bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Hvað er'ann að eyða hjá þér? bmw
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33921
Page 1 of 4

Author:  Dóri- [ Fri 26. Dec 2008 03:26 ]
Post subject:  Hvað er'ann að eyða hjá þér? bmw

Fyllti 323i bílinn sem ég var að fá um daginn, 60 lítrar, ók 201.2km innanbæjar í mjög harðri keyrslu ca. 100km, fór svo eina ferð á selfoss og til baka.

fyllti aftur 21.2 lítrar
201.2 km eknir

ca 10.5 á hundraði og í engum sparakstri, næsteyðsluminnsti bmw sem ég hef átt 8)
Finnst þetta helvíti gott miðaðvið 11 ára gamlan bmw sem er með 190þ á klukkunni.

Jæja komið með ykkar tölur, eyðsla skiptir alltaf meira og meira máli.

Kv.

Author:  Einarsss [ Fri 26. Dec 2008 11:05 ]
Post subject: 

e30 325i turbo .... ca 20L að meðaltali


bara af því að þegar hann er keyrður þá er mottóið "drive it like you stole it"

annars ef ég myndi halda mig off boost þá gæti ég alveg trúað að hann væri í kringum 10-11

Author:  Jónas Helgi [ Fri 26. Dec 2008 11:46 ]
Post subject: 

Ég er á 325i e46. Þegar ég keypti hann sýndi tölvan 11.8L,
svo stakk ég K&N Síu í hann með boxi og endurstillti tölvuna og ann hrökk niður í 10.1L.
Svo um sumarið setti ég undir hann 19" 245/35 að aftan og hann var í svona 11.5-12L.
Algjör meðalakstur sko.

Author:  HAMAR [ Fri 26. Dec 2008 12:21 ]
Post subject: 

BMW X5 4.4 '05 ca.18.5 l/100 km. í innanbæjarakstrinum.
Minna en ég átti von á.

Author:  bebecar [ Fri 26. Dec 2008 12:25 ]
Post subject: 

Minn er að eyða svona 7.5 að jafnaði í innanbæjar akstri. Sem er svona í meira lagi finnst mér :lol:

Author:  gstuning [ Fri 26. Dec 2008 12:27 ]
Post subject: 

Allir e30 sem ég hef átt , 1.6 blöndungs, S50 , m20 , m42 eða hvað sem er hafa alltaf verið með 9-11 í eyðslu. Held það sé meira ég sem veldur eyðslunni heldur enn bílarnir.

Author:  bimmer [ Fri 26. Dec 2008 12:35 ]
Post subject: 

M5 er að fara með 17-18 í sparakstri, 25-30 ef verið er að taka eitthvað á því.

RNGTOY er að fara að því er mig minnir ca. 6-7 hringi á slaufunni á
tanknum sem þýðir ca. 45 á hundraðið :shock:

Author:  elli [ Fri 26. Dec 2008 12:36 ]
Post subject: 

... E32 750 hann þarf sopann sinn en hann skilar því öllu í tómri hamingju

Freude am Fahren á alveg við hér 8)

Author:  Schulii [ Fri 26. Dec 2008 12:37 ]
Post subject: 

BMW 2002 520d

Ég mæli við hverja tankfyllingu. Núllstilli tölvuna og ber saman tölurnar. Hefur verið 8,4-8,9 l/100km innanbæjar. Mælirinn hefur alltaf sýnt ca einni til tveimur kommum meira en raunnotkunin er.

Author:  gunnar [ Fri 26. Dec 2008 13:48 ]
Post subject: 

Ég mældi E30 ansi oft þegar ég var úti og þá var hann í kringum svona 8 lítrana.

En svo hérna heima þá eru þetta svona 10-11

Author:  Axel Jóhann [ Fri 26. Dec 2008 14:03 ]
Post subject: 

Minn 525i er að fara 10-13 lítrana. 8)



En allt hitt 20 plús.

Author:  IvanAnders [ Fri 26. Dec 2008 14:18 ]
Post subject: 

Sparakstur: 12ltr Skemmtiakstur/vetrarakstur: 15-16ltr

Er að hanga í 13.5-14 að meðaltali, fyrirgef honum það :)

Author:  íbbi_ [ Fri 26. Dec 2008 14:25 ]
Post subject: 

alpina b3, 16l
540 var að meðaltali í 15.7
318is ??
735i 24l
730 l6 16l
730v8 17l

Author:  Dóri- [ Fri 26. Dec 2008 14:31 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
M5 er að fara með 17-18 í sparakstri, 25-30 ef verið er að taka eitthvað á því.

RNGTOY er að fara að því er mig minnir ca. 6-7 hringi á slaufunni á
tanknum sem þýðir ca. 45 á hundraðið :shock:


Skil alveg eyðsluna á RNGTOY væri ekki hægt að setja ON/OFF takka í stað fyrir bensíngjöfina ? 8)

Author:  UnnarÓ [ Fri 26. Dec 2008 14:42 ]
Post subject: 

'91 525i M50 - ca. 14l innanbæjar

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/