sigurs og ég einfaldlega neita að trúa að svo gerist; Woodley og Ward afgreiða þennan leik fyrir Steelers og þeir fagna sínum 6. Superbowl titli.

Steak'n'Play (á Grensásvegi) mun efla til Superbowl veislu og verður upphitun og leikur sýnt í beinni og ég hvet alla áhugamenn til að mæta. Eitthvað skilst mér að einhver tilboð á öli verða í boði og um að gera að láta sjá sig; Aðdáendahópur NFL er ekki það stór hérlendis, en engu að síður nógu stór til að skapa hörkustemningu saman yfir svona stórviðburði.

Og þið hinir vitleysingarnir sem vitið ekkert um hvað ég er að tala og mynduð ekki þekkja Bandarískan fótbolta þótt hann myndi lenda í andlitinu á ykkur, hérna eru nokkrar ljósmyndir af klappstýrum NFL deildarinnar svona til að gera lesturinn þess virði;

Image Image

Image Image

Áfram Steelers! 8)

Author:  gunnar [ Sun 25. Jan 2009 03:40 ]
Post subject: 

Va eg las ekki orð af textanum, sat alveg fastur að skoða myndirnar :lol: :lol:

Author:  sh4rk [ Sun 25. Jan 2009 04:30 ]
Post subject: 

Til hvers að lesa textan þegar það eru fult af flottum gellum til að skoða

Author:  Svessi [ Sun 25. Jan 2009 06:33 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Va eg las ekki orð af textanum, sat alveg fastur að skoða myndirnar :lol: :lol:


Heyrðu, já, ég held ég verði bara að játa líka. Hef lítinn áhuga á Super bowl þannig ég skrollaði bara fyrst niður og auðvitað stoppaði maður aðeins á myndunum og skoðaði 8)

Svo las ég þetta fyrsta comment hjá Gunnari og ég gat ekki annað en hlegið þar sem ég las ekki stakt orð af textanum í greinni sjálfur.

Author:  Stanky [ Sun 25. Jan 2009 12:27 ]
Post subject: 

Skilur einhver reglurnar í þessari "íþrótt"? :)

Ég keypti mér einhverntímann NFL tölvuleik og ég náði aldrei hvað ég væri að gera :D

Author:  gstuning [ Sun 25. Jan 2009 12:39 ]
Post subject: 

Það er með öllu ómögulegt að horfa á svona leik,
það eru ekki meira enn 5mínútur á milli auglýsinga sem eru sjálfar í 3mínútur.

Það þýðir að horfa á þetta live er alveg hrikalegt, ég myndi líklega nenna að horfa á svona leik eftirá með engum hléum.

Author:  Astijons [ Sun 25. Jan 2009 12:42 ]
Post subject: 

Stanky wrote:
Skilur einhver reglurnar í þessari "íþrótt"? :)

Ég keypti mér einhverntímann NFL tölvuleik og ég náði aldrei hvað ég væri að gera :D


haha og hafnarbolta...

þetta er bara rugl íþróttir ahahaha

Author:  bimmer [ Sun 25. Jan 2009 12:44 ]
Post subject: 

Astijons wrote:
þetta er bara rugl íþróttir ahahaha


Sammála.

Author:  mattiorn [ Sun 25. Jan 2009 14:37 ]
Post subject: 

Djöfull! ég hélt að þetta væri í kvöld!

En ég horfi klárlega á þetta, maður verður bara að fatta hvað þetta er í raun stórt dæmi í Bandaríkjunum + auðvitað að þekkja reglurnar, þá er hörku stuð að fylgjast með þessu 8)

Author:  gunnar [ Sun 25. Jan 2009 14:46 ]
Post subject: 

mattiorn wrote:
Djöfull! ég hélt að þetta væri í kvöld!

En ég horfi klárlega á þetta, maður verður bara að fatta hvað þetta er í raun stórt dæmi í Bandaríkjunum + auðvitað að þekkja reglurnar, þá er hörku stuð að fylgjast með þessu 8)


Væri geðveikt að glapa a þetta i skjavarpa upp i skola,,,, ef það næðist stöð2 sport þar 8)

Author:  KristoferK [ Sun 25. Jan 2009 15:05 ]
Post subject: 

Stanky wrote:
Skilur einhver reglurnar í þessari "íþrótt"? :)

Ég keypti mér einhverntímann NFL tölvuleik og ég náði aldrei hvað ég væri að gera :D


Þegar maður loksins lærir leikinn og skilur nákvæmnlega hvað er að gerast hverju sinni er þetta hreinlega eitthvað það skemmtilegasta sem ég geri.

Það er þvílíkur stemmari að fylgjast með þessu, tala nú ekki um í góðum félagskap... Já og bjór.

Það var hinsvegar hundleiðinlegt að læra allar helvítis reglurnar :lol:

gstuning wrote:
Það er með öllu ómögulegt að horfa á svona leik,
það eru ekki meira enn 5mínútur á milli auglýsinga sem eru sjálfar í 3mínútur.

Það þýðir að horfa á þetta live er alveg hrikalegt, ég myndi líklega nenna að horfa á svona leik eftirá með engum hléum.


Held að þú þurfir nú að prófa að horfa á heilan leik eða svo, svo þú vitir almennilega um hvað þú ert að tala :)


Mæli með að menn kíki á NFL reglubókina á nfl.com. Gott "Beginner's Guide" þarna sem aðstoðaði mig plenty þegar ég byrjaði að fylgjast með þessu 2005; http://www.nfl.com/rulebook/beginnersguidetofootball

Author:  basten [ Sun 25. Jan 2009 15:31 ]
Post subject: 

Flott framtak!
Kíkti inn á þessa síðu og er margs vísari í dag með reglurnar. Maður vissi þetta svona ca en ekki alveg nógu vel.

Það verður fjör að horfa á þennan leik með kaldan við hönd :D

Verst að mínir menn hafa ekki verið að standa sig nógu vel upp á síðkastið.
Go 49ers 8)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/