Nokkrar myndir af árekstri sem ég lenti í
Sælir
Vildi bara leyfa ykkur að sjá hvernig það fer með lítinn saklausan subaru justy að lenda í ripper á veghefli.
Ég var á leiðinni í vinnuna í morgun og þessi veghefill var búinn að vera í smá stund á undan mér, svo allt í einu stoppar hann og ég líka. Það dugir ekki til og hann bakkar á mig og þar með festist ripperinn í húddinu hjá mér, svo beygir hann aðeins þannig að bíllinn hjá mér snýst og bílstjórahurðin lendir á afturdekkinu hjá honum og rúðan smallast yfir mig. Síðan keyrir hann áfram og dregur mig með og tekur ekki eftir neinu fyrr en annar bílstjóri hoppar út og veifar í hann og þá var ég búinn að dragast ca. 10-15 metra með, hafði legið á flautunni allann tíman en það dugði lítið. Enda finnur 22 tonna hefill lítið fyrir 700kg justy
Allavega slapp ég við meiðsl og japanska dollan sem ég keypti milli jóla og nýárs er ónýt.