bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Flugbjörgunarsveitin sem er að selja uppí B&L https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=34007 |
Page 1 of 3 |
Author: | krullih [ Wed 31. Dec 2008 14:23 ] |
Post subject: | Flugbjörgunarsveitin sem er að selja uppí B&L |
Það er ekki sama hver er að versla! Ég rölti þarna inn, er almennt ekki mikið fyrir að brenna aurinn minn en ákvað að styrkja smávegis. Er að skoða úrvalið og sé þar 'þekktan' einstakling sem er að versla við hlið mér. Sá aðili er að versla 6x flugeld A og 1 x Flugeld B ásamt gleraugum og smádóti. Ég spyr aðilann sem er að afgreiða mig hvað flugeldur a kosti, sem og flugeldur b, svörin eru: A: 1850 og B: 2000 krónur, gleraugun voru á 300 krónur og eitthvað smádót. S.s samtals pakki uppá 13.400 krónur + stjörnuljós. Ég versla mér smá dót þarna og er rukkaður 3000 krónur fyrir flugeld B og smádót. Hinn aðilinn gengur út með alla þessa flugelda fyrir 5.500 krónur! Þetta er auðvitað alveg fáránlegt, mennirnir aggitera að ég eigi að versla við þá til að hjálpa þeim að ganga í gegnum komandi rekstrarár og halda uppi góðum hópi, en ég er í raun bara að borga fyrir afslátt kunningja og vina ? Þetta er alveg ólýðandi að svona gerist en þar sem þetta er ísland er auvðitað klíka - en að gera það þá aðeins minna augljóst. Hvorki ég né fjölskylda mín mun leggja þessari sveit lið á komandi árum eða áratugum. Absúrd kv Jón en ekki Séra Jón. |
Author: | Geirinn [ Wed 31. Dec 2008 14:25 ] |
Post subject: | |
Welcome to Iceland. |
Author: | krullih [ Wed 31. Dec 2008 14:26 ] |
Post subject: | |
Geirinn wrote: Welcome to Iceland.
Þetta er líka að fara að fréttast - nýársheiti mitt er klárlega að vera virkur í neytendamálum og segja frá svona rugli á kvippinn og kvappinn. |
Author: | bimmer [ Wed 31. Dec 2008 14:28 ] |
Post subject: | |
Spurðir þú ekkert af hverju hinn fékk þetta svona ódýrt? |
Author: | krullih [ Wed 31. Dec 2008 14:30 ] |
Post subject: | |
Nei, gerði gott betur og hringdi beint í Formann félagsis. Þess má geta að honum gat varla verið meira sama og datt ekki einusinni í hug að biðjast afsökunar. |
Author: | Kristjan [ Wed 31. Dec 2008 14:31 ] |
Post subject: | |
Hver var sá frægi? |
Author: | Geirinn [ Wed 31. Dec 2008 14:32 ] |
Post subject: | |
http://www.niskupukinn.is/spjall/ Vettvangur sem á eftir að stækka og stækka... hvort það verði þessi síða eða önnur... skiptir ekki... ef þetta skilar einhverjum árangri þá er makmiðinu náð... |
Author: | krullih [ Wed 31. Dec 2008 14:32 ] |
Post subject: | |
Frægi er ekki rétta orðið, þekktari er Jói úr Simmi & Jói - ágætis útvarpstvíeiki |
Author: | krullih [ Wed 31. Dec 2008 14:35 ] |
Post subject: | |
Geirinn wrote: http://www.niskupukinn.is/spjall/
Vettvangur sem á eftir að stækka og stækka... hvort það verði þessi síða eða önnur... skiptir ekki... ef þetta skilar einhverjum árangri þá er makmiðinu náð... Flott framtak - en ef ég myndi virkilega láta þá brenna þá myndi ég fara á ER.is - 400 konur sem gera ekkert nema að tala við aðrar konur virkar bara eins og olía og eldspíta á stóran sinublett ![]() |
Author: | Aron Fridrik [ Wed 31. Dec 2008 14:35 ] |
Post subject: | |
hvað ef þetta var bróðir hans Jóa ? ![]() |
Author: | krullih [ Wed 31. Dec 2008 14:42 ] |
Post subject: | |
Aron Fridrik wrote: hvað ef þetta var bróðir hans Jóa ?
![]() Að selja honum þá ? Það á bara ekki að skipta NEINU máli. |
Author: | Geirinn [ Wed 31. Dec 2008 14:51 ] |
Post subject: | |
Ein pæling með þessa flugelda.... Það er einhver pakki hjá Ársæli sem er Trölli eða álíka.... sem ég man að ég keypti fyrir nokkrum árum á vel undir 10 þúsund... minnir að það hafi verið 7.900 kr.... Núna er þessi sami pakki, óbreyttur á 19.900 kr ? Man einhver annar eftir þessu ? Þetta er ein brjálæðislegasta verðhækkun sem ég hef tekið eftir í þessum flugeldamálum... Það er verið að hvetja okkur til að versla hjá björgunarfélögum... ég skil það vel... en það er virkilega verið að mjólka mann ógeðslega... Hafið þið tekið eftir ámóta verðhækkunum hjá öðrum ? Núna bjóða þeir líka 1.500 kr. úttekt aukalega ef maður kaupir fyrir meira en 10.000 kr..... var það ekki nær 5.000 kr. í fyrra eða ? Ég keypti ekki flugelda fyrir eina krónu í ár..... |
Author: | IvanAnders [ Wed 31. Dec 2008 14:58 ] |
Post subject: | |
Ég get ekki að því gert, en þetta er eini vettvangurinn þar sem mér er sama þó verið sé að "mjólka" mig ![]() Það er farið svo illa að manni í mikið meiri nauðsynjakaupum og öðru í kringum mann þar sem að ekki ein króna fer í að styrkja gott málefni! Mér er alveg sama hvað ég fæ mikið af púðri fyrir peninginn, mín ástæða fyrir kaupunum er að ég er að styrkja þá! ég er líka rjúpnaskytta ![]() |
Author: | bimmer [ Wed 31. Dec 2008 15:02 ] |
Post subject: | |
Geirinn wrote: Ég keypti ekki flugelda fyrir eina krónu í ár.....
Það er út af fólki eins og þér sem þarf að rukka hina meira!!! Stoltur?!?!?! ![]() |
Author: | Geirinn [ Wed 31. Dec 2008 15:03 ] |
Post subject: | |
IvanAnders wrote: Ég get ekki að því gert, en þetta er eini vettvangurinn þar sem mér er sama þó verið sé að "mjólka" mig
![]() Það er farið svo illa að manni í mikið meiri nauðsynjakaupum og öðru í kringum mann þar sem að ekki ein króna fer í að styrkja gott málefni! Mér er alveg sama hvað ég fæ mikið af púðri fyrir peninginn, mín ástæða fyrir kaupunum er að ég er að styrkja þá! ég er líka rjúpnaskytta ![]() Gallinn er bara að hættan er sú að fólk versli þá frekar við einkaaðila sem eru bara í þessu til að græða.... Kom með góða hugmynd að auglýsingu fyrir björgunarsveitirnar..... "við björgum líka bílasölum og bröskurum...." ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |