bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Einhver með nothæft Slingbox á Íslandi (Streyma skaupið)?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33975
Page 1 of 1

Author:  jth [ Mon 29. Dec 2008 17:26 ]
Post subject:  Einhver með nothæft Slingbox á Íslandi (Streyma skaupið)?

Sælir,

er einhver með starfhæft Slingbox á Íslandi og tilbúinn að leyfa straum á áramótaskaupinu?

Ég hef lent í veseni með straumana á vefsíðu rúv núna í haust, virðist sem þeir ráði ekki við það álag sem skapast (langtum fleiri að nýta sér útsendingu í gegnum netið en áður).

Langaði því að athuga hvort að einhverjir væru svo frægir að vera með slingbox í gangi, eða hvort að einhverjar aðrar töfralausnir séu í gangi til að horfa á íslenskt sjónvarp í almennilegum gæðum.

Takk,

Author:  Kristjan [ Mon 29. Dec 2008 18:39 ]
Post subject: 

Ég var að pæla, ég er með digital sjónvarps tuner í tölvunni minni og mér er sagt að ég geti tengt hana við digital ísland, ég hef ekki prófað það en ég hef prófað að tengja hana við Sjónvarp Símans og það virkar ekki.

Gæti ég tengt við digital ísland og tekið upp á tölvunni?

Author:  jth [ Mon 29. Dec 2008 19:10 ]
Post subject: 

Þar sem DÍ er áskriftarþjónusta grunar mig að þú þurfir að vera með tölvutuner sem getur auðkennt aðganginn þinn (eða með einhverjum hætti sannreynt að þú sért að borga fyrir þjónustuna). Væri til í að heyra ef þetta er ekki rétt og einhverjum hefur tekist þetta.

Það er til hellingur af lausnum sem leyfa að taka upp sjónvarpsefni, flestir bjóða upp á góðar DVR/TiVo lausnir, t.d. elgato fyrir Mac: http://www.elgato.com/elgato/int/mainmenu/products/tuner.en.html

Einhverjir fleiri sem búa erlendis og hafa spáð í vanda með að ná íslenskum sjónvarpsútsendingum í almennilegum gæðum?

Author:  Viggóhelgi [ Mon 29. Dec 2008 20:17 ]
Post subject: 

Ég á slingbox. enn lánaði það út mánuðinn... ég skal sjá hvernig það fer, hvort að það verði í notkun eður ey! :D

Author:  jth [ Mon 29. Dec 2008 20:35 ]
Post subject: 

Takk, endilega láttu mig vita ef það gæti verið laust.

Author:  JOGA [ Mon 29. Dec 2008 20:57 ]
Post subject: 

Hvernig virkar þetta "Slingbox". Gott að vita þar sem við hjónin vorum einmitt að velta þessu skaupmáli fyrir okkur.

Author:  trigger [ Mon 29. Dec 2008 22:03 ]
Post subject: 

Hérna... er þetta ekki bara í beinni á rúv.is?

Author:  Aron Fridrik [ Mon 29. Dec 2008 22:04 ]
Post subject: 

hann hefur lent í veseni með það :o

Author:  ValliFudd [ Mon 29. Dec 2008 22:08 ]
Post subject: 

Ég hef stundum verið erlendis um áramót og í þau skipti hefur ekki verið hægt að horfa á áramótaskaupið í beinni.. Ekki að linkurinn klikki, overload eða nett svoleiðis, bara enginn linkur.. 2006 og 2005 allavega minnir mig..

Author:  jth [ Tue 30. Dec 2008 01:58 ]
Post subject: 

trigger wrote:
Hérna... er þetta ekki bara í beinni á rúv.is?


Mikið rétt, en síðustu ár hefur verið erfitt að ná þeim í gegnum vefsíðu rúv sökum álags. Sama hefur verið upp á teningnum nú í haust, t.d. beinar útsendingar í byrjun október sem voru með öllu vonlausar í gegnum vefsíðu rúv, en af og til nothæfar af visir.is.

JOGA wrote:
Hvernig virkar þetta "Slingbox". Gott að vita þar sem við hjónin vorum einmitt að velta þessu skaupmáli fyrir okkur.

Þetta er græja sem transkóðar straum í rauntíma - Slingbox er ekki með neitt geymslupláss.
Dæmi: Slingbox er tengt við Digital Ísland/Símabox á Íslandi sem er stillt á RÚV þegar verið er að horfa á skaupið. Slingboxið býr til straum (eins hraðan og nettenging/upload bandvídd leyfir) sem hægt er að horfa á annars staðar í heiminum. Gæðin á þessu ættu að vera margfalt meiri en í gegnum rúv.is

Er farin að hallast að því að best sé að reyna að ná þessu á rúv.is seinna um kvöldið, eða vonast til þess að íslenskir torrent menn komi þessu fljótt inn á netið.

En eftir sem áður, flott ef einhver er með Slingbox í gangi á Íslandi og gæti leyft aðgang að skaupinu.

Author:  Eggert [ Tue 30. Dec 2008 06:04 ]
Post subject: 

Það þarf nú ekki meira en vikulegan Kompásþátt til þess að streaming sé fubar. Ég hef haft aðgang að slingboxi í vetur og getað horft á dagvaktina (og reyndar allt sjónvarp sem boðið er uppá í gegnum áskriftir á Íslandi), en sökum þess að viðkomandi getur lent í vandræðum fyrir að slinga þetta áfram, þá get ég því miður ekki hleypt neinum inn á þetta.
:?

Það hljóta einhverjir að eiga svona og geta slingað RÚV fyrir ykkur erlendingana...

Author:  Geirinn [ Wed 31. Dec 2008 15:13 ]
Post subject: 

Ég myndi klárlega aðstoða þig ef ég gæti..... :?

Author:  gstuning [ Wed 31. Dec 2008 15:29 ]
Post subject: 

Ef það veit einhver um
stream með skaupinu þá værum við þokkalega sátt við að fá að heyra af því :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/