bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

LHD vs. RHD - hvað sýnist hverjum?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=34040
Page 1 of 2

Author:  bebecar [ Fri 02. Jan 2009 12:22 ]
Post subject:  LHD vs. RHD - hvað sýnist hverjum?

Ég hef dálítið verið að velta fyrir mér kaupum á bíl með stýrinu hægra megin þar sem pundið er lágt og mikið til af spennandi bílum í UK auk þess sem ég gæti látið skrá hann þar á náfrænda minn.

Ég hef nú ekki miklar áhyggjur lengur af því hvernig það er að keyra bíl með stýrinu hægra megin því það ætti ekki að vera nokkuð mál. Það gera kunningjar mínir reglulega þegar þeir svissa yfir á bíla með stýrið vinstra megin.

Hinsvegar er pjúristinn í mér að plaga mig. Það er þetta með að eiga bíla AÐRA en breska með stýrinu hægra megin sem er að vefjast fyrir mér. Mér þætti t.d. hálf skrítið að vera á þýskum bíl með hægra stýri, hvað þá ítölskum.

Hafa menn eitthvað verið að velta þessu fyrir sér? (Ég geri mér grein fyrir því að líklega eru fáir að spá í bílakaupum akkúrat núna).

Nokkrir varnaglar skipta máli hér til viðbótar. Ég er aðeins að tala um klassíska bíla og þá oft fremur sjaldgæfa bíla. Einnig getur oft munað um helming á RHD og LHD t.d í bílum eins og Aston Martin, Lotus og Jagúar en auðvitað munar litlu, eða hallar jafnvel í hina áttina með suma meginlands bílana. Að lokum þá er stefnan vissulega sú að skrá bílinn á Íslandi en ekki fyrr en GVT verður komin undir sirka 170-180.

Það væri gaman að heyra hvað ykkur finnst.

Author:  Einarsss [ Fri 02. Jan 2009 12:38 ]
Post subject: 

Ég tæki LHD, get ekki hugsað mér að eiga bíl með stýrinu öfugumeginn sem yrði aðallega notaður í hægri umferð

Author:  gstuning [ Fri 02. Jan 2009 13:04 ]
Post subject: 

Ég hef keyrt LHD og RHD bíla ,
og keyrt RHD bíl í LHD umferð á íslandi.

Þetta venst svo auðveldlega, mér finnst orðið skrýtið að hugsa til þess að fara til íslands og keyra hægra meginn á veginum og sitja vinstra meginn í bílnum, þó ég geti engann veginn ýmindað mér að reyna slæda og drifta í RHD bíl, enda ekki búinn að reyna það ennþá.

Það er algjörlega ekkert mál að keyra RHD bíl í LHD umferð.
Þó nokkrir sem eiga svoleiðis bíla á íslandi, allir Skyline bílarnir, Evo 5 og einhverjir fleiri. Enginn þeirra hefur átt í neinum vandamálum með að keyra á íslandi í RHD bíl.

Ef rhd bíll kostar minna enn lhd og töluvert þá myndi ég ekki láta svona smáatriði stoppa mig. Og þú ættir ekki að setja það fyrir þig heldur þótt bíll sem þú hefur áhuga á að kaupa sé ekki breskur/japanskur enn er RHD.

Edit.
Bara til að útskýra hvaðan ég kem með þetta er að ég var næstum búinn að cancella að fara í skóla í þessu landi útaf þessu RHD/LHD dóti, hélt þetta yrði svo ömurlegt og asnalegt. Enn þetta er alls ekkert issue þegar maður lætur bara vaða.

Author:  JOGA [ Fri 02. Jan 2009 13:10 ]
Post subject: 

Ég er í "svipuðum" pælingum.
Flyt líklegast frá UK í sumar þar sem að atvinnuleitin hefur gengið mun betur í Noregi/Hollandi etc.

Hef því mikið verið að spá í því hvort ég eigi að selja bílinn og fá "klink" fyrir, sérstaklega ef tekið er mið af gengi punds gagnvart evru og Norskri krónu. Hinn kosturinn væri að taka bílinn með til Noregs eða Evrulands og leika mér eitthvað með bílinn þar (jafnvel í varahluti ef ég tími ekki að tolla hann inn í Noreg).

Annars er ekki mikið mál að keyra bíl með stýrið öfugu megin og ef bíllinn er ekki daily driver þá yrði þetta ekki mikið mál. Aðalega eins og þú segir réttilega svona "tilfinningalega" rangt. Svona pirringur yfir því að vera með þetta "öfugt.

Annars ef einhver hefur áhuga á mínum kagga fyrir sanngjarnan prís þá er það bara að góla :lol:

Author:  Alpina [ Fri 02. Jan 2009 13:40 ]
Post subject: 

Teitur er enginn LÚÐI ......... :o

Fór og keypti sér einhverja þá ógurlegustu græju sem til er og BARA framleidd oem RHD

Author:  bebecar [ Fri 02. Jan 2009 14:12 ]
Post subject: 

Gaman að sjá þetta. Gunni hittir þarna einmitt á verð faktorinn en það er einmitt um þessar mundir hægt að fá mikið af spennandi bílum með RHD fyrir lítið miðað við LHD bíl.

Þetta ætti líklega ekki að verða nokkuð vandamál fyrir mig þannig séð - en ef einhvern tímann kæmi að endursölu þá spillir þetta eflaust gríðarlega fyrir ef selja á heima í það minnsta.

Á móti kemur að maður verður á "heimavelli" ef maður færi einhvern tímann á Goodwood 8)

Author:  IvanAnders [ Fri 02. Jan 2009 15:09 ]
Post subject: 

Þú talar um pjúristann og hvað sé "rétt eða rangt"

Ég er svona með USA bíla.

Ég sé oft flottan bíl, (BMW eða eitthvað annað non-usa) frá USA
og um leið og ég sé orange-parkljósin að framan, nr plötuna að aftan, mílumæli og fahreinheit mæli, þá fæ ég bara klígju og finnst viðkomandi bíll ógeðslegur :? :oops:

Author:  gdawg [ Fri 02. Jan 2009 15:25 ]
Post subject: 

Ég get verið sammála "Bretunum" hérna inni að keyra bíl með stýrið "öfugu megin" miðað við umferðarmannvirki er ekki svo mikið mál (nema að þú sért mikið í bílalúgum og bílastæðahúsum!)

Ég hins vegar ætti bágt með að réttlæta notkun á þýskum RHD bíl í LHD umferð... finnst það einhvern vegin rangt, sbr commentið um amerískan ljósabúnað, gæti ekki verið meira sammála!!

Einnig er vert að skoða hvort að einhverju hafi verið fórnað í hönnuninni á RHD bílnum á móti LHD. Eins og mig minnir að það sé býsna mikið mál að setja non OEM flækjur á RHD E36 M3... kannski veit einhver betur?

PS. þess má geta svona í framhjáhlaupi að TVR eru á MJÖG góðu verði!!

Author:  bebecar [ Fri 02. Jan 2009 16:00 ]
Post subject: 

Það eru greinilega álíka skoðanir uppi.

Maður hefur vaktað TVR ansi lengi og þeir eru á fínustu verðum í dag.

Ég fékk einnig ábendingu varðandi ljósabúnað. Ég held það þurfi t.d. að líma yfir ljósin á ákveðnum stað svo þau lýsi ekki beint á bíla úr hinni áttinni.

Þannig að vandamálin geta kannski verið fleiri og svona dálítið óljós.

Author:  Hilmar [ Fri 02. Jan 2009 16:23 ]
Post subject:  LHD/RHD

Vildi bara benda á eftirfarandi ákvæði í reglugerð um gerð og búnað ökutækja:

Stýrishjól skal vera vinstra megin. Umferðarstofa getur í sérstökum tilvikum veitt undanþágu frá þessu
ákvæði.


Ég held samt að þetta hafi ekki verið vandamál hingað til. Gæti samt verið sniðugt að athuga það áður en farið er að spá í að flytja inn rhd bíl. Veit svo sem ekki hvað teljist "sérstakt tilvik."

kv,

Author:  gstuning [ Fri 02. Jan 2009 16:28 ]
Post subject: 

Eina sem menn lenda í á íslandi eru ljósin,
verst með skyline t,d að þeir voru ekki með lhd og engin sambærileg ljósker. Annars er það eina sem hindrar, á öllu öðru fær maður sér bara ljós ur LHD bíl, svona ljósa breyti límmiðar virka ekki :)

Author:  Alpina [ Fri 02. Jan 2009 18:53 ]
Post subject:  Re: LHD/RHD

Hilmar wrote:
Vildi bara benda á eftirfarandi ákvæði í reglugerð um gerð og búnað ökutækja:

Stýrishjól skal vera vinstra megin. Umferðarstofa getur í sérstökum tilvikum veitt undanþágu frá þessu
ákvæði.


Ég held samt að þetta hafi ekki verið vandamál hingað til. Gæti samt verið sniðugt að athuga það áður en farið er að spá í að flytja inn rhd bíl. Veit svo sem ekki hvað teljist "sérstakt tilvik."

kv,


Hæ..... :wink:

er til CORVETTE með RHD

Author:  Hilmar [ Fri 02. Jan 2009 19:48 ]
Post subject: 

Sæll,

Já það er til.... í ástralíu, fást ekki skráðar þar öðruvísi.

Author:  Aron Fridrik [ Fri 02. Jan 2009 20:22 ]
Post subject: 

gdawg wrote:
Ég get verið sammála "Bretunum" hérna inni að keyra bíl með stýrið "öfugu megin" miðað við umferðarmannvirki er ekki svo mikið mál (nema að þú sért mikið í bílalúgum og bílastæðahúsum!)

Ég hins vegar ætti bágt með að réttlæta notkun á þýskum RHD bíl í LHD umferð... finnst það einhvern vegin rangt, sbr commentið um amerískan ljósabúnað, gæti ekki verið meira sammála!!

Einnig er vert að skoða hvort að einhverju hafi verið fórnað í hönnuninni á RHD bílnum á móti LHD. Eins og mig minnir að það sé býsna mikið mál að setja non OEM flækjur á RHD E36 M3... kannski veit einhver betur?

PS. þess má geta svona í framhjáhlaupi að TVR eru á MJÖG góðu verði!!


fátt meira heitt en TVR sagaris 8)

Author:  Alpina [ Fri 02. Jan 2009 23:35 ]
Post subject: 

Aron Fridrik wrote:
gdawg wrote:
Ég get verið sammála "Bretunum" hérna inni að keyra bíl með stýrið "öfugu megin" miðað við umferðarmannvirki er ekki svo mikið mál (nema að þú sért mikið í bílalúgum og bílastæðahúsum!)

Ég hins vegar ætti bágt með að réttlæta notkun á þýskum RHD bíl í LHD umferð... finnst það einhvern vegin rangt, sbr commentið um amerískan ljósabúnað, gæti ekki verið meira sammála!!

Einnig er vert að skoða hvort að einhverju hafi verið fórnað í hönnuninni á RHD bílnum á móti LHD. Eins og mig minnir að það sé býsna mikið mál að setja non OEM flækjur á RHD E36 M3... kannski veit einhver betur?

PS. þess má geta svona í framhjáhlaupi að TVR eru á MJÖG góðu verði!!


fátt meira heitt en TVR sagaris 8)


CRAPPPPPPPPPPPPP

CERBERA er græjan ,,

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/